Vikan


Vikan - 05.09.1968, Blaðsíða 17

Vikan - 05.09.1968, Blaðsíða 17
anlega, brjálaða spenna óhemju- legra ástríðna? — Var það ekki? Hún sagði hlýlega: — Þú hef- ur reglulega nautn af tónlist- inni, er það ekki? Það hugsa ég, sagði Robert. — Ég held, að þú hefðir ver- ið miklu hamingjusamari sem tónlistarmaður en sem brjósta- haldaraframleiðandi. — Ónei! sagði Robert með óvæntum ofsa. — Brjóstahaldar- ar eru — ja — þeir eru mikil- vægir. Þú veizt það, Harriet. — Já, ég veit það. Hún lag- færði sinn eiginn, hún hafði far- ið í hann með nokkrum flýti og vonaði að hann sæti ekki þann- ig, að Robert sæi ástæðu til að finna að því. — Miklu mikilvægari, sagði hann, — en allur þorri manna gerir sér grein fyrir. Ég held að þeir geti verið — geti verið mjög mikilvægir fyrir allan hnöttinn. Ég held að ef ég ætti mikla peninga — sand af pen- ingum — veiztu hvað ég myndi þá vilja gera? Harriet kæfði niður geispa. Hún reis á fætur og gekk í átt- ina til dyra, ekki til að binda endi á samræðurnar, heldur til að gefa í skyn, að það væri kom- ið mál til að koma í bólið. Hún hvimaði óákveðið upp eft- ir stiganum, en veitti Robert um leið þá athygli, sem eiginkonu sæmdi. Athyglin brotnaði í tvennt. — Þegar hún leit sem kæruleysis- legast upp eftir stiganum, sá hún beint framan í Ambrose Tuttle í lúgugatinu upp á háaloft. Hann brosti vingjarnlega og bar sig til eins og hann væri að stjórna hljómsveit, með næstum þraut- kroppuðum lærleggnum af lamb- inu; þögulli hljómsveitinni, sem nú olli Robert þvílíkri gremju. Harriet bandaði hendinni reiðilega í áttina til hans. Am- brose yppti öxlum og lét loft- hlerann síga. Hann hlaut að Framhald á bls. 40. 35. tbi. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.