Vikan - 05.04.1973, Síða 34
UNDANKOMA
— Þetta er Dick, Celia, sagöi
ég.
Ég heyrði, að hún greip andann
á lofti. - Hvar ertu, Dick? Ég
sagði henni það og eftir þvi sem
ég gat, sagði ég henni í stuttu
máli, hversvegna ég hefði farið.
— En ég tók e(fki þessa peninga,
Celia. Ég veit ekkert, hvernig á
þessu stendur, en ég er að koma
heim til þess aö fá það á hreint.
Þú talar við lögregluna og segir
henni, að ég verði kominn á
morgun.
Svo sagði ég henni frá tilboöi
Lúters og að ég væri að hugsa um,
að vió flyttumst til St.Theresa.
Eftir á að hyggja, finnstSmér það
undarlegt, að ég skyldi geta verið
að hugsa um þaö, með fangelsis-
dóm vofandi yfir mér. En á þeirri
stundu haföi ég engar verulegar
áhyggjur af þessari sjóðþurrð i
bankanum. Hún var eins og hver
önnur mistök, sem ég þyrfti að
gera grein fyrir.
Þegar ég var búinn að tala við
Celiu, sneri ég aftur til þess að
kveðja þau feðginin. Ég hafði
eitthvert smádót að ganga frá i
veiðihúsinu og svo vildi ég kveðja
þau almennilega og segja þeim
frá þessu óstandi i Larkspur, áður
en þau læsu um það i blöðunum.
Ég sýndi þeim Lúter og Nancy
blaðið og útskýrði fyrir þeim at-
hafnir minar. Hvorugt þeirra
sýndi af sér neina tortryggni i
orði eða æði, eða vafa um, að ég
færi með rétt mál. Þau buðu mér
að hjálpa mér, eftir þvi sem þau
gætu. Ég þakkaði þeim fyrir, tók
slðan saman föggur minar og var
I þann veginn að leggja af stað,
þegar lögreglubill kom inn i húsa-
garðinn.
Jemison hreppstjóri var
almennilegur náungi og gamall
kunningi Lúters. Hann kvaðst
hafa fengið hringingu frá lög-
reglunni i Larkspur og handtöku-
skipun á mig, og hann yrði að
taka mig með sér. Ég held, að nú
fyrst hafi mér orðið fyllilega ljóst,
i hvflikri hættu ég var staddur.
Og næstu dagana varð mér
þetta enn ljósara. Þessir dagar
eru býsna þokukenndir hjá mér —
Hkastir martröð. Ég vissj varla
hvað var að gerast, en allt var
það að minnsta kosti slæmt. Lagt
var hald á þessa 801.42 dali, sem
ég hafði á mér, og svo var ég
spurður spjörunum úr. H'að
gerði ég af hinum peningunum?
Hverjir voru i vitorði með mér?
Voru Ericsonfeðginin við málið
riðin? Vildi ég undirrita
játningu? Ég endurtók sögu mina
aftur og aftur, þangað til ég var
loksins hættur að trúa henni
sjálfur. Ég rakti slóð mina frá þvi
ég fór úr bankanum og þangað til
ég var tekinn fastur. Hvað hétu
þessir gististaðir, sem ég hafði
gist á. Ég mundi það ekki lengur,
en þaö var fyrir norðan Birm-
ingham. Hvar voru hinir pen-
ingarnir? Var ég reiðubúinn að
undirrita játningu?
Verst af þessu öllu var það, að
allir virtust telja mig sekan.
Enginn spurði, hvort ég hefði
stoliö peningunum. Heldur ekki
hún Celia, eftir að ég haföi hitt
hana. Ég var næstum búinn að
missa allan baráttuvilja. Jafnvel
konan mln trúði mér ekki.
— Hvernig gaztu gert mér
þetta? spuröi hún. — Var þaö
þessi stelpa I veiðihúsinu? Nú,
jæja, hún má eiga þig. 0, ham-
ingjansanna! Vandræðin, sem þú
hefur komið mér i!
Ég man nú ekki allt, sem hún
sagði. Eftir fyrsta áfallið skipti
þaö ekki miklu máli. Ekkert
skipti lengur máli.
Liklega heföi ég ekki streitzt á
móti ef ekki hefði veriö hún
Nancy. Hún kom til Larkspur, út-
vegaði lögfræðing fyrir mig, og
eftir aö ég var formlega ákærður,
fengu þau feðginin mig látinn
lausan gegn tryggingu. Þá komst
ég að þvi, að þetta var nú ekki
eins slæmt og það virtist. Charley
Hawkins, aðalgjaldkeri bankans
kom til min og bauð mér alla
hjálp, sem hann Vjiperi fær um.
Ýmsir nágrannar !mínir náðu
sambandi við mig og nokkrir
viöskiptavinir buðu