Vikan - 05.09.1968, Page 28
EFTIR ELISABETH BERESFORD
\______________________________________________________________________z
Við Bengt vorum búin að
vera gift í hálft ár, þegar
Nornin kom inn í líf okkar.
Það var á hálfsárs brúðkaups-
degi okkar, og ég var að búa
til uppáhaldsmat Bengts í til-
efni dagsins; buff með lauk . . .
Eg var að brúna laukinn og
hljóp við og við út að glugg-
anum, til að anda að mér
fersku lofti. Það er að segja
eins fersku lofti og hægt er
að fá, þegar maður býr við
fjölfarna götu. Mér þ.ykir
steiktur laukur mjög góður
og hefi ekkert á móti lykt-
inni, en í þetta sinn þoldi ég
helzt ekki lyktina, svo ég
stakk höfðinu út um glugg-
ann, eins oft og ég gat. Þess-
vegna var ég komin hálf út
um gluggann og horfði á um-
ferðina, þegar ég heyrði hljóð-
ið.
Þetta var einhverskonar
íllskulegt urr, og við og við
heyrðust háværir hvellir. í
fyrstu hélt ég að þetta væri
fhigvél, svo ég teygði mig
ennþá lengra út um glugg-
ann. Svo sá ég mann á göt-
unni, sem næstum var búinn
að snúa sig úr hálsliðnum til
að sjá bctur. Eg horfði í sömu
átt og hann, og þá kom ég
auga á Nornina. Eg vissi auð-
vitað ekki þá að þetta væri
Nornin, hélt fyrst að þetta
væri einfaldlega gamall bíll,
samsettur úr einhverju af-
gangs járndrasli, og ég ætlaði
að fara að hlæja upphátt,
þegar ég þekkti ökumann-
inn. Hláturinn fraus á vörum
mér, þrátt fyrir hlýtt vor-
kvöldið.
Bengt ríghélt sér í geysi-
stórt stýrið, eins og það væri
björgunarhringur. Hann var
sveittur, óhreinn og úfinn.
Hann ók inn að gangstétt-
inni og þar nam Nornin stað-
ar, með geysilegum hvelli,
rétt eins og hleypt væri af
fallbyssu. Svo varð allt dá-
samlega hljótt. Eina hljóðið
sem heyrðist var skvaldur í
smástrákum, sem höfðu safn-
azt saman við opinn bílinn
og létu í Ijós álit sitt á hon-
um með allskonar skrækjum.
Bengt stökk út úr bílnum,
bókstaflega talað, því það
var greinilegt að hann gat
ekki opnað bílhurðina. Hann
klappaði vélarhlíf Nornarinn-
ar, kom auga á mig í glugg-
anum og veifaði til nn'n.
— Halló, Magga, hvað
finnst þér?
Hann klappaði vélhlífinni
aftur, blíðlega eins og hann
væri að klappa barni og veif-
aði svo aítur til nhn. Það
gat verið að hann hefði fengið
þetta farartæki lánað hjá ein-
hverjum kunningja sínum.
Það gat líka verið að hann
væri að gera þetta að gamni
sínu. I*að var kannski . . . En
auðvitað vissi ég vel allan
tímann að það var ekki svo
vel.
Aður en hann komst alla
leið upp stigann vissi ég
mæta-vel að hann hafði fleygt
á glæ öllu sparifé okkar,
fleygt því á þennan ruslahaug.
— Sæl, ástin mín!
Bengt faðmaði mig svo
fast að sér, að mér lá við
köfnun af olíulyktinni, sem
angaði af fötum hans.
— Sástu? sagði Bengt og
kyssti mig á eyrnasnepilinn.
— M-m.
— Er hann ekki stórkost-
legur? Hefirðu nokkurn tíma
séð annan eins bíl?
— Nei!
— Þetta er . .. . Og hann
romsaði upp úr sér sögu Norn-
arinnar og gleymdi ekki einu
einasta atriði. Hann sagði
líka hvað hann hefði komizt
að góðum kjörum, fengið
hann fyrir ótrúlega lítið verð,
og að hann hefði alltaf lang-
að til að eignast einmitt svona
bíl, hvað það hefði verið ó-
trúlega mikil heppni að hann
skyldi detta niður á þennan
bíl, og hve prýðilegur náungi
hefði selt honum bílinn.
Hann hélt áfram þangað
til ég varð að rífa mig af
honum og hlaupa út að glugg-
anum.
— Þú ert hriíin af hon-
um, er það ekki?
Ég kyngdi og sneri mér
svo að honum. Hann var eins
og sinástrákur, sem búinn er
að gera eitthvert skannnar-
strik.
— Já, það er ég, sagði ég
og brast í grát.
— Magga, Magga mín,
sagði Bengt, og á næsta
augnabliki sat ég í fangi hans
á gamla sóffanum, sem við
fengum eftir Gretu frænku.
Það er Ijómandi fallegur sóffi
og ágætt að sitja í honum,
ef maður veit nákvæmlega
hvar ónýtu fjaðrirnar eru.
— En hvað er þá að þér?
sagði Bengt og reyndi að
þurrka af mér tárin með
vasaklútnum sínum, sem líka
var gegnsýrður af bensín og
olíulykt.
— Það er ekki neitt, sagði
ég.
Bengt andvarpaði.
— Ef þér lízt ekki á bíl-
inn, þá get ég strax losað mig
við hann, sagði hann.
Það er líklegt að þá hafi
tjaldið verið dregið frá, fyrir
öðrum þætti í hjónabandi
okkar. Það var eins og ég
hefði þroskazt heilmikið á
þessum augnablikum. Eg
skildi að Nornin var honum
mikils virði, og þótt ég hat-
aði hana yrði ég að látást
vera hrifin af henni.
— Ég er víst bara svolítið
þreytt, sagði ég og reyndi að
vera glaðleg á svipinn.
— Þú ert bara of mikið
inni, þú þarft að fá frískt
loft, sagði Bengt. — Þetta
verður allt í lagi núna, þeg-
ar við höfum eignazt bíl. Nú
getum við farið í bíltúra um
helgar.
Það var eins og liann væri
að tala um ferðalög milli
Ianda, en ekki skottúra rétt
út fyrir bæinn, ef Nornin
kæmist þá nokkurn tíma út
fyrir bæinn!
— Astin mín, hvíslaði
Sambúð okkar Bengts var ekki eins einlæg, ejtir að
hún kom inn í líf okkar. Ef þetta hefði aðeins verið
önnur kona, þá hefði ég kannski vitað hvernig ég œtti
að snúast gegn þessu, en hvernig á eiginkona að berjast
við þúsund kíló af járnarusli?
28 VIKAN 35' tbl-