Vikan - 18.04.1968, Side 29
Nýr Kennedy
Framhald af bls. 15.
gagnvart eldri bræðrum sínum, en
þeir áttu báðir velgengni að fagna.
En það var öðru nær. Það kom
fIjótlega í Ijós bæði hjá Róbert og
Edward, að þeir vildu vera fremri
Joe og John. Sérstaklega kom
snemma fram hjá Róbert óvenju-
legt stolt fyrir hönd fjölskyldunnar
— og þetta stolt hefur hann síðan
innrætt sínum stóra barnahópi."
Róbert Kennedy er fljótmæltur og
röddin er eilítið harðneskjuleg. Orð-
um sínum til áherzlu bankar hann
með vísifingri í borðplötu, alveg
eins og John gerði. Edward er aftur
á móti rólegri og hæggerðari. Hann
talar hægt og er ekki eins ákafur
og ágengur og Róbert.
Það má með sanni segja, að þeir
bræður hafi verið aldir upp í stjórn-
málum. Strax í æsku tóku foreldrar
þeirra að kenna þeim meginreglur
stjórnmálanna og faðir þeirra byrj-
aði mjög snemma að rökræða við
þá. ,,Ekki aðeins um stjórnmál,"
segir Róbert. ,,Foreldrar okkar
hvcttu okkur til þess að kynna okk-
ur málavöxtu af eigin raun, fara út
á götu og ræða við hinn almenna
borgara til þess að víkka sjóndeild-
arhringinn og sjá sem flestar hlið-
ar á öllum málum."
Jósep, faðir Kennedy-bræðranna,
var, 25 ára gamall, orðinn yngsti
bankastjóri í Bandaríkjunum, og
einn af þeim fáu sem studdi dyggi-
lega Roosevelt forseta í kosningun-
um 1932. í þakklætisskyni var hann
gerður að ambassador í London.
Þaðan fór fjölskyldan í mörg og
löng ferðalög, þar til stríðið brauzt
út 1939. Þá fluttist fjölskyldan aftur
til Bandaríkjanna og settist að á
sveitasetrinu Hyannis Port.
Sumardagana 1940 safnaðist öll
fjölskyldan saman í síðasta sinn (
stóra og fallega húsinu rétt utan
við Boston.
Elzti bróðirinn, Joe, fór í sjóher-
inn. Nokkrum mánuðum selnna fór
John líka í herinn. Róbert var ekki
kominn á herskyldualdur fyrr en í
nóvember 1943.
í ágúst 1944 varð Kennedy-fjöl-
skyldan fyrir fyrsta áfalli sínu. Elzti
sonurinn, Joe, 29 ára gamall, Ijón-
gáfaður og efnilegur stjórnmála-
maður, fórst í árás, sem hann tók
þátt í samkvæmt eigin ósk. Sprengja
átti í loft upp eina af eldflauga-
stöðvum Þjóðverja. Joe tók að sér
að fljúga sprengjuflugvélinni. Áætl-
að var, að áhöfnin kastaði sér út
í fallhlíf, strax og sprengjuvélinni
hefði verið stefnt að skotmarkinu.
Flugvélin varð fyrir þýzku loftskeyti
og fórst, áður en hún hafði náð að
framkvæma ætlunarverk sitt.
Eftir kosningasigur sinn sagði
John F. Kennedy:
,,Engum manni eigum við bræð-
urnir meiri þakkarskuld að gjalda
en Joe. Dirfska hans, dugnaður og
persónuleiki verður okkur ætíð
minnisstætt fordæmi."
25 ára gamall var Joe fulltrúi
Massachusett-fylkis á ársþingi demó-
krata og jafnvel andstæðingar hans
viðurkenndu, að hann væri hiklaust
verðandi forsetaefni.
Faðir þeirra beitti áhrifum sínum
til þess að koma því í kring, að
Róbert væri um borð í tundurspilli,
sem heitinn var f höfuðið á Joe
Kennedy. En um það leyti sem senda
átti skipið f fyrstu ferð sína á vfg-
stöðvarnar, gáfust Japanir upp og
Róbert var leystur undan herþjón-
ustu.
Strax og stríðinu lauk, tók John
á sínar herðar skyldur elzta bróður-
ins, sem Joe hafði áður haft, og
Róbert varð ,,krónprins" fjölskyld-
unnar. Á sama hátt og eldri bræð-
urnir fékk hann eina milljón doll-
ara að gjöf frá föður sínum, þegar
hann varð myndugur. Þessa upphæð
fá þeir bræðurnir til eigin ráðstöf-
unar án nokkurra skuldbindinga.
,,Ég vil veita sonum mfnum tæki-
færi til að vera fjárhagslega sjálf-
stæðir. Með þessu móti velja þeir
siálfir, hvort þeir vilja vera rfkir eða
fátækir. Þeir þurfa ekki að biðja
neinn um neitt," segir Joseph
Kennedy um þessa myndarlegu
upphæð, sem hann hefur gefið öll-
um sonum sínum.
Róbert var ekki aðeins metnað-
argjarn þegar hann var ungur, held-
ur einnig eirðarlaus og óþolinmóð-
ur. Hann varð að hrinda hugmynd-
um sínum í framkvæmd strax til
þess að geta tekið sér fyrir hendur
ný verkefni. Hann gerðist stríðs-
fréttaritari og fór til Palestínu 1948.
Og strax og hann hafði lokið lög-
fræðinámi sínu fór hann til Austur-
landa ásamt Pat systur sinni. Þar
lenti hann f uppreisn og var ekið í
gegnum Singapore í brezkum skrið-
dreka.
1951 hefst stjórnmólaferill hans.
