Vikan


Vikan - 05.09.1968, Blaðsíða 37

Vikan - 05.09.1968, Blaðsíða 37
dásamlegt útsýni, en kuldinn er mjög slæmur á vetrum. Martin og Marita hafa ekki verið að fást neitt um það hingað til, en nú verða þau að hugsa um dóttur sína. — Okkur langar ekki til að flytja. Hér erum við svo frjáls. Ef við flytjum á nýjan stað, þá er hætta á þvi að fólk glápi ó okkur. Við vilj- um helzt reyna að laga þetta hús, bæta við einu herbergi og baðher- bergi, gera það hlýrra og þægi- legra. Maritu hefur alltaf fundizt óþægi- legt, þegar fólk glápir á hana, hún getur ekki vanizt því. — Börn benda oft á okkur, en það er hægt að fyrirgefa það. Verra er þegar fullorðið fólk snýr sér við og starir á okkur. Það kemur, því miður, mjög oft fyrir. Samt finnst henni allt annað líf, síðan hún kom til Svíþjóðar, segir að fólk sé miklu frjálslegra þar. — Það er líka miklu betra að vera ekki einmana iengur . . . Það er samt erfitt fyrir þessa lág- vöxnu húsmóður að verzla í kjör- búðunum. — Ég næ ekki upp í hillurnar, og verð þá að biðja um hjálp. Lífið hefur nú fengið meira gildi, Martin Naslund og litla finnsk- ættaða konan hans eru ekki lengur ein. Þau hafði samt aldrei dreymt um það, á uppvaxtarárunum, að þau ættu eftir að eignast eigið heim- ili, hvað þá heilbrigt barn. Fjöl- skyldan í litla, rauða húsinu er for- sjóninni innilega þakklát. . . . ☆ FatavandræSi... Framhald af bls. 5 Þótt svo að Margréti væri trúandi til þess. Það er ætlazt til að þær klæð- ist samkvæmt tízku eigin lands. Þær mega varla kaupa vefnaðarvöru — það gæti skoðazt sem auglýsing fyrir framleiðandann. Konungborið kvenfólk má ekki sýna sig opinberlega í sömu flík- inni nema einu sinni. Það verður því að eiga urmul af kvöldkjólum og kvöldkápum, sem að vísu eiga að vera mjög svo falleg föt, en ekki of nýtízkuleg og ekki höfða um of til kynhrifa. Þær prinsessur, sem hafa tilfinningu fyrir tízkunni, hafa líka stöðugar áhyggjur út af að orðuböndin og erfðagimsteinarnir, sem þær verða að bera, eyðileggi línurnar í kvöldkjólunum. Þar að auki verða þær alltaf að bera hatt, hversu illa sem það kann að koma heim við tízkuna — að vísu braut Kristín prinsessa af Sví- þjóð þá reglu nýlega er hún heim- sótti Japan. Hattinn verður að bera þannig, að andlitið sjáist vel. María Ekkjudrottning af Bretlandi gekk með stórskreytta hatta allt sitt líf, og hentaði það ágætlega hennar kvengerð. Fyrri kynslóð kónglegra kvenna var heldur gamaldags, gekk um með stöðugan kvíðasvip og klædd- ist kjólum úr smárósóttu efni og NESCAFÉ er stórkostlegt - kvölds og morgna, - og hvenær dags sem er. Það er hressandi að byrja daginn með því að fá sér bolla af ilmandi Nes- café, og þegar hlé verður í önnum dagsins er Nescafé auðvelt, þægilegt og íljótlegt í notkun, og bragðið er dásamlegt. Nescafé er einungis framleitt úr völdum kaffibaunum - ioo°/o hreint kaffi. Hvenær sem er, og hvar sem er, þá er Nescafé hið fullkomna kaffi. Nescafé með pífum. Þetta kom sumpart til af miður þroskuðum smekk hátign- anna en sumpart áttu sökina slæm- ir ráðgjafar sem báru alltof mikla lotningu fyrir yfirboðurum sínum til að ráðleggja þeim af hreinskilni. Nokkru réð líka hér um það við- horf að það væri gróft og óviðeig- andi að vera nýtízkulegur. Þess háttar þenkingarmáta hafa hinar ungu prinsessur nútímans löngu losað sig við. Nú er auðveldara að verða sér úti um smekkleg og falleg föt en var fyrir hálfri eða heilli kynslóð, og það kemur kóngafólkinu til góða eins og öðrum. Tízkuvitund og kunnátta á fötum hefur komizt inn fyrir hallarmúrana. Höfum við nokkuð að læra af hinum konunglegu frúm og ung- frúm? Jú, til dæmis að kvöldkápur eru fallegar og hagkvæmar flíkur. Og verði maður að hafa hatt, er bezt að hann sé eins einfaldur í sniði og mögulegt er — sjá Jackie Kennedy! (Hún er að vísu ekki kon- ungborin, en alls staðar er komið fram við hana eins og hún væri það). Og fyrst og fremst að óbrot- in og einlit föt eru smekklegri en þau sem eru skreytt með pífum og rykkingum. Og líka að baðvogin er sá eini vinur, sem alltaf segir sann- leikann og aldrei lætur múta sér. Og svo má bæta við þeim aðdá- unarverða eiginleika, sem drottn- ingum og prinsessum er innprent- aður frá því fyrst er farið að taka af þeim myndir: Verið glaðlegar! En hvað um hina konunglegu herra? Eiga þeir ekki líka að vera augnagaman? Kringumstæðurnar neyða þá til smásmugulegrar ná- kvæmni í klæðaburði. Þegar á þrí- tugsaldrinum sjást þeir varla nema í fötum fyrir opinber tækifæri og með hendurnar fyrir aftan bak. Þegar Margrét Danaprinsessa gifti sig fyrir skemmstu, voru karl- gestirnir svo sem ekkert til að horfa á að undanskildum einum sérvitr- ingi, jarlinum af Lichfield, sem er einn af beztu Ijósmyndurum Eng- lands. Hann mætti í sterkblárri skyrtu og með lillað bindi hafði síða skrautskyrtu og flauelsflugu við smóking, og við sjálfa hjóna- vígsluna var hann í rauðum ein- kennisbúningi hrossvarðliða og með bjarnarskinnshúfu. Sér til mikils harms varð hann að klippa nokkra sentimetra af sínu Ijósgyllta hári til að koma á sig bjarnarskinnshúf- unni. ☆ 35. tbi. VIKAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.