Vikan - 05.04.1973, Síða 4
Ef bi trf að:
ba ifttn viO í litaveri.
bvi lað befur ávallt
loraaö sta
Símar 32262-30280 oa 30480
Grensásveoi 22 - 24
P0STURINN
Svar til Glinglu
Umsjónarmaður Póstsins er hinn
mesti fólki í fjórmálum og þor-
ir ekki fyrir sitt litla líf að ráð-
leggja í þeim efnum. Líklega
eru þó einhvers konar verðbréf
lausnin fyrir ykkur, en hafið
endilega samráð við lögfræðing
um það. Krabbi og bogmaður
eiga aldeilis Ijómandi vel sam-
an, og til hamingju með að fá
að búa og starfa á þessum ynd-
islega stað.
Svar til einnar 17 ára
í hringiðu
„Við erum trúlofuð sitt í hvora
áttina" segir þú, og svo virðist,
að vinur þinn vilji ekki breyta
því, þó svo að þú hafir eifthvert
líkamlegt aðdráttarafl fyrir hann,
fyrir nú utan þetta „rosalega
andlega samband" ykkar á milli.
Framkoma ykkar er óheiðarleg
oagnvart hinum aðilunum, og
það er áreiðanlega meining vin-
ar þíns, og úr því er hann að
reyna að bæta. Farðu að hans
dæmi oq snúðu þér að kærast-
anum þínum, ef ykkar samband
hefur einhverja þýðingu á ann-
að borð, að öðrum kosti er ykk-
ur fvrir beztu, að því sé slitið.
Dúkka í lamasessi
Kæri Póstur!
M;n langar til þess að spyrja
þig að smáræði, ég vona, að ég
fái svar við þv/. Svo er mál með
vexti, að ég á dúkku, sem mig
langar mjög mikið til að láta
gera við, en ég veit ekki, hvar
það er hægt. Getur þú, elsku
Póstur, sagt mér það? Og svo
er annað, hvernig á maður að
skrifa í Lög unga fólksins, svo
að kveðjan komi fram? Að lok-
um þakka ég fyrir allt gott efni
í Vikunni, með ósk um að bréf-
ið lendi ekki í dallinum. Hvað
lestu úr skriftinni?
Ein kúnstug.
Þetta voru vissulega kúnstugar
spurningar, og Póstinum verð-
ur að þessu sinni svarafátt. Þú
nefnir ekki einu sinni, hvort það
er einhver mekanismi í dúkk-
unni þinni, sem þarfnast við-
gerðar, eða hvort hún er bara
rifin, fótbrotin eða hausbrotin.
Við höfum aldrei heyrt talað
um dúkkuviðgerðir, enda mun
yfirleitt til þess ætlazt, að leik-
föngum sé fleygt, þegar þau
hafa lifað sitt fegursta. En viti
einhver lesenda okkar betur, eru
upplýsingar vei þegnar. Skrif-
aðu svo bara eitt súperfyndið
bréf og biddu um óvenjulegt
lag og vittu, hvort stjórnandi
óskalagaþáttar unga fólksins
stenzt það. Úr skriftinni má lesa
fljótfærni og fjörlyndi.
Viðtöl við
fréttamenn
Kæri Póstur!
Geturðu frætt okkur um, hvert
við eigum helzt að skrifa til að
fá nöfn okkar birt í færeyskum
blöðum, okkur langar nefnilega
til að eignast pennavini þar. Svo
er einnig annað, sem okkur
liggur á hjarta. Það er, hvort
þið hafið ekki í huga að birta
viðtöl við þá, sem lesa fréttirn-
ar í sjónvarpinu, þegar þið er-
uð búnir með viðtölin við þul-
ina? Að endingu svo þetta sí-
gilda, hvernig er skriftin, og er
eitthvað hægt að lesa út úr
hrafnasparkinu?
Millý og Maggý.
C—^
Við vísum öllum Færeyjavinum
á stærsta blað þeirra Færeyinga,
Dimmalætting. Vikan hefur þeg-
ar gert þeim Omari Ragnarssyni
og Magnúsi Bjarnfreðssyni nokk-
ur skil, en við tókum kipp og
pöntuðum viðtal við einn frétta-
manninn enn, svo þið sjáið, að
það er tekið mark á ykkur. —
Skriftin er nokkuð góð og lýsir
örlæti og hreinskilni.
3 dagar eöa vika
Kæri Póstur!
Mig langar til að spyrja þig að
því, hvernig standi á því, að
þegar ég var 12 ára fór ég fyrst
að fara á túr, eins og flestar
stelpur á þessum aldri, og var
alltaf 3 daga í hvert skipti, þar
til ég varð 15 ára, en eftir það
hef ég alltaf verið viku og er
enn þann dag í dag. Hvernig
stendur á þessari breytingu? Ég
vona, að þú hendir þessu ekki
í ruslakörfuna, því mig vantar
svarið anzi mikið. S.S.
4 VIKAN 14.TBL.