Þá hafði hann nýlega kvænzt Ethel
Skakel. f augum Bandaríkjamanna
er hjónaband þeirra fullkomið. Et-
hel virðist vera öllum þeim kostum
búin, sem kona þarf að hafa til
þess að vera gift einum af Kenne-
dy-fjölskyldunni. Hún er full af at-
orku og dugnaði, glaðvær og létt-
lynd og hefur mikinn áhuga á fþrótt-
um. Hún er methafi f sundi, hefur
yndi af hestum og skíðaferðum.
Auk þess hefur hún áhuga á stjórn-
málum og dáist mikið að Kennedy-
fjölskyldunni.
Róbert Kennedy virðist vera Iftill
vexti og grannur við fyrstu sýn. En
hann er ágætur íþróttamaður og vel
þjálfaður líkamlega. Augun eru blá
og hvöss, röddin björt og hann tal-
ar alltaf hratt. Hann Ijómar allur af
áhuga og dugnaði og seglr ævin-
lega skoðun sína fljótt og ákveðið.
Hann bindur oft enda á samræður,
löngu áður en málin eru útrædd;
hefur ekki eirð né þolinmæði til að
hlusta á sjónarmið annarra. Hann
veit hvað hann vill og reynir ekki
hið minnsta að leyna því.
Samt er ekki hægt að segja, að
hann sé alvörugefinn. Hann brosir
oft — og þá er stundum erfitt að
trúa því, að hann sé orðinn fertug-
ur að aldri.
Stjórnmálin eru aðaláhugamál
hans og fþróttirnar helzta tóm-
stundaiðjan. Þeir sem heimsækja
fjölskylduna geta átt á hættu að
verða að taka þátt í kappleik á
grasflötinni fyrir utan hús hans f
Virginia. Þar er Róbert jafnan
fremstur f flokki með allan barna-
hópinn sinn, en þau hjónin eiga
hvorki meira né minna en tíu börn.
Það er ánægjulegt að dvelja á
heimili þeirra hjóna, jafnt fyrir
börn og fullorðna. í augum barn-
anna er heimili þeirra eins og dýra-
garður. Þau eiga fimm hesta, fjóra
hunda, kött, endur, skjaldbökur,
héra, dúfur, gullfiska, geitur, slöng-
ur, sæljón, sel, páfagauka og gæsir.
Samkvæmin, sem þau hjón efna
til öðru hverju, eru vinsæl og eftir-
sótt, en ekki er ósennilegt, að marg-
ur kvíði fyrir þeim. Frúin. hefur
ánægju af að koma gestum sínum
á óvart, og hún hefur frjótt ímynd-
unarafl í þeim efnum. Einu sinni
lét hún karlmennina sitia sér við
borð og kvenfólkið sér. Sjálf sett-
ist hún við borð karlmannanna og
sat þar allt kvöldið! Það er alvana-
legt að hún klæði gesti sína í vinnu-
föt og fleygi þeim út í sundlaugina!
Róbert tekur oft á móti stiórn-
málamönnum á heimili sfnu til þess
að ræða við þá um alvarleg mál-
efni. Nokkrum sinnum hefur hann
boðað til blaðamannafundar þar og
verið að synda í lauginni þegar
þeir komu.
,,Það veitir ekki af að kæla höf-
uðið, áður en maður talar við
blaðamenn," sagði Róbert eitt sinn
við slíkt tækifæri og ræddi síðan
við blaðamennina á sundlaugar-
barminum!
Stjórnmálamaður, sem vill kom-
ast á efsta tindinn í Bandaríkjunum,
verður að hafa góða eiginkonu sér
við hlið. Ekki er síður mikilvægt,
að kjósendur séu hrifnir af konu
hans og fjölskyldu en honum sjálf-
um.
Næst á eftir Jacqueline er Ethel
þekktasta konan í Kennedy-f jöl-
skyldunni. Hún er mjög vinsæl með-
al kynsystra sinna f Bandaríkjunum.
Hún er tákn hinnar dugmiklu,
hressilegu og áhrifaríku eiginkonu
og móður. Hún verður tvímælalaust
verðug húsfreyja í Hvfta húsinu.
,,Ef eitthvað alvarlegt kemur
fyrir. þá mun Bobby stappa stálinu
f fjölskylduna. Hann er sterkastur
okkar allra," sagði John eitt sinn.
Þegar fjölskyldan varð fyrlr
mesta áfalli sínu, — þegar harm-
leikurinn gerðist f Dallas 22. nóv-
ember 1963 — þá sýndi Róbert, að
ummæli bróður hans voru rétt.
Hvenær sem John og Jacqueline
þurftu á aðstoð að halda, hafði Ró-
bert komið þeim til hjálpar. I flug-
vélinni á leiðinni frá Dallas, var
það aðeins Jacqueline, sem þurftí
á hjálp að halda. Og frá þeirrí
stundu, er hún sté á land í Was-
hington, vék mágur hennar ekki
frá henni. Hann vanrækti heldur
ekki að hughreysta foreldra sína
og systkini. Járnvilji hans og sáiar-
styrkur gerði fjölskyldunni kleift að
Iifa þessar hræðilegu vikur. Þá ef-
aðist enginn um, hver væri orðinn
höfuð ættarinnar — stoð hennar og
stytta. *
■-\
NÝTT FRÁ
v_
NÝ ELDAVÉL, GERÐ 6604, MEÐ 4 HELLUM,
STÖRUM STEIKAR- OG BÖKUNAROFNI.
Yfir- og undirhiti fyrir steikingu og bökun,
stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar
eliment (grill), stór hitaskúffa, Ijós í ofni.
15. tw. VIKAN 29