Vikan - 21.11.1968, Page 23
annar þeirra bút af reiðhjólskeðju
upp úr vasa sínum og sló henni
framan í barnið. Piltarnir hlupu síð-
an inn I næstu hliðargötu og sóst
ekki tangur eða tetur af þeim þeg-
ar lögreglan kom á vettvang.
Farið var með barnið á sjúkra-
hús og þurfti að sauma sár þess
saman með fimmtón sporum.
Vopn bófanna eru margs konar.
Erlendur maður talaði við sextón
ára dreng, sem hafði að vopni flug-
beittan hníf með fjörutíu og fimm
sentimetra löngu blaði. Hann sagð-
ist aldrei hafa drepið neinn, en
hins vegar beitt hnífnum í sjálfs-
vörn. Ég er of ungur til að deyja,
sagði hann.
Þetta gæti verið replikka úr
glæpamynd, en er þess í stað blá-
kaldur veruleiki. Glasgow lifir í
stöðugri skelfingu við samvizku-
lausa táninga, sem í rauninni ráða
lögum og lofum í borginni. Um
hverja helgi þarf sjúkrahúsið í
Glasgow, The Royal Infamery,
fimmtíu lítra blóðs handa fólki með
sár eftir hnífa, sem tínt er upp af
götunum.
Um hverja helgi misþyrmir
glæpalýðurinn og særir fimmtán til
tuttugu og fimm saklausar mann-
eskjur. Stundum rýkur sú tala upp
í fimmtíu. Venjulega eru það hníf-
ar unglinganna sem hlut eiga að
máli.
Táningabófarnir hafa með sér
klikur, sem heita nöfnum eins og
The Tongs, The Mini Torch og The
Young Derry. Hver þeirra hefur
sitt eigið hverfi til umráða. Ef ein-
hver úr einni klíkunni lætur sjá sig
á yfirráðasvæði annarrar, á hann
von á því versta.
— Ég fer aldrei fet án þess að
taka með mér hnífinn. Og ég hef
sjálfur legið á sjúkrahúsi eftir að
hafa fengið hníf ( kviðinn. En ég
sagði lögreglunni að ég hefði dott-
ið á minn eigin hníf, sagði fimmtán
ára liðsmaður úr The Young Derry.
Mikill hluti miðborgar Glasgow
og sum úthverfanna eru skugga-
hverfi sem eru meðal þeirra verstu
í Evrópu. Fimm til fimmtán persón-
ur búa í flestum íbúðanna, stund-
um meira að segja í einu herbergi.
I bakgörðunum eru haugar af
drasli og úrgangi, og húsveggirnir
eru kolsvartir af sóti úr verksmiðju-
reykháfunum.
Og á götunum lifa menn eftir
e'gin lögum. Bófaflokkarnir berjast
um áhrifasvæði, drottna á krám og
dansstöðum.
— Bófaflokkarnir ( Glasgow hafa
sínar erfðavenjur, segir aðstoðar-
lögreglustjórinn í Glasgow, W. A.
Rathcliffe. — Þeir rekja rætur sínar
allt til fyrri heimsstyrjaldar. En með-
limir bófaflokkanna hafa aldrei ver-
ið eins ungir og nú, og þeir hafa
ekki fyrr stundað að vaða út á göt-
ur og slasa saklaust og óviðkom-
andi fólk. Stríð milli bófaflokkanna
sjálfra eru engin ný bóla fyrir okk-
ur, og lengstaf skáru þeir ekki eða
ristu nokkra nema hvern annan.
Ekki saklausa vegfarendur. En nú
reyna klíkurnar meira en áður að
halda frið sín á milli. En til að sýna
og sanna sjálfum sér og öðrum að
þeir séu ekki það sem kallað er
„kjúklingar", ráðast bófarnir á
þann fyrsta sem fyrir verður. Ur
þessu verða stundum morð, og oft
slasast fórnardýrin svo að þau bera
þess ekki bætur alla ævi.
Þessi stöðuga sláturtíð er orðin
umræðuefni manna og hneykslunar-
hella um allt Bretland. Einn þekkt-
asti söngvari landsins, Frankie
Vaughan, hefur boðizt til að miðla
málum milli glæpaflokkanna og fá
þá til að afhenda lögreglunni vopn
sín.
Ekki finnst öllum jafnmikið til
um tilboð þetta. Lögreglan í Glas-
gow hefur marglofað bófunum sak-
aruppgjöf, ef þeir afhentu vopn
sín. En lögreglan segir: Við slík
tækifæri afhenda krakkarnir aðeins
tiltölulega ómerkileg áhöld, hjól-
keðjur, smáhnífa, ryðguð sverð og
loftbyssur. Bófaflokkarnir halda
eftir hættulegustu vopnunum.
— Við náum meira magni vopna
í venjulegri húsrannsókn en sakar-
uppgjöf, segir Rathcliffe lögreglu-
stjóri. — Og bófaflokkarnir vilja
bara auglýsa sig. Þeir þekkja vald
sitt og vita hvernig á að nota það.
Dennis Young, sextán ára með-
limur í The Mini Torch, segir: — Við
síðustu sakaruppgjöf afhenti ég öll
vopn sem ég hafði heima. En auð-
vitað getur hugsazt að ég geymi
vopn annars staðar. Ef ég afvopn-
aði mig gersamlega lifði ég ekki til
næsta dags.
Það þarf ekki annað en að líta í
skozku dagblöðin til að sjá hvílík-
ur háskastaður Glasgow er árið
1968. I einu mánudagsblaðinu gat
að líta eftirfarandi lista:
Patrick McGill, tuttugu og fimm
ára, varð fyrir árás utan við krá.
Hann fékk margar hnífstungur í
kviðinn og andlitið. Læknarnir saum-
uðu andlitsáverka hans saman með
þrjátíu og sex sporum. Kviðsárin
halda honum enn á sjúkrahúsi.
Geoffrey Howart, þrjátíu og átta
ára, fannst á götu með höfuðið al-
blóðugt. Það þurfti fimmtíu og sex
spor til að rimpa saman á honum
andlitið. Þar að auki kom brestur
í höfuðkúpuna.
James Ballantyne, tuttugu og
eins árs, reikaði alvarlega særður
inn á sjúkrahús í Glasgow. Þrjátíu
og tvö spor þurfti til að sauma sam-
an höfuðsár hans. Tveir fimmtán ára
piltar höfðu ráðizt á hann.
Andrew Brady, tuttugu og eins
Framhald á bls. 43
46. tbi. VIKAN 23