Vikan


Vikan - 18.04.1968, Blaðsíða 36

Vikan - 18.04.1968, Blaðsíða 36
' ’s' : í mínum hópi er það svo eðlilegt með Marlboro. Marlboro hefir |h' p1' li1;J111 það sem víð viljum: lí:' ill '■ 'ti 1 Eðlilegan, ófilteraðan keim. ?>'1 IS! Hvar sem glæsileiki, yndisþokki og hæfni mætast, þar er Marlboro! Alls staðar sömu gæðin, sem gert hafa Marlboro, leiðandi um allan heim: Amerískt tóbak - Amerísk gæði, úrvals fiiter. Filter • Flavor • Flip-Top Box HlfAR ER DRKIN HANS NÓA? Það er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð- um verðlaunum handa jþeim, sem getur fundið ö'rkina. Yerð- Iaunin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti. og fram- leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói. Siðast er dregið var hlaut verðlaunin: Svana H. Stefónsdóttir, Kleppsvegi 8. Vinniöganna má vítja í skrifstoíu Vikunnar. Nafn HeimiH Örkih er á bls. 36 VIKAN 1S-tw- Hún herti á sér, þar til hún var nærri farin að hlaupa, til þess að losna sem fyrst úr þess- um óþægindum, frá þessum óþægilega manni. Hvöss grein slóst um kinn hennar og hún fann að það tók að blæða, en herti bara á sér, því nú var sem betur fór ekki langt eftir. En þarna var mýrlent og skreipt í spori, síðan tók við kargaþýfi. Allt í einu rak hún fótinn í gjólu og féll fram yfir sig. Þeg- ar hún settist upp aftur með tár sársauka og reiði í augun- um, stóð hann yfir henni stór og beinvaxinn eins og fura og rétti henni höndina til að hjálpa henni á fætur. f reiði sinni sló hún á höndina, krafsaði sig á fætur og þurrkaði illskulega tár- in. Vasaklúturinn varð svartur af óhreinindum. Hann tók upp töskuna hennar og svo lagði hann handlegginn utan um mitti hennar. — Ég skal hjálpa yður yfir þessa spildu, sagði hann. — Þér getið stuðzt við mig. — Nei takk! Ég þigg enga hjálp af yður! Hann herti um hana takið: — Þér takið á móti henni, hvort sem yður líkar betur eða ver. Framhald í næsta blaði. Vesti og húfa Framhald af bls. 47. Bakstykki: Fitjið upp 130 I. ó prj. rn. 2V2 og prjónið sléttprjón. Tak- ið úr á hliðunum 1 I. í 10. hv. um- ferð 9 sinnum. Þegar 40 sm mæl- ast frá uppfitjun er fellt af fyrir handvegum í 2. hv. umf. 4 I., 2 sinnum 3 I., 2 sinnum 2 I. og 6 sinnum 1 I. Þegar 60 sm mælast frá uppfitiun er tekið úr fyrir háls- inum að aftan með því að fella af 26 miðlykkjurnar og prjóna hvora hlið fyrir sig. Fellið af hálsmegin f 2. hv. umf. 4—3—2 I. og 2 sinnum 1 I. Jafn- hliða 3 seinustu úrtökunum eru felldar af 3 I. 4 sinnum fyrir öxl. Prjónið hina hliðina eins, en gagnstætt. Saumið saman axla- og hliðar- sauma með þynntum garnþræðin- um og aftursting. Kantur: Fitjið upp 8 I. á prj. nr. 2 og prjónið stuðlaprjón, 1 I sl. og 1 I. br. Mælið kantinn frá hægri öxl, prjónið fyrst niður V-hálsmál- ið öðrum megin og prjónið 1 hnappagat. (Fellið af 2 I., 4 I. frá jaðrinum og fitjið síðan upp 2 I. í næstu umf.). Prjónið sfðan 2 hnappagöt á sama hátt og hafið 12 sm milli þeirra. Prjónið áfram þar til kanturinn nær að hægri öxl og ath. að teygja hann dálítið svo vestið sfkki ekki niður að framan. Saumið kantinn við vestið með þynntum garnþræð- inum og varpspori frá röngu. Prjón- ið um 48 sm langa kanta í hand- vegina og saumið þá við á sama hátt.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.