Vikan - 18.04.1968, Síða 44
afturábak að veginum. Eftir
honum komu Bonnie og Clyde
á bíl. Einhver missti stjórn á
sér og fór að skjóta. Allt að
hundrað skotum var hleypt af og
annar fangavarðanna lét lífið.
Þetta var tíunda morð Borrow-
klíkunnar og þótti yfirvöldum
Texas nú sem mælirinn væri
fullur. Ríkisstjórinn samþykkti
að fenginn væri leynilögreglu-
maður til að elta hjúin unz hann
hefði náð þeim, lifandi eða dauð-
um, á sitt vald.
Maður að nafni Frank Hamer
fékk þetta hlutverk, fyrrverandi
höfuðsmaður í Texas Rangers.
Hann var einn frægasti manna-
veiðarinn í öllum Bandaríkjun-
um. Fullyrt var að hann hefði
drepið sextíu og fimm glæpa-
menn í einvígi með skamm-
byssum. Hann var nú varðstjóri
hjá olíufélagi einu með fimm
hundruð dollara laun á mánuði,
en það þótti vel borgað á þeim
tíma. Texas bauð honum ekki
nema hundrað og fimmtíu doll-
ara, og verkefnið var óneitanlega
lífshættulegt. Það er kannski
mælikvarði á veiðigleði Hamers
að hann tók það hiklaust að
sér.
Frank Hamer hóf eltinga-
leikinn tíunda febrúar 1934.
Hann stóð í hundrað og tvo
daga.
Bonnie og Clyde héldu nú
glæpalífi sínu áfram um hríð í
félagi við Hamilton. Sá síðast-
nefndi þreyttist fljótlega á líf-
erni þessu, þar eð ránin gáfu
sjaldnast af sér meira en bensín
og mat fyrir daginn. Hann yfir-
gaf því félagsskapinn. En und-
ireins á eftir var hann gripinn
og settur inn til að halda áfram
að sitja af sér árin tvö hundruð
sextíu og þrjú, en nokkrum ár-
um hafði nú verið bætt við þann
tíma, vegna flóttans úr fang-
elsinu.
Áður en Hamilton var tekinn
fastur öðru sinni, hafði hann
skrifað blöðunum bréf og sagði
þar opinberlega skilið við Clyde
Barrow. Sjálfur sagðist Hamil-
ton vera prúðmenni, þótt af-
brotamaður væri, en Clyde væri
ekkert annað en auðvirðilegur
vonleysingi.
Clyde svaraði með öðru bréfi
til blaðanna og merkti það með
þumalfingursfari sínu, svo eng-
inn þyrfti að efast um að það
væri ófalsað. Hann lét í Ijós
fyrirlitningu á Hamilton: „væri
hann þó ekki nema hálfdrætt-
ingur á við mig hvað snilli
snerti, hefði lögreglan aldrei náð
í hann.“
Á páskadaginn skutu Bonnie
og Clyde tvo lögreglumenn, sem
ætluðu að líta á bílinn þeirra.
Þetta stóð ekki í sambandi við
neitt rán. Hjúin ætluðu þá að
hitta móður Bonniear og afhenda
henni hvíta kanínu, sem dótt-
irin hafði keypt sem páskagjöf.
Fyrst á eftir var hvert einasta
bandarískt blað með Bonnie og
Clyde á forsíðu. Lögreglumenn
og óbreyttir borgarar þóttust sjá
þau alls staðar, og þeim voru
eignaðir glæpir sem þau höfðu
ekki komið nálægt.
En í Oklahóma voru tveir lög-
reglumenn svo óheppnir að
verða fyrir barðinu á þeim. Það
voru Percy Boyd, lögreglustjóri,
og sextugur lögregluþjónn að
nafni Cal Campbell. Þegar þeir
nálguðust bílinn, steig Clyde út
með byssu í hendi. Campbell
ætlaði að kippa upp skammbyss-
unni, en Clyde drap hann með
skoti í höfuðið.
Boyd höfðu þau með sér í
bílnum. Hann var lítillega særð-
ur. Clyde sagði við hann:
— Leiðinlegt að ég skyldi
skjóta kallinn. En ég gat ekki
annað. Hann hefði ekki átt að
reyna að skjóta á mig.
Þau héldu lögreglustjóranum
föngnum í fjórtán klukkustundir
og óku um fáfarna vegi og
slæma. Bonnie hafði ennþá hjá
sér hvítu kanínuna.
— Ef eitthvað skyldi koma
fyrir mig meðan þú ert hjá
okkur, sagði hún við Boyd, viltu
þá vera svo góður að afhenda
mömmu hana?
Því lofaði Boyd. Þegar þau að
síðustu slepptu honum á skóg-
argötu einni í Kansas, gáfu þau
honum nýja skyTtu, bindi og
peninga. Hann spurði:
— Bonnie, hvað á ég að segja
af ykkur?
— Segið að ég reyki ekki
vindla. Það var bara upp á grín
að ég lét Clyde ljósmynda mig
með vindil í munninum.
