Vikan - 05.04.1973, Síða 19
m
HBBN
AND THE MEDICINE
SHOW
Hver man ekki eftir laginu
Silvies mother, einu alvinsælasta
lagi s.l. árs? Þeir sem það fluttu,
Dr. Hook and the Medicine Show,
hafa nú sent frá sér aðra litla
plötu, The Cover of Rolling Stone,
Forsiðan á Rolling Stone . . .
Rolling Stone er eitt útbreiddasta
músik-timarit i Bandarikjunum
og eins og gefur að skilja, kemst
ekki hver sem er á forsiðu þess
blaðs. Dr. Hook, sem er hér á
myndinni með lappann fyrir
auganu, sá sér góðan leik á borði,
þegar hann sendi frá sér þessa
nýjustu plötu. Textinn er einhver
sá hæðnasti, sem lengi hefur
heyrst. Fjallar hann um afstöðu
hljómsveitar, sem gæti verið
hvaða hljómsveit sem er. til
forsiðu Rolling Stone.
Peningarnir streyma inn, þeir
eru frægir, en þeir fá ekki mynd
af sér á forsiðu Rolling Stone.
Platan eða réttara sagt lagið var
það fyrsta, sem bannað var til
flutnings opinberlega i Banda-
rikjunum á árinu 1973. Það var
ekki að sökum að spyrja, Dr.
Hook fékk mynd af sér á forsiðu
Rolling Stone.
JETHRO TULL
Það linnir ekki öldunum i
kringum Jethro Tull. Það var
fyrir nokkru tilkynnt i London, að
hljómsveitin myndi alls 'ekki
halda hljómleika i Englandi á
þessu ári. Eðlilega urðu þegar
uppi háværar raddir, mótmæli,
sem að visu eru ekki óvenjuleg i
Bretlandinu þessa dagana.
Ástæöan fyrir þessari ákvörðun
hljómsveitarinnar var sú, að i
april mánuði nk. heldur hljóm-
sveitin i hljómleikaferð til
Ameriku. Þeir ætluðu að hvila sig
og hafa það gott þangað til. En
þeir urðu að láta undan að-
dáendum sinum i Englandi. Þeir
munu halda eina hljómleika áður
en þeir halda utan.
Þeir hafa nú nýlokið við að
leika inn á nýja L.P. plötu. Ber
hún heitið Passion Play eða
Astriðuleikur. Verður hún
væntanleg á markað hérlendis
innan skamms. Myndin hér til
hliðar er svo af þessum sivinsæla
söngvara og flautublásara hljóm-
sveitarinnar og gott ef hann heitir
ekki Ian eitthvað.
14. TBL. VIKAN 19