Vikan - 21.11.1968, Page 3
r
4
K
VIKU BROS
— En mamma, ég fékk hann
gefins!
— Það getur verið að þetta
sé ekki eins gómsætt og töfl-
urnar mínar, en þú færð ekk-
ert annað!
H r_ _oc 'Æ
“~f ' !M
3icz: LZZJC M w.
*
J.
— Ég kemst ekki burt fyrr en
málningin er þornuð!
IÞESSARIVIKU
POSTURINN ......................... Bls. 4
DAGLEGT HEILSUFAR ................. BIs. 6
MIG DREYMDI ................... Bls. 7
PALLADÓMAR UM ALÞINGISMENN......... Bls. 8
FJÖLDAGRAFIR OG ÞRÆLAHALD ......... Bls. 10
KRÓKUR Á MÓTI BRAGÐI .............. Bls. 12
SÆLURÍKI FRÚ BLOSSOM............... Bls. 14
ONASSIS ........................... Bls. 16
EFTIR EYRANU....................... Bls. 18
SAGA FORSYTEÆTTARINNAR ............ Bls. 20
GLASGOW - GLÆPAHREIÐUR NORÐUR-EVRÓPU Bls. 22
SAGA BÍTLANNA ..................... Bls. 24
ALÍSA ............................. Bls. 29
VIKAN OG HEIMILIÐ ................. Bls. 46
SAGT UM ÁSTINA:
★ Tvennt er það í lífinu, sem ekki er með nokkru móti hægt
að leyna: ást og kvef.
★ Aðeins ein regla gildir, þegar ástin er annars vegar: að
engin regla er til.
VÍSUR VIKUNNAR:
Það vilja margir láta ljós sitt skína
og leita jafnvel fanga um himingeiminn
og þeir sem tryggja í Wall Street velferð sína
völdu Nixon til að frelsa heiminn.
En áfram heldur heimsins raunasaga
með höpp og ólán jafnt í sókn og vörnum
þó ala sumir draum um betri daga
og dætur Lyndons hlaða niður börnum.
FORSÍÐAN:
Smurt brauð er alltaf vinsælt, sérstaklega þegar samkvæmi
eru haldin í heimahúsum. í seinni tíð leggja margar húsmæð-
ur meiri áherzlu á það en blessaðar kökurnar. Á forsíðunni
sjáum við að þessu sinni fjórtán mismunandi tegundir af
smurðu brauði. Nánar er sagt frá því í þættinum Vikan og
heimilið inni í blaðinu.
VIKAN — ÚTGEFANDI: IIILMIR HF.
Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaða-
maður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson.
Dreifing: Óskar Karlsson. Auglýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 —
35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 40.00. Áskriftarverð er 400 kr.
ársfjórðungslega, eða 750 kr. misserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrir-
fram. Gjalddagar eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst.
I NflESTU
VIKU
Óðum líður að jólum, og eitt
hið fyrsta sem húsmæðurnar
hugsa um í sambandi við þau
er jólabaksturinn. í næsta
blaði birtum við á fjórum síð-
um kökuuppskriftir ýmiss
konar, sem vonandi verða öll-
um húsmæðrum kærkomnar.
Fyrir jólin ár hvert frum-
sýnir Þjóðleikhúsið nýtt
barnaleikrit. Kardimommu-
bærinn hefur náð mestum
vinsældum af öllum barna-
leikritum hér á landi, en það
er eins og kunnugt er eftir
Norðmanninn Thorbjörn Egn-
er. Barnaleikrit Þjóðleikhúss-
ins í ár er einmitt nýtt leikrit
eftir Egner, sem heitir á
norskunni Musikanterne
kommer til byen, en verður
líklega kallað á íslenzku Sí-
kátir söngvarar. Af núlifandi
höfundum hefur fáum tekizt
betur en Egner að skrifa fyrir
börn. Hann var upphaflega
auglýsingateiknari, en réðist
síðan til norska útvarpsins og
vann við barnatímann þar.
Upp úr því fór hann að
skrifa sögur og þætti fyrir
börn, þar á meðal Karíus og
Baktus, sem margir kannast
við. — I næsta blaði segjum
við nánar frá Egner og nýja
leikritinu hans.
í þættinum í sjónmáli er
sagt frá dagskrá sjónvarpsins
fyrsta kvöldið, sem sjónvarp-
ið sést á Akureyri og víðar
um Norðurland. Sú dagskrá
verður nálega öll helguð
Norðlendingum.
Og ekki má gleyma fram-
haldsefni blaðsins: greinunum
um Onassis og Bítlana og
hinni vinsælu Sögu Forsyte-
ættarinnar.
46. tbi. VIKAN 3