Vikan - 05.09.1968, Page 12
-------- V
Franski rithöfundurinn Henri René Albert Guy de Maupassant er talinn snjallasti smásagnahöfundur nítjándu aldar. Ein-
faldur stíll og góð uppbygging gera beztu sögur hans að fáguðum listaverkum, enda þótt viðhorf höfundarins mótist jafnan
af kaldhæðni og bölsýni. Á tæpum tólf árum gaf Maupassant út tíu smásagnasöfn. Þrettán beztu smásögur hans hafa verið
gefnar út á ensku undir nafninu The Odd Ones, og hefur sú bók notið mikilla vinsælda.
Guy de Maupassant fæddist 5. ágúst 1850. Hann gerðist skrifstofumaður, en gegndi einnig herþjónustu í franska hernum.
Þegar hann hóf ritstörf, tók hann franska rithöfundinn Gustave Flaubert sér mjög til fyrirmyndar, enda var hann per-
sónulega kunnugur honum. Maupassant fékkst mikið við skriftir milli tvítugs og þrítugs, en var vandlátur og gagnrýninn
á sjálfan sig og jafnan óánægður með áranurinn. Hann hafði skrifað lengi fyrir ruslakörfuná, þegar hann áræddi loks að
birta fyrstu sögur sínar. Þrítugur að aldri gaf hann út fyrstu bók sína. Hún hlaut svo góðar undirtektir, að á sama árinu
gaf hann út tvær bækur til viðbótar, ljóðasafn og leikrit. Auk smásagnanna, sem frægastar eru, samdi hann einnig nokkr-
ar skáldsögur.
Árið 1890 varð hann að hætta að skrifa vegna heilsuleysis. í síðustu verkum hans hafði þess orðið vart, að hann hefði
naumast hemil á tilfinningum sínum. Tveimur árum síðar varð hann geðveikur. Hann lézt á hæli 6. júlí 1893, aðeins 43
ára gamall.
v_____________________________________________________________________________________________________________________________________________________________/
DAG NOKKURN
SMÁSAGA EFTIR GUY DE MAUPASSANT
£G ÞEKKTI HANA STRAX AFTUR, ÁN ÞESS AÐ SJÁ FRAMAN I HANA. ANDLIT HENNAR VAR H
12 VITvAN 35 tbl