Vikan


Vikan - 05.09.1968, Blaðsíða 5

Vikan - 05.09.1968, Blaðsíða 5
„Ef maður fer i ferðalag, þá verður að klæða sig á hentugan hátt og hugsa fyrst og fremst um, að manni verði ekki kalt," segir Beatrix prinsessa. Þetta mó rétt vera, en fallegur getur slíkur klæðnaður varla talizt. Áður höfðu konunglegar per- sónur það hlutverk með hönd- um, sem kvikmyndaleikarar, sjónvarpsstjörnur og annað þekkt fólk hafa nú tekið við. Þær voru fyrirmyndir fólksins og sköpuðu tízkuna. Nú er hér breyting á orðin, en engu að síður ætlast margir til, að kóngafólkið sé eitthvað til að horfa á.............. Hún reyndi að vera hrífandi, en var hræði- leg í þessum alltof íburðarmiklu fötum, sem hún hafði valið af algeru smekkleysi. Hattarnir sem hún notaði tóku út yfir allt. Þennan harða dóm kvað síðasti sar Rússlands, Nikulás annar, upp um þýzku keisaradrottning- una Agústu Viktoríu. I þeirra tíð var heimurinn yfirfullur af kóng- um og drottningum, og þó heyrði það til kon- unglegum skyldum að bera klæði í stíl við veldi og rfkidæmi landanna. Föt og gimsteinar drottn- ingarinnar voru þannig liður í eins konar upp- lýsingastarfsemi, þótt ekki færu alltaf saman skraut og smekkur. Aður höfðu konunglegar persónur að nokkru það hlutverk með höndum sem kvikmyndaleik- arar, siónvarpsstjörnur og annað þekkt fólk hafa nú tekið við. Þær voru fyrirmyndir fólksins og sköpuðu tízkuna. Nú er hér breyting ó orðin, en engu að síð- ur ætlast margir til að kóngafólkið sé eitthvað tll að horfa á. En er það nokkuð fyrir augað? Hirðir það um hlutverk sitt á þessu sviði? Er það, með út- liti sínu og hótterni, til fyrirmyndar sem amb- assadorar fyrir iðnaðinn heima fyrir? Það er mismunandi eftir hinum ýmsu kon- unglegu fjölskyldum, og yfirleitt mó segja að kynslóðaskipti hafi hér orðið til bóta, eins og ó svo mörgum sviðum öðrum. Taka mó Margrétu Bretaprinsessu sem dæmi um það. Hún er langt fró því að vera nokkuð augnagaman frá náttúrunnar hendi, en hún ger- ir sitt bezta til að bæta um það og tekst það furðanlega,- það er að minnsta kosti reginmunur að sjá hana og móður hennar fyrr meir. Og hollenzku prinsessurnar líta snöggtum betur út en Júlíönu drottningu hefur nokkru sinni tekizt, þótt svo að hún sé ein af ríkustu manneskium í heimi. Og Birgitta Svíaprinsessa er svo áber- andi smekklega klædd að hún þyrfti ekki að vera prinsessa til að vekja athygli. Elísabet ekkiudrottning af Bretlandi þótti ekki sérlega smekkleg í hattavali, en á það ber að líta að ekki er tekið út með sældinni hjá kónga- fólki að velja sér föt. Það þýðir ekkert fyrir það að ætla að klæðast samkvæmt eigin vilja og smekk, hversu fullar sem hendur þess eru af fé. tað þætti bera vott um heldur litla föður- landsást ef til dæmis Elísabet drottning og Mar- grét prinsessa skryppu í nokkurra daga orlof til Parísar og keyptu inn hjá Dior eða Givenchy. Framhald á bls. 37. Kvenfólkið í brezku konungsf jölskyldunni hefur miki'ð dálæti á skrautlegum og óvenjulegum hött- um. Efst er drottningarnióðirin með fjaðrahatt og Margrét prinsessa með Ijósan hatt úr rifsi. Að neð- an er Elísabet drottning og hertogaynjan af Nor- folk. Elísabet er alltaf smekklega klædd nú í seinni tið, en hér áður fyrr var hún hrifnust af alls konar fáfengilegum blúndum og fjöðrum. Efst sjáum við Sonju Haraldsen með húfu frá Nina Ricci. Hún er í grænum, bláum og hvítum lit. Næst kemur Kristín Svíaprin- sessa með smekklega húfu og loks Margrét Englandsprinsessa með nýstárlegt höfuðfat. Margrét Danaprinsessa er miklu betur klædd á síðustu árum, en hún var áður. Ef til vill er það Henrik prins að þakka. Það er ekki ósennilegt að hann hjálpi henni að velja föt, því að sjálfur er hann einstakt snyrti- menni og jafnan smekklega klæddur. Paoia prinsessa er falleg hverju se hvort sem hún er i iburðarmiklum bara i buxum. Hér er hún í glitrand kvæmt stuttu tizkunni. Sokkarnir og urglitrandi alveg eins og kjóllinn. Til vinstri er Sonja Noregsprinsessa. Hún er alltaf smekklega ti Hér er hún í blárri dragt með hvítan hatt með blárri rönd efst. inn er frá Castillo. Að neðan er Snowdon lávarður. Hann er ekkert hræddur við að sig á áberandi hátt. Hér er hann i brúnum frakka og buxur hvítum röndum. Þótt Jacqueline Kennedy sé ekki konung- borin, er hún jafnan talin með kónga- fólkinu, enda fyrrverandi eiginkona æðsta manns auðugasta rikis i heimi. Jacqueline er tilltaf til fyrirmyndar í klæðaburði. 4 VIKAN 35-tbl 35. tbl. yiK/

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.