Vikan - 05.09.1968, Page 47
Eins og sjá má á þessari mynd er pilsasíddin af
öilum gerðum. 1. Jack Delahaye hjá Heim gengur
einna lengst í síddinni. Kápan er úr svörtu flau-
eli, reyndar ætluð til kvöldnota og þess vegna síð-
ari. Kápan hefur Iínu síðu jakkanna, skorin sundur
á þeim stað, en víddin byrjar þar fyrir ncðan. 2.
Þessi dragt er frá sama tízkuteiknara, blússusnið á
jakka, en hann er í túnikulengd, hnepptur á hlið.
Rúllukraginn ómissandi er á dragtinni, Garbohatt-
ur notaður við og svört krókódílastígvél. 3. Slopp-
kápa, scm töluvert var um, einnig frá sama teikn-
ara, sem var all atkvæðamikill í haust. Kápan hvít,
cn pokabuxurnar, sem stungið er niður í meðalliá
stígvcl, cru úr súkkulaðibrúnu- og ljósbeige tweed,
I
sami brúni litur á rúllukragapeysu. Kósakkahattur
úr refaskinni. 4. Patou er enn með háa rnittið og
telpulegu línuna, en þessi kjóll er úr sterkrauðu
silki og hnepptur á hlið. Hár kragi, eins og hjá
flestum, rykkt pils, og við er notuð hliðartaska,
en þær voru aftur áberandi. Rúskinnskór með
bandi upp fyrir ökkla. 5. Lanvin sýnir þarna múffu
úr svörtu refaskinni með gylltri snúru (hugsið þið
ekki gott til vetrarins?), kápan er úr þéttu, svörtu
efni með gylltum hnöppum, svartur leðurhjálmur
við. 6. Nina Ricci sýnii rússneska fiðlaraskyrtu úr
hvítu satíni, sama einkennið þar og annars staðar,
hár kragi og túníkusídd. Mitti tekið saman með
silfurkeðju og hangandi hjarta. Svartar satínbux-
ur, sein víkka aðeins að neðan, en yfir allt er
ermalaus caftanjakki, síður úr hvítu satíni, silfur-
útsaumaður. 7. Sama tízkuhús sýnir gráa flannel-
dragt með síðum jakka með rennilás, stóra vasa,
breitt belti, leðurhjálm. Svört rúllukragapeysa inn-
an undir. 8. Rauð- og hvítröndótt túníka, rauðar,
þröngar buxur og stígvél upp á læri. Langur tref-
ill með kögri vafinn um liöfuð. Tízkuhús Farraud.
9. Svartur flauelskjóll frá sama fyrirtæki, vítt pils
og leggingabönd á ermum, liálsmáli og faldi og þvert
yfir kjólinn. Skórnir úr lakki með plastskúf ofan á.
Courréges er nú allt-
af samur við sig,
eins og sjá má af
buxnadragtinni
lengst t. v. Hún er
úr hvítu jersey, en
stígvélin eru líka
hvít og ná næstum
upp að buxnaskálm-
um. Á myndinni hér
nær er aftur venju-
legri klæðnaður úr
hvítri ull; reyndar
stendur að jakkinn
og pilsið sé utan yfir
grófa, hvíta sokka
með rúllukragaháls-
máli! Það hlýtur að
vera töluvert verk,
að fara á afvikinn
stað, ef allt þetta er
í heilu lagi! Meðal-
há, hvít stígvél. Til
hægri er svo svart-
Dg hvítyrjótt dragt
frá Ferraud, vítt
pils, ermalaus jakki,
svört, langerma jers-
syskyrta undir.
Rauðar sokkabuxur
)g stígvél.
St. Laurent var ekki sá eini, sem var í þungu
skapi í París þessa tízkusýningardaga, en
hann gerði sér hreinlega mat úr því. Flestar
sýningarstúlkurnar báru svört sorgarbönd
fram á enni, eins og mótmælagöngumenn á
Grosvenor Square. Hárgreiðslan á mynd nr.
2 átti að vera austræn og minna á Vietnam,
hárið er þarna greitt slétt aftur og vafið á
langan sívalning í hnakka. 1. Leðurdragt í
túníkustíl með kögri. 2. Buxnadragt með há-
urn kraga, stuttum ermum og uppbrotum á
buxum. 3. Grá jerseydragt. 4. Síð kvöld-
kápa úr lirokknu lambskinni með háum
kraga.
35. tbi. VIKAN 47