Vikan - 21.11.1968, Qupperneq 18
Ólafur Gaukur hefur nú um nokkurt skeið verið með
hljómsveit sína á Hótel Borg og gert þar lukku, eins
og vænta mátti, en hljómsveitin hefur verið ráðin til
að lcika á Borginni í vetur. Engar breytingar hafa
orðið á hljómsveitinni og Iagavalið er enn sem fyrr
rrtiðað við, að eitíhvað sé fyrir alla. Á myndinni sjá-
um við, frá vinstri talið, Svanhildi, Ólaf Gauk, Andrés
Ingólfsson, Karl Möller, Pál Valgeirsson og Rúnar
Gunnarsson.
Það hallar undan fæti fyrir Carnaby Street, þeirri
frægu Popgötu í London. Færri og færri leggja leið
sína Jjangað til innkaupa og það þykir ekki lengur
verulega fínt að fara þangað. Elísabet II drottning
hefur af þessu áhyggjur þungar, það lítur nefnilega
út fvrir að hún niuni tapa á þessu drjúgum skildingi.
Hún var viss um, að Carnaby Street myndi gefa
ríkulega af sér, svo hún lét hina konunglegu fjár-
málamenn kaupa nokkur hús við títtnefnda götu. Nú
hrakar verðmæti þessara húsa dag frá degi og aum-
ingja Elísábet getur ekki einu sinni selt. Hvað er
nú til ráða?
MARGI ER SKRÝTIB í KÝRHAUSNUM
Það hefur tæpast farið fram hjá þeim, sem fylgzt liafa með
ferli Bítlanna, að hin nýja vinkona John Lennon, Yoko Ono
hin japanska, er að mörgu leyti mjög sérstæður karakter. Hún
hefur hneykslað marga með furðulegu hátterni sínu, og hér
birtum við myndir, sem renna stoðum undir það hald rnanna,
að hún sé ekki með öllum rnjalla. Hér situr hún uppi á leik-
sviði, hreyfingarlaus, og býður þeim er vilja, að koma til sín
og klippa utan af sér spjarirnar. Endar leikurinn á þann veg,
að hún situr berstrípuð eftir frannni fyrir furðu lostnum áhorf-
endurn.
V________________;____________________________________________________/
Slönguskinnsjakkinn og bassatroinman eru kennimerki Don Partridge. Hvort-
tveggja jafn gamalt og slitið.
DON PARTilDGE
FÉLAGI NR. 16 í SAMTÖKUM GÖTUSÖNGVARA
Hann er félagi í U.B.S.P. (The Union of Buskers and Street Players). Á
íslenzku: Samtök farand- og götusöngvara. Hann er félagi nr. 16, og hann
hefur þrjár reglur að fara eftir:
1) Það eru engar reglur til.
2) Allir götusöngvarar eru manneskjur og eiga að koma fram sem slíkar.
3) Allir götusöngvarar verða að geta drukkið 1 Htra af bjór á skemmri
tíma en 1 mínútu.
Don Partridge er virtur félagi í U.B.S.P. Hann hlítir reglum samtakanna
og greiðir sín félagsgjöld. Hann segir:
— Fólk heldur, að ég syngi á götunni vegna þess eins, að ég sé latur og
18 VIKAN 46 tbl