Vikan - 05.09.1968, Page 2
\
I
Varalitir,
12 fallegir tízkulitir.
MAKE-UP,
3 fallegir litir.
Pressað púður,
4 fallegir beige litir.
Cleansing Lotion
hreinsar betur en sápa og
er mildara en krem.
Astrigent Tonic.
Andlitsvatn fyrir þurra og
feita húð.
COVER GIRL snyrtivörur
eru viðurkenndar af hin-
um vandlátu.
COVER G'RL fæst í öllum snyrtivöruverzlunum.
LONDON
LOOK
Heildsölubirgðir: FRIÐRIK BERTELSEN Laufásvegi 12 - Sími 36620.
NOXZEM A - 0E0B0RANT
SVITAEYÐÍR. REYNIÐ OG ÞÉR MUNUÐ SANN-
FÆRAST UM A^ Dr_rDI
EKKI.
2 VIKAN 35-tbl-
Skattsvik
Sumir urðu undrandi og
hneykslaðir, þegar upp komst,
að þrjátíu starfsmenn hjá
stóru ríkisfyrirtæki höfðu
gerzt sekir um stórfellt skatt-
svikamál. Milljónir af tekjum
þeirra höfðu ekki verið gefn-
ar upp til skatts.
Almenningi kemur þetta
hins vegar ekki á óvart.
Hvarvetna blasir við augum
sú staðreynd, að stór hópur
manna greiðir ekki skatta í
réttu hlutfalli við raunveru-
legar tekjur sínar og efnahag.
Heiðarlegir launamenn, sem
eru kannski að burðast við
að eignast þak yfir höfuðið.
verða að greiða allt upp í
hundrað þúsund krónur í
skatta, en stóreignamenn,
sem fást við kaupsýslu og
viðskipti og berast mikið á,
greiða ekki nema fáeina tugi.
Lengi hefur legið í augum
uppi, að meira en lítið er
bogið við þetta.
Sljó siðferðiskennd er lík-
lega höfuðorsök meinsins. Hér
á landi þykir alls ekki óheið-
arlegt athæfi að svíkja undan
skatti. Þvert á móti dást menn
að þeim, sem snjallastir eru
í ,,faginu“. Þeir sem barma
sér undan háum sköttum og
hafa alltaf gefið rétt upp til
skatts — þeim er vorkennt,
þegar bezt lætur!
Hvarvetna erlendis eru
skattsvik talin einhver alvar-
legustu afbrot, sem hægt er
að gerast sekur um. Þar gera
menn sér ljóst, að skattsvik
eru þjófnaður og ekkert ann-
að.
Skattalögreglan íslenzka er
tvímælalaust þarfasta stofn-
un, sem komið hefur verið á
fót hér á landi í langan tíma.
Sumum hefur þótt hún fara
sér heldur hægt og bjuggust
við betri og skjótari árangri.
En alltaf öðru hverju berast
fregnir ’af henni; hún kemur
upp um skattsvik og oftast í
stórum stíl.
Vonandi fær þessi nauðsyn-
lega stofnun að búa við við-
unnandi starfsskilyrði, svo að
hún megi í framtíðinni starfa
af meiri krafti en hingað til.
Ekki muh af veitá.