Clyde var stoltur yfir því að
hafa verið útnefndur óvinur
Texas nr. eitt. Hann las allt það
sem hann komst yfir um afrek
sín. Bonnie var byrjuð að yrkja
síðasta kvæðið sitt, sem hét
„Sagan af Bonnie og Clyde.“
En Frank Hamer var þegar á
slóð þeirra og nálgaðist þau
stöðugt. Hann hafði fundið
„bréfakassann" þeirra, stað, þar
sem þau skiptust á upplýsingum
við aðra bófa, sem þau höfðu
öðru hvoru samstarf við. Stað-
urinn var smáspöl inn í skógi
við hliðarveg einn utan við
Plain Dealing í Loisiana.
,,Bréfakassinn“ var hola rétt
hjá trjástúf. Bonnie var vön að
sit-ja í bílnum uppi á hæð
skammt frá og skyggnast eftir
mannaferðum meðan Clyde fór
inn í skóginn eftir pósti.“
En í undirheimum Banda-
ríkjanna voru menn orðnir
þreyttir á þeim Bonnie og Clyde.
Meiriháttar gangsterar litu á
þau sem hverja aðra smáfiska,
sem væru auk þess hættulegir
vegna þess hve mjög þau esp-
uðu lögregluna á móti sér. Þess-
vegna var Frank Hamer, FBI
og öðrum sem leituðu skötuhjú-
anna oft vísað á þau.
Ein slík tilvísun varð til þess
að Hamer fann „bréfakassann".
Þangað fór hann við sjötta mann
aðfaranótt tuttugasta og þriðja
maí 1934; höfðu einnig fengið
vísbendingu um að glæpakind-
anna væri þangað von innan
skamms. Þeir földu bílana í
skóginum og sjálfa sig með
þriggja metra millibili við veg-
inn gegnt bréfaholunnL Þetta
voru engir viðvaningar í faginu,
svo að lítil hætta var á að að-
vífandi fólk kæmi auga á þá.
Biðin varð löng og lítið tauga-
styrkjandi. Nokkrir bílar fóru
framhjá eftir sólarupprás.
Klukkan var tíu mínútur yfir
níu, þegar grár Ford kom ak-
andi upp á hæðina. f framsæt-
inu sátu svarthærður karlmað-
ur og rauðhærð kona. Þeir sem
biðu þekktu þar Bonnie og
Clyde.
Bíllinn nam staðar þar sem
hæðin gnæfði hæst, en mótorinn
gekk áfram. Einhver fyrirsáturs-
mannanna æpti:
— Upp með hendurnar!
Clyde setti í fyrsta gír og
hrinti um leið upp hurðinni til
að skjóta. Bonnie teygði sig eftir
skammbyssunni sinni.
Meira tókst þeim ekki að gera.
Hamer fyirskipaði skothríð, og
mennirnir sex hæfðu glæpahjú-
in níutíu og fjórum skotum.
Hvorugu þeirra Bonniear eða
Clydes tókst að hleypa af skoti.
Clyde féll aftur á bak, Bonnie
áfram. Bíllinn rann niður af
hæðinni, brölti yfir skurð og
stanzaði síðan. Þau Bonnie og
Clyde voru bæði dauð þegar að
var komið. Clyde kreisti enn í
hendi sér byssuskeftið, sem sjö
skorur voru markaðar á.
Skammbyssa Bonniear lá á
hnjám hennar, undir blóðugu
andlitinu. f skeftinu hennar voru
þrjár skorur. f bílnum fundust
fimmtán fölsuð númeraskilti,
sextán byssur af ýmsum gerðum,
jrfir tvö þúsund skothylki, kven-
veski, alltsaxófónn og nokkrar
grammófónplötur.
Síðasta kvæði Bonniear fannst
ekki í bílnum. Hún hafði þá um
morguninn sent það blaði
nokkru. Kannski grunaði hana
hvað dagurinn bar í skauti sér.
Vegendurnir fluttu líkin sigri
hrósandi til Arcadia. Þar voru
þau höfð til sýnis i húsgagna-
verzlun nokkurri. f blaði einu
frá þeim dögum segir svo frá
þessari hryllilegu sýningu:
„Þúsundir manna höfðu ruðzt
inn í búðina til þess að skoða
líkin. Þeir forvitnu slógust eins
og villimenn um að komast að.
Gluggarnir voru brotnir og
hurðin einnig. Búðin leit út eins
og orrustuvöllur. Umferðastífl-
ur eru á öllum aðliggjandi veg-
um og vígvöllurinn sjálfur (þar
sem lögreglan sat fyrir Bonnie
og Clyde) minnir nú á eins-
konar tívolí; þar er stöðugt fjöldi
fólks og undireins er búið að
koma þar upp söluskýlum, þar
sem seldur er ís og karamellur."
f kvæðinu „Bonnie og Clyde“
spáði Bonnie því að þau myndu
deyja hlið við hlið og verða
f-----------------------------------N
Andrés auglýsir
Karlmannaföt, innlend og erlend
Fermingarföt, mjög lágt verð
Dömukápur - Dömuslár
Fermingarkápur
r ---1------n
Glæsilegt úrval
44 VIKAN 1S-tw-