Vikan - 05.04.1973, Side 5
Það er mjög algengt, að blæð-
ingar séu fremur litlar fyrst í
stað hjá ungum stúlkum, og þín
reynsla er á engan hátt óvenju-
leg. Þú þarft þess vegna engar
áhyggjur að hafa af þessu eðli-
lega fyrirbrigði, sem blæðingar
kvenna eru. — Annars er læknir
rétti aðilinn að leita til í öllu, er
viðkemur starfsemi líkamans, og
ættu stúlkur alls ekki að vera
svona feimnar við að ræða þessi
mál við lækna, eins og virðist
vera af öllum þeim bréfum, sem
okkur berast um þessi efni.
Langar í linsur
Kæri Póstur!
Af því þú hefur gefið svo mörg-
um góð ráð, viltu þá ekki svara
þessum spurningum mínum.
1. Er hægt að fá linsur hér á
landi? Hvar þá?
2. Eru þær dýrar?
3. Finnur maður fyrir þeim,
þegar maður blikkar augunum?
Ef svo er, er það óþægilegt?
4. Þarf maður að taka þær úr
sér, þegar maður er a) í sólbaði
með lokuð augun, b) fer í vatn
með andlitið, c) fer að sofa?
5. Geta allir notað linsur?
6. Detta þær úr manni, ef mað-
ur a) hamast, b) grætur?
7. Er hættulegt að vera með
þær? Hvernig þá?
Viltu nú vera svo vænn að svara
þessu, en henda ekki bréfinu í
ruslið, eins og fyrra bréfi mínu.
Hvernig er skriftin, og hvað
lestu úr henni? Hvað um aldur
minn?
Gleraugnaglámur.
1. Linsur hafa lengi fengizt hér
á landi og að sjálfsögðu gegn
recepti frá augnlækni.
2. Linsur eru vissulega nokkuð
dýrar.
3. Fólki gengur eitthvað mis-
jafnlega vel að nota linsur, og
það tekur sinn tima að venjast
þeim, en flestum tekst það með
þolinmæðinni.
4., 5., 6. og 7. Pósturinn getur
ekki gefið ákveðin svör við
þessum spurningum. Þú skalt
leggja þær fyrir augnlækni, þú
þarft hvort eð er að fara á hans
fund, ef þú ætlar að fá þér lins-
ur.
Skriftin er óvandvirknisleg og
lýsir sannleiksást og talsverðri
ógætni í athöfnum. Við gizkum
á 15 ára aldur.
Með hestadellu
Elsku Póstur minn!
Ég ætla að byrja bréfið á því að
þakka þér fyrir allt það Ijómandi
góða og fróðlega efni, sem þú
hefur boðið lesendum þínum
upp á. Því miður er ég ekki
áskrifandi að Vikunni, vegna
þess að ég er í skóla og fjár-
ráðin leyfa það ekki ennþá, en
hún er oftast keypt í lausasölu
heima hjá mér. En ég held það
sé bezt fyrir mig að koma mér
að efninu. Ég býst við, að það
sé sjaldan, sem þið fáið svona
bréf, en ég er yfir mig hrifin af
hestum. Ég er blátt áfram með
hestadellu. Ég hef verið í sveit
undanfarin sumur og hef þá
haft tækifæri til að komast á
hestbak og umgangast hesta, en
nú mun þetta breytast. Ég ætla
mér að vinna í bænum í sumar.
En við það skapast vandamál.
Ég verð að komast á hestbak
um helgar, en hvar ég get feng-
ið hesta leigða til að skjótast á
bak, veit ég ekki. Það verður
helzt að vera skammt frá bæn-
um. Kæri Póstur, ég vona, að
þú getir gefið mér upplýsingar
um þetta. Hvernig er skriftin,
og hvað lestu úr henni?
.Ein með hestadellu.
Þvi miður getum við lítið hjálp-
að þér. Hjá Ferðaskrifstofu rík-
isins fengum við þær upplýs-
ingar, að oft væri spurt um þetta
atriði hjá þeim, en sem stendur
eru engir aðilar hér eða í ná-
grenni borgarinnar, sem leigja
hesta. Fólk kemst helzt á hest-
bak hjá kunningjum sínum, sem
eru svo vel settir að eiga hesta,
og það er helzt útlit fyrir, að þú
verðir að koma þér í mjúkinn
hjá einhverjum velviljuðum
hestaeiganda. Það er raunar
furðulegt, að enginn skuli sjá
sér hag i þvi að leigja hesta,
eins og það virðast örugg við-
skipti. Skriftin er falleg og gefur
til kynna hlýtt viðmót og gott
skaplyndi.
PIERPONI-úrin
handa þeim sem
gera kröfur um
endingu, nákvæmni
og fallegt
útlit.
Kven- og
karl-
manns-
úraf
mörgum
geröum
°g .
verðum.
HERMANN JÓNSSON, úrsmiður
Lækjargötu 2, sími 19056
Með aukinni stærðfræðikennslu og vaxandi
kröfum nútíma tækniþjóðfélags er sérhverjum
námsmanni nauðsynlegt að vera búinn full-
komnum hjálpargögnum við námið.
Aristo reiknistokkurinn er gerður fyrir náms-
fólk með kröfur skólanna í huga.
Aristo reiknistokkur á heima í hverri skóla-
tösku.
PENNAVIÐGERÐIN
Ingóifsstræti 2. Sími 13271.
ARISTO
léttir námið