Vikan - 21.11.1968, Page 5
vera „andlega krumpaðar“
þótt þið eigið við tíma-
bundin, sálræn vandamál
að stríða. En hér kemur þá
stóridómur um sálarhróin
ykkar:
'GÓGÓ: Sálarlíf þitt er
tiltölulega einfalt og ætti
ekki að þurfa að vera ýkja
flækt. Þú ert viðkvæm og
mjög kvenleg að eðlisfari,
glaðlynd og skemmtana-
gjörn, en skortir enn stað-
festu og viljastyrk. Þú ert
áhrifagjörn og þarft að
varast að lenda í slæmum
félagsskap. Þú ert sam-
vizkusöm og verður að
gæta þess vel að láta ekki
leiða þig út í neitt, sem þú
veizt innst inni að er sjálfri
þér ósamboðið.
GÍGI: Sálarlíf þitt er
miklu flóknara en vinkonu
þinnar. Þú ert dul í skapi
og átt erfitt með að tjá hug
þinn. Þú ert fjörmikil á
yfirborðinu og hefur gam-
an af að skemmta þér, en
framkoma þín gefur sjald-
an rétta hugmynd um
raunverulega liðan þína.
Þú ert listræn að eðlisfari
og munt líklega finna
mikla fróun í að lesa góðar
bækur og fást við listsköp-
un af einhverju tagi.
LEIT AÐ FRAMHALDI
Þú Póstur!
Núna er ég alveg fjúk-
andi vond út í Vikuna.
Þannig liggur í því, að ég
les allt ætilegt í blaðinu og
má leita að framhaldi
á hverri blaðsíðu, því að
enda þótt standi, að fram-
hald eigi að vera á blaðsíðu
þetta og hitt, er það alveg
sérstakt tilfelli ef það pass-
ar. Þannig að þegar ég finn
loksins framhaldið, er ég
alveg búin að gleyma byrj-
inni og má gjöra svo vel og
byrja upp á nýtt. Finnst
þér þetta hægt?
Fyrir utan þennan mínus
er þetta alveg stórkostlegt
blað. Sem stendur freistar
Forsyte mín mest. En smá-
sögurnar geta oft verið anzi
snjallar, svo ég minnist nú
ekki á Póstinn. Hann er
glettilega góður.
Punktur og basta.
Nasasýna.
Það kann að koma fyrir,
eins og raunar í flestum
blöðum, að framhald sé
ekki á réttum stað. En að
það sé „alveg sérstakt til-
felli ef það passar“ — því
neitum við harðlega. Við
biðjum „Nasasýnu“. (hvað
þýðir þetta ágæta nafn,
með leyfi?) að skrifa okk-
ur aftur og tilgreina dæmi
um framhöld á skökkum
stað. Að öðru leyti þökkum
við kærlega fyrir hólið.
í FULLRI ALVÖRU
Kæri Póstur!
Það er nú smátt og smátt
að koma í ljós, að hérumbil
allir eru sammála um, að
dagskrá sjónvarpsins hafi
hrakað svo mjög, að varla
sé horfandi á hana lengur.
í fyrravetur gat ég horft á
stjónvarpið næstum á
hverju einasta kvöldi og
hafði alltaf eitthvað gam-
an af. Nú er ekkert sjá-
andi lengur, nema Saga
Forsyteættarinnar. Þótt
hún sé góð nægir hún alls
ekki til þess að bera uppi
dagskrár allrar vikunnar.
Þú varst um daginn að
leggja til, að aðdáendur
Dýrlingsins og Harðjaxls-
ins söfnuðust saman í mót-
mælaskyni fyrir framan
sjónvarpið. Þetta átti víst
að vera eitthvað fyndið hjá
þér. En ég segi í fullri al-
vöru, og mæli áreiðanlega
fyrir munn fjöldans, - að
ef dagskráin batnar ekki,
er vissulega ástæða til að
grípa til róttækra aðgerða.
Það er dýrt að kaupa sér
sjónvarpstæki og það mun-
ar um afnotagjaldið á þess-
um síðustu og verstu hörm-
ungartímum.
Með þökk fyrir birting-
una.
Ein bálreið
heimasetukona.
P.S. Meira að segja barna-
tíminn er ekki lengur svip-
ur hjá sjón.
Þetta er aðeins eitt bréf
af mörgum, þar sem les-
endur kvarta yfir dagskrá
sjónvarpsins — en vel að
merkja það harðorðasta.
HINIR SÍÐUSTU
VERÐA FYRSTIR
Kæra Vika!
Hvernig á ég að venja
manninn minn af þeim
óvana að fara alltaf lang
síðastur úr öllum sam-
kvæmum?
Með fyrirfram þökk.
Nanna.
Með því að eiga alltaf
nóg vín heima og kaupa
þér nýjan náttkjól!
HOOVER
KEYMATIC DE LUX 91
Nýjasta gerð, sjálfvirk þvottavél með
16 þvottaaðferðum
Hoover þvottavélar 8 gerðir
Hoover kæliskópar 5 gerðir
Hoover ryksugur 8 gerðir
Hoover bónvélar 2 gerðir
Hoover rafmagnsofnar 3 gerðir
Hoover straujórn 3 gerðir
Hoover uppþvottavélar
Hoover hórþurrkur
Hoover hrærivélar
Hoover teppaburstar
Hoover eldavélahimnar
Hoover vörurnar fóst í Hoover-kjallaranum, Austurstræti 17, Reykjavík,
sími 14376.
Einnig víða i verzlunum úti á landi.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta að Hverfisgötu 72, sími 20670.
Einkaumboð:
MAGNÚS KJARAN
Umboðs- & heildverzlun
46. tbl.
VIKAN 5