Vikan


Vikan - 27.08.1970, Side 7

Vikan - 27.08.1970, Side 7
an innbyrðis, en þar sem mikið keppnisskap fylgir merki þessu, getur það stundum farið út í öfgar, þegar tveir úr því leggja saman. Hann var mér ótrúr Kópavogi, 10/8 ‘70. Dásamlegi Póstur! Ég ætla loksins að láta verða af því að skrifa þér og senda bréfið, en öll bréfin sem ég byrja á enda í ruslafötunni minni. — Jæja, ég var með strák sem ég er agalega hrifin af, og við vor- um voða happy saman. Svo eitt skipti er ég talaði við hann, þá sagði hann við mig hvort það væri ekki bezt að við hættum að vera saman, því að hann hefði verið mér ótrúr. Ég er alveg að deyja, ég er svo hrifin af honum. Ég veit að hann er hrifinn af mér. Getur það verið að hann hafi sagt mér upp af því að ég lofaði honum ekki að lifa með mér? Getur þú nú, Póstur minn, hjálpað mér eins og mörgum öðrum. Vonast eftir að sjá þetta birt en ekki finna það á haugunum. Hvernig er skriftin og stafsetn- ingin? Virðingarfyllst, ein í ástarsorg. Það getur svo sem meira en ver- ið að hann hafi hætt við þig vegna þess að þú vilt ekki „lifa“ með honum; það vantar ekki að þeir séu margir þannig. En um það getum við að vísu ekkert fullyrt, þar eð ekkert í bréfi þínu gefur neina vísbendingu um hvernig persónuleika eða viðhorf þessi vinur þinn hefur til að bera. En ertu alveg viss um að hann sé ennþá verulega hrifinn af þér? Il.eldur ólíklegt er að hann hefði slitið sambandi ykkar ef hann væri það. Ráð- Iegast mundi fyrir þig að bíða aðcins og sjá hvað setur; hafi hann raunverulega áhuga á þér enn, ætti varla að líða mjög iangur tími áður en hann hefur samband við þig aftur, ekki sízt þar sem hann hlýtur að vita að þú ert hrifin af honum. Bæði í skrift og stafsetningu áttu vonandi eftir að taka veru- legum framförum. Ekki efni á að lifa Kæra Vika! • Beztu þakkir fyrir allt gam- alt og gott, til dæmis greinina „í fullri alvöru“ um mengunina, sem kom í blaðinu sem ég var rétt að fá í hendurnar. Það er svo sannarlega ekki hægt að út- mála þann voða nógu sterkum litum og nógu oft, svo skelfileg- ur er hann, eins og daglegar fréttir utan úr heimi bera með sér. í mestu stórborgum heims, þar sem ástandið er verst, er fólk næstum hætt að geta dreg- ið andann og er þegar farið að veikjast í stórum stíl. Og í sjón- varpinu var nýlega þáttur um eitt stærsta stöðuvatn í Banda- ríkjunum, sem nú er ekkert ann- að en dauður drullupollur út af mengun, en var áður fullt af fiski og svo tært að hægt var að drekka það, en það er heldur sjaldgæft um vatn erlendis, eins og þeir sem verið hafa þar á ferðalagi kannast við. Og ennþá er ekki hægt að sjá að neitt al- varlegt sé verið að gera til að hindra þessi ósköp, það er sagt að þetta sé svo dýrt að erfitt sé að ráða við það. Það liggur því við að segja megi að mannkynið hafi ekki lengur efni á því að lifa. ísland er eitt þeirra landa heims þar sem mengunin er enn lítil, en áreiðanlega fer hún bráðlega að verða vandamál hér líka. ef ekkert verður að gert. Það hefur heyrzt talað um hugs- anlega mengun í Faxaflóa, vegna þess að við hann er þéttbýlið mest hér á landi. Og skyldi hætt- an ekki vofa yfir Mývatni? Það þarf að vinna bráðan bug að rannsóknum á þessu máli, því að með því móti væri kannski hægt að koma í veg fyrir meng- un hér, áður en hún ætlaði al- veg að kæfa okkur eins og íbúa New York og Tókíó. Með beztu þökk fyrir birtingu. E.G. $var til Gittu Hætt er við að lítið sé hægt að gera í málinu í bráð. Hann er á föstu með annarri, segir þú, en slær þó greinilega ekki hendinni á móti þér fyrir því. Kannski hann sé á báðum áttum, þyki vænt um ykkur báðar og viti ekki í hvora löppina hann á að stíga. Kannski hann hafi bara dálítið gaman af vkkur báðum og ef til vill fleirum, en sé alvara með hvoruga. Þetta hvorttveggja R og fleira gæti staðizt. Framhaldið er að miklu leyti undir því komið hvað þú sættir þig við. Ef þú ert mjög hrifin af honum og vilt halda í hann fyrir hvern mun, er trúlega hyggilegt að láta í bráðina eins og ekkert sé. að þú hafir ekkert frétt. Ef þú snerir upn á þig og skammað- ir hann, er mikil hætta á að upp úr slitnaði fyrir alvöru. Rjómaís er fita»di. en miólk- urís miklu siður. Úr skriftinni er b erfitt að lesa nokkuð ákveðið, en líklega væri þér hollt að temja þér meiri viljafestu. SÁ BEZTI REYNIÐ RUSKOLINE KRYDDRASP Með nýja „RALLY"*bílabóninu frá Du Pont má bóna bílinn á aðeins (3ICPL3LC51 1/2 klst. Reynið//RALLY"*strax í dag. kfmfS176 • skrásett vðrumerkl Du Pont crumb dressing FÆST í NÆSTU MATVÖRUVERZLUN. HEILDSÖLUBIRGÐIR: JQHN LINDSAY H.F. SÍMI 26400 GARÐASTRÆTI 38, R. 35. tbi. VIKAN 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.