Vikan


Vikan - 22.07.1971, Síða 11

Vikan - 22.07.1971, Síða 11
Þegar frá byrjun drógust karlmenn að Mariu Stuart, vegna fegurðar hennar. Hún vargædd töfrum, sem voru hættulegir bæði henni sjálfri og þeim, sem umgengust hana... Hér til vinstri sjáum við Maríu Stuart ásamt Darney lávarði. Myndin er tekin af kopar- stungu frá þvi árið 1590 eða þar um bil. Darnley lávarður taldist skozk- ur að uppruna, hafði nægilega konunglegt blóð í æðum til þess hlutverks, sem honum var ætl- að og var friður sýnum og vel vaxinn, enda þótt hann væri fremur kvenlegur ásýndum. Hin einmana, unga drottning töfraðist af honum, því að hann kunni þá list að töfra konur. Það fór því svo, að þau voru gefin saman í Holyrood höll í Edinborg. Á því lék enginn vafi, að hvert það barn, er þau eignuðust yrði erfingi að há- sæti Englands ekki síður en Skotlands. En Elísabet vissi — og reiknaði með því — hve veikgeðja hinn ungi Darnley var. Þegar fyrsta uppreistin gegn skozku drottningunni brauzt út meðal mótmælendalávarðanna, klæddist María kaldri stál- brynju innan undir flaueli og loðskinni. Með skammbyssu við hlið og stálhjálm á brúnum lokkum sínum, reið hún í broddi fylkinga sinna út á regn- vota heiðina. En lávarðarnir, sem fyrir uppreistinni stóðu, flýðu í skyndi eða gáfust upp. John Knox flýði til Ayrshire. En Darnley lét sér ekki nægja þær gjafir og nafnbætur, sem María jós yfir hann, hann lét leiðast til að taka þátt í sam- særi, sem gaf honum von um að ná völdunum úr höndum drottningarinnar. Kvöld eitt er Framhald á hls. 33. Böðullinn var skjálfhentur og varð að höggva þrisvar til að losa hið fagra höfuð frá bolnum. Þannig urðu endalok hinnar síðustu Skotadrottningar.... Þannig leit María Stuart út, á meðan hún var enn hin fagra og vinsæla drottning Skotlands. Myndin er tekin af málverki af henni eftir Francois Clouet. Málverkið er nú í Eremitage- safninu í Leningrad. 29. TBl. VIKAN 11

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.