Vikan


Vikan - 09.03.1972, Síða 26

Vikan - 09.03.1972, Síða 26
BANGLA DESH- HLJÓMLEIKAR Fyrir ofan er Bob Dylan, Hægra megin við hann er Ravi Shankar, hér að neðan er Ringo Starr og hægra megin við hann er Leon Rjssell. Itarleg grein um Bangla Desh-hljómleika þá er George Harrison stóö fyrir í New York í fyrrasumar, í tilefni þess aö út er komið þriggja platna sett meö tónlistinni af hljómleikunum. Óumdeilanlega voru Bangla Desh-hljómleikarnir sem Ge- orge Harrison og Ravi Shankar stóðu fyrir í Madison Square Garden í New York 1. ágúst síðastliðinn, einn merkasti tónlistarviðburður síðari ára. Ekki eingöngu vegna spenn- ingsins og glysins í kringum þá, ekki eingöngu vegna stór- kostlegs tónlistarflutnings og ekki einu sinni vegna ,,risanna“ sem voru þar saman komnir, heldur vegna þess að á þessum hljómleikum komu fram þeir menn sem mest áhrif hafa haft á tóniist síðari hluta þessarar aldar; eins vegna þess að 40.000 ungmenni, ásamt hópi manna sem oft hafa verið kallaðir „einskis nýtir hippar og dóp- istar“ sýndu í verki, að aesku heimsins stendur ekki á sama um sveltandi börn í Bangla Desh og að þetta sama unga fólk lætur sér ekki nægja að tala um hlutina. Það er fyrir löngu búið að gera nóg af því. Það er þegar orðið að eins- konar orðatiltæki að halda fram, að Bítlarnir og Bob Dyl- an hafi verið meðal áhrifamestu einstaklinga síðasta áratugs. Meira en nokkrir aðrir hafa þeir hjálpað okkur til að eign- ast sameiginlegan sjóndeildar- hring, en nú upp á síðkastið hefur virzt sem það sem þeir sungu um — ást, friður og hugrekkið til að skoða okkar eigin hugi — hafi orðið að eitthverju fjarrænu sem engar stoðir á í raunveruleikanum. Hljómleikarnir vöktu þessa gömlu drauma upp og við skul- um vona að það verði ekki tímabundin uppvakning. Dylan söng „A Hard Rain’s A-Gonna Fall“ og meinti það'jafnvel enn meira en þegar hann sendi það fyrst frá sér fyrir nokkrum ár- um. George söng lag sitt „Bangla Desh“, hálf-klökkur, og með því eina lagi fékk hann alla til að gera sér grein fyrir tilefni hljómleikanna hafi ein- hver ekki gert það áður. Vissu- lega má gera ráð fyrir að marg- Að ofan er eitt magnað- asta tríó veraldarinnar, George Harrison, Bob Dylan og Leon Russell. Þeir eru einnig á mynd- unum hér til hliðar og sungu lög eftir Dylan. ir gestir hafi komið eingöngu til að hlusta á „risana" flytja tónlistina, en allir þeir er l;afa ritað um hljómleikana, eru sammála um, að út hafi enginn farið án þess að vera staðráð- inn í að hörmungar sem þær er dundu yfir Bangla Desh mættu ekki endurtaka sig. Nú er nýlega komin út plata — eða plötur, 3 talsins — með elni af hljómleikunum og hef- ur tekizt ótrúlega vel að ná þvi andrúmslofti sem ríkti á „mestu hljómleikum sem haldnir hafa verið“. Þeir hófust með því, að indverski sítarleikarinn Ravi Shankar, sá er átti hugmyndina að hljómleikunum, lék með einum bezta sarod-leikara Ind- lands, Ali Akbar Khan, og tabla-leikaranum Alla Rakha og Kamala Chakravarty, sem lék á tamboura. Þau sátu á lit- ríku teppi, umkringd gulum blómum og jafnvel þótt örugg- lega hafi verið einhverjir í 20.000 manna hópi (tvennir hljómleikar voru, síðla dags og að kveldi, 20.0000 manns á hvorum) sem ekki eru yfir sig hrifnir af indverskri sítartón- list, „átti“ Shankar salinn al- gjörlega og setti á hljómleik- ana mikið virðingaryfirbragð. Meðal annars lék hann ásamt Ali Akbar dúett, byggðan á stefi úr þjóðlagi frá Bengal, en Shankar er ættaður frá þeim hluta Bengals sem nú heitir Bangla Desh. Ravi Shankar lék ásamt með- leikurum sínum allan fyrri hluta hljómleikanna, en í hléi voru sýndar myndir frá flótta- mannabúðum í Indlandi og af hryðjuverkum stjórnar Vestur- Pekistans í Bangla Desh: Sund- urskorin og skotin lík, ungbörn deyjandi úr hungri með út- blásna maga og ótrúlegur fjöldi kólerusjúklinga. Spennan og eftirvæntingin í salnum er sögð hafa verið mjög gieinileg, enda ekki að undra, þar sem allir miðar höfðu selzt upp á nokkrum klukkustundum um miðja nótt, ,og voru þá þeir áhugasömustu búnir að bíða í röðinni í tvo sólarhringa. Eftir hléið var algjört myrk- ur á sviðinu örstutta stund, síð- an sáust nokkrir skuggar koma inn á sviðið og hylja rauð ljós- in á mögnurunum og um leið og kösturunum var beint að tónlistarmönnunum sem stóðu þar, fór fólkið að klappa og George Harrison, íklæddur hvítum jakkafötum og appel- sinulitri skyrtu, sló fyrstu tón- Framhald á bls. 35. 10. TBL. VIKAN 27

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.