Vikan - 05.04.1973, Blaðsíða 7
MIG DREYMDI
HRINGUR 1 ÞREMUR PÖRTUM
Kæri þáttur!
Eg ætla að senda draum þennan í von um, að hann verði
ráðinn. Ég hef sent hann áður, en þá var honum ekki sinnt.
Ég hef sagt frænku minni hann, og hún vill ráða hann þann-
ig, að ég eigi eftir að verða þrígift.
Draumurinn er svona:
Mér fannst ég vera að halda brúðkaup systur minnar. Ég
var frammi í eldhúsi. Það var eitthvað lítið um leirtau og
annað dót, sem benti á veizlu. Ég var að tala við móður-
systur mína. Hún var að óska mér til hamingju með trú-
lofunina og spurði, hvað kærastinn héti. Ég vildi ekki kann-
ast við, að ég væri trúlofuð. Þá segir frænka mín:
„Ætli það sé ekki F.“
Mér leizt nú ekki á það, þar sem sá maður er frændi
minn og þar að auki kvæntur. Hún bað mig þá að setja
ekki fyrir mig ruglið í sér. Ég fór aftur að þvo upp og var
að hugsa um, hverjum ég væri eiginlega trúlofuð.
Þá tók ég eftir því, að hringurinn minn varð svartur í
vatninu. É'g tók hann af mér og byrjaði að fægja hann með
þurrkustykkinu, en missti hann þá í gólfið. Snúran hrökk
af honum og hringurinn brotnaði í þrjá parta.
Snúran var gulllituð og heil. Fvrsti parturinn af hringn-
um var svartur, annar silfurlitaður og sá þriðji rauður.
Ég tók brotin upp og fór. með þau inn í stofu, þar sem
gestirnir voru, fleygði þeim á gólfið og sagði:
„Andskotinn hafi það, ég er ekkert trúlofuð."
Mónikka. .
Ráðning frænku þinnar er líklega mjög nálægt sanni. Við
teljum þó, að þú munir ekki giftast nema einu sinni. Hins
vegar verðurðu ástfangin þrisvar. Samband þitt og fyrsta
mannsins varir skammt og endar illa, en þér tekst að gleyma
honum að fullu og öllu. Samband þitt við annan manninn
fer líka út um þúfnr, en af fjarska smávægilegri ástæðu.
Þú sérð eftir lionum, munt liugsa til hans oft síðar og al-
drei geta gleymt lionum. f þriðja skiptið fer allt vel og úr
verður löng og liamingjurík sambúð.
KÖNGULÖARVEFIR í KÖPAVOGI
Kæri draumráðandi!
Mig langar til þess að biðja þig að ráða þennan draum
fyrir mig, ef hann þá merkir eitthvað.
Ég var á leið til ömmu og afa. sem búa í Kópavogi. Þegar
ég kom að pósthúsinu, sá ég systur mína standa þar. Hún
hélt á ungbarni, sem mér fannst ég hafa fundið og gefið
henni. Hún bauð mér að halda á barninu, en ég neitaði
því. Ég hélt síðan áfram, og þegar ég kom til móts við hús-
ið, þar sem afi og amma búa, var afi þar fyrir utan að bóna
nýian rauðan Volkswagen.
Ég fór nú inn til að heilsa ömmu. Ég gekk inn um úti-
dyrnar, en þegar ég ætlaði um innridyrnar voru þær svo
þröngar, að ég varð að fara á hlið inn um þær. Inni var
allt skítugt og kóngulóarvefir upp um veggina. En þegar
ég kom þangað inn í stofu, var þar allt hreint og eins og
nýþvegið. Þangað inn var komin ný kommóða, rauðbrún á
lit, en kantarnir voru dökkbrúnir og útskornir.
Inni í stofu sátu amma, systir mín, sem hélt á barninu og
ung kona, sem ég þekkti ekki. Ilún var ófrísk. Eftir svo-
litla stund ætlaði konan að fara úr kjólnum. En hvernig
sem hún reyndi, gat hún ekki komið hægri hendinni úr
kjólnum, svo að hún varð að fara í hann aftur.
Og þar endar draumurinn.
Með fyrirfram þökk.
Þessi draumur er býsna margbrotinn og erfitt að átta
sig á honum. Táknin eru mörg og ósamstæð. Eitt er þó
ljóst, og það er, að liann boðar óvænt tíðindi, sem í fyrstu
valda miklum óþægindum og ótta, en síðar kemur í ljós,
að um ávinning er að ræða.
AÐ VELJASÉR KONU
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig draum. Hann
er svona:
Ég var stödd í gríðarstórum sal. Þar var margt manna og
fólkið kom allt úr suðurátt, bæði karlar og konur. Tilefni
þessarar samkomu var fjarska skemmtilegt: Karlmennirnir
áttu að velia sér konu!
Ekki langt frá mér var strákur, sem ég er hrifin af. Við
vinnum á sama stað.
Við vorum alltaf að horfa hvort til annars, en í hvert
skipti sem hann renndi til mín augum, leit ég undan. Mér
fannst ég sitja á einhverju, sem ég man ekki hvað var.
Ég vonaði, að hann færi að koma til min. En allt í einu
fannst mér mikil ókyrrð færast yfir mannfjöldann. Fólkinu
fækkaði ört, og karlmennirnir virtust flýta sér eins og þeir
gátu að velja sér konu.
Loksins voru aðeins nokkur hjú eftir í kringum mig, og
ekki kom strákurinn að velja mig, eins og ég hafði vonað
og beðið eftir. Ég var farin að örvænta.
Skyndilega sé ég hvar hann tekur á rás og gengur út í
austurátt. Hann var með sveinbarn, sem hann leiddi með
annarri hendinni, ég held þeirri hægri. Strákurinn var á
að gizka 4—5 ára, og ég áleit þetta vera bróður hans. Hins
vegar á hann engan bróður í raunveruleikanum.
Og þá vaknaði ég.
Þökk fyrir ráðninguna. S.
P.S. Ég vona, að þú getir ráðið þennan draum fyrir mig
og gerir það fljótlega. Ég er áskrifandi að Vikunni og mér
líkar hún vel.
Samkvæmt þessum draumi er bersýnilegt, að þið farið
að vera saman og umgangizt hvort annað mikið, ef þið er-
uð þá ekki þegar byrjuð á því. En að nokkrum tíma liðn-
um hleynur snurða á þráðinn. Það verður fátt um kveðjur,
þegar þið skiljið. Fyrr en varir er þetta rifrildi þó gleymt
og grafið og þið farið að vera saman aftur —■ með miklu
betri árangri en fyrr.
HREIÐUR
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi síðastliðna nótt, að ég sæi langa röð af
hreiðrum meðfram vegarbrún, og svona fet á milli þeirra.
í hverju hreiðri var eitt egg, nema í einu. í því voru þrjú
egg. Hreiðrin líktust mjög kríuhreiðrum.
Þakka ráðninguna. Sveitakona.
Hreiður eru yfirleitt talin vera fyrir barneignum. En við
skulum vona að svo sé ekki í þessum draumi. Við teljum.
að draumurinn tákni, að ykkur muni mjög vel famast á
nýja staðnum. Búið mun blómgast og vaxa á skömmum
tíma, og líklega verður alltaf margt í heimili hjá ykkur.
Pólka.