Vikan


Vikan - 18.04.1968, Qupperneq 47

Vikan - 18.04.1968, Qupperneq 47
Myndirnar hér fyrir ofan: Efst t. v. er vestisdragt úr skozk-köflótta efninu, sem mikið er í tízku núna. Pilsið er útsniðið, vestið tvíhneppt með Bonnie-sídd. Skyrta með síðum ermum og opin í hálsinn, húfa borin á sama liátt og alpahúfa, og síddin á hárinu, allt er hægt að rekja til Bonnie, þótt hárið sé meira krullað en í kvikmyndinni. ★ Næsta mynd minnir meira á Clyde, en takið eftir tvílitu skónum, sem eru allra nýjasta tízka, og algengt er að þeir séu bláir og hvítir. ★ Næst er síð, sléttprjónuð golf- treyja með vösum, við hana prjónapils úr sama garni, beige-hvítu, hattur í Clyde-stíl og klútur í hálsmáli, fullkominn götu- eða heimaklæðnaður hvar sem er. ★ Næst er önnur vestisdragt úr gráu flann- el, pilsið er fellt að framan og mjög skemmtilegir vasar bæði á pilsi og vesti. Að þessu sinni er túrban notaður við, og er hann, taskan og armböndin úr slönguskinni. ★ Lengst t. h. er svo ekta skotapils og vesti úr sama efni, í bláum og rauðum lit, dökk- blá, langerma blússa notuð við, sterkrautt belti og festi um hálsinn með risastórum, hvítum perlum. Vinnulýsing fylgir hér af vestinu og húfunni á forsíðunni, en hvorttveggja er dæmigert fyrir þessa Bonnie og Clyde tízku. STÆRÐ 42-44. Efni: Um 450 gr af fjórþættu ullargarni — priónar nr. 2, 2V2 og 3 — 3 hnappar, 14 mm í þvermól. Priónið með sléttprjóni, sem er prj. sl. frá réttu og br. frá röngu. Prjónið það þétt að 30 I. prj. sl. á prj. nr. 3 mæli 10 sm í þvermál og 40 umf. 10 sm á hæð. Breytið annars prjónagróf- leikanum þar til fyrrnefndum þéttleika er náð svo vestið verði hvorki of stórt né of Iftið. Hægra framstykki: Fitjið upp 48 I. á prj. nr. 2'/2 og prjónið sléttprjón. Takið úr á hliðinni eina I. í 24. hv. umf. 5 sinnum, en aukið út að framan með þvf að fitja upp f 2. hv. umf. 3 I. 3 sinnum 2 I. og 1 I. 12 sinnum. Þegar 5 sm mælast frá uppfitjun er jafnhliða útaukn. og úrt. prjónað f fyrir vasa yfir 30 I., 22 I. talið frá framhliðinni. (Prjónið með mislitum þræði, látið lykkjurnar aftur á vinstri prjón og 'prjónið þær síðan með garninu sem prjónað er með). Prjónið áfram 13 sm og prjónið þá aftur í fyrir öðrum vasa á sama hátt og yfir þeim fyrri. Prjónið áfram þar til 38 sm mælast frá uppfitjun, takið þá úr fyrir V-hálsmáli með því að prjóna saman 2 I. fyrir innan jaðarlykkjuna í 4. hv. og 2. hv. umf. til skiptis, 16 sinnum. Þegar 41 sm mælist frá uppfitjun er fellt af fyrir handvegi í 2. hv. umf. 5—4—3—2 I. og 6 sinnum 1 I. Þegar 22 sm mælast frá fyrstu hand- vegsúrtöku er fellt af fyrir öxl í 2. hv. umf. 4X3 I. Prjónið vinstra framstk. eins en prjónið gagn- stætt. Framhald á bls. 36.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.