Vikan


Vikan - 04.06.1970, Side 30

Vikan - 04.06.1970, Side 30
Spennandi framhaldssaga Ævintýri á Spáni Eftir Jan Anderson 3. hluti Tveir menn úr ríkislögreglunni voru eflaust að leita að karlmanni og tveim konum. Þessvegna hafði Desmond dreift okkur.... Er ég var búinn að fá nóg af að horfa út um gluggann, sá ég, að Anna hafði skipt um rúm, og þá sá ég, að hitt hlyti að vera þægilegra. Eg skipti um kjól og hrukkaði ennið við tilhugsunina um Desmond. Ég gat vel hugsað mér, að enskan hans væri ekki sem allra réttust. Það var eins og hann væri ekki alveg öruggur með sjálfan sig að því leyti. Að tala við Desmond var eins og að tala við vel uppalinn útlend- ing, en ekki Irlending, eins cg þann, sem ég hafði einu sinni kynnst. Þegar hann fór aftur til írlands, hafði hann neyðst til að læra móðurmál sitt aftur. 4. KAFLI „Hafi Valencia verið fræg fyrir nokkuð, hlaut ástæðan að vera appels- ínurnar ellegar dómkirkjan," sagði Desmond gamansamur. „I borgara- styrjöldinni notuðu hægrisinnarnir dómkirkjuna sem geymslu fyrir bíla sína og skotfæri, töldu að kirkjan yrði ekki fyrir skothríð. Og það reynd- ist líka rétt. En sjálfir skemmdu þeir hana. Ég skal spyrja prestinn, hvort við megum skoða guðshúsið. Hér er geymdur Santo Caliz, — hinn heilagi Gral." Hann brosti. „En það vita ekki allir, enda er hann umdeildur. Það er til leiðbeiningabæklingur á ensku. Ég skal biðja prestinn að gefa ykkur sinn hvorri sem minjagrip." Anna virtist hrifin af þessumu upplýsingum og mælti: „Hinn heilagi Gral. Attu við, að bikarinn, sem Jesús drakk úr við síðustu kvöldmáltíð- ina sé hér niðurkominn? Bikarinn, sem blóðið frá krossinum draup í?" „Já," svaraði Desmond. „En hérna kemur presturinn og get ég spurt hann." Ekki varð ég neitt hrifin af dómkirkjunni. Hún liktist einna helzt tómri hlöðu, og var það sjálfsagt sök þeirra, sem athafnað höfðu sig þar í borgarastyrjöldi'nni. Ritlingurinn, sem Desmond útvegaði okkur, var skrifaður á spænsku og slæmri ensku. Hinn heilagi Gral, var talsvert skreyttur og því ótrúlegt, að það gæti verið bikarinn, sem Kristur drakk úr. En bikar þessi minnti talsvert á þann, sem Leonardo de Vinci sýndi á málverki sínu af síðustu kvöldmáltíðinni. Þá er við komum út úr kirkjunni, sagði Anna: „Hvað nú?" „Ég vildi gjarna sjá málverkasafn," svaraði ég. „Hef heyrt að þau séu mjög góð hér." „Hefurðu áhuga fyrir listum?" spurði Desmond. „Ég átti oft erfitt með að draga hana út úr söfnunum í Italíu," greip Anna fram í. „Það eru tvö söfn í Valencia, og ég mæli með Muso Provincial de Bellas Artes. Þar eru verk eftir Goya, Ribera og Velasquez. Á ég að ná í leigubíl?" „Ekki vil ég eyða góðum sólardegi í að glápa á gömul málverk með Lísu", sagði Anna á bragði. „Fékk nóg af því í Ítalíu. Heldur vil ég skoða búðir eða annað skemmtilegt. En hvað finnst þér, Desmond? Ertu með, Lísa? Án túlks er ég alveg hjálparlaus í búðunum." Desmond horfði til skiptis á okkur stöllurnar meðan hún masaði. „Ég held við tökum bíl og hleypum Lísu út við safnið og tökum hana aftur á heimleiðinni," svaraði Desmond. „Nei, við tökum tvo bíla og ég segi bílstjóranum, hvert fara skal. Svo sækjum við þig Desmond leiddi okkur nú hvora við sína hlið að leigubíl og gaf öðr- um merki. „Eigum við að segja klukkan fimm?" spurði hann. „Þá höfum við t'ma til að fá okkur eitthvað að drekka fyrir kvöldmat." Ég ætlaði að andmæla, en áður en mig varði var hann búinn að koma mér inn í bílinn og loka og borga bílstjóranum. Að svo búnu hvarf hann með Onnu. Bíllinn ók undir eins burt með mig. Mér rétt gafst ráðrúm til að sjá Desmond flýta sér að vísa Önnu inn í hinn bílinn. Og í sömu andránni sá ég tvo menn úr ríkislögreglunni. Þeir gengu hægt í áttina að dómkirkj- unni, og það glampaði á rifflana. Einmitt Desmond hafði þá séð menn þessa, og þess vegna flýtt sé' svona óskaplega að komast burt. Ég brosti með sjálfri mér. Þeir voru sjálfsagt að leita að manni og tveim konum saman. Þess vegna hafði Desmond dreift okkur. En hann hafði valið Önnu handa sér í listasafninu gleymdi ég þessum hugsunum við að sökkva mér niður myndir eftir Goya. Yfir henni var kynleg stemning. Svo vissi ég ekki fyrri til en ég heyrði sagt: „Hvað sagði ég ekki? Auð- vitað hefur hún setið hér síðasta klukkutímann." Þetta var rödd Önnu. Desmond stóð við hlið hennar með fangið fullt af pinklum. „Lísa er fyrsti kvenmaðurinn, sem ég hef vitað til að dáðist að Goya," sagði hann. „En kvenfólkið getur líka haft gaman að því óhugnanlega. Hafið þið nokkurntíma horft á nautaat? Ég skal koma ykk- ur í kynni við þann leik í Madrid." Ég hristi höfuðið. „Nei, takk fyrir, Desmond. Það er ekki fyrir mig." „Nú, en ég hef séð bandarískar konur hafa gaman af hnefaleika- keppnum, og er það þó blóðugt sport." „Þetta á ekki við allar bandarískar konur!" var ég fljét til að svara. Hann hló. „Það er satt. Alveg eins og sumar spænskar konur eru englar. En flestar þeirra eru það sannarlega ekki." „Ef þú átt við, að þær séu afbrýðisamar og eigingjarnar, þá er það rétt hiá þér," svaraði ég. „Já, auðvitað." Hann gekk móti útganginum. „Þær gera allt til að hefna sín, ef elskhuginn svíkur þær. Menn hafa verið drepnir af þeirri ástæðu." „Og konur líka," bætti Anna við. „Eins og með morðið í Barcelóna, sem við heyrðum um í útvarpinu." Hann leit á Önnu og svaraði með hægð: Máske. Hafið þið nokkuð heyrt meira síðan? Jæja, við skulum annars gleyma því." Anna hristi höfuðið. „Nei, þú ráðlagðir okkur að hlusta ekki á Gíbraltar- stöðina. Við höfum ekkert hlustað á útvarp síðan. En hvert eigum við nú að fara?" Hann svaraði brosandi: „Það er „Bodega" hér í nágrenninu. Ég hygg það sé okkur að skapi. Þangað koma margir ferðamenn." Jú, þetta var snoturlegasti staður með tónlist og sígaunadönsurum. Og þar var mergð af íerðamönnum. Maturinn var líka furðugóður. Við urðum ásátt um að vera um nóttina í Valencia og halda áfram daginn eftir. Anna 30 VIKAN ^3-tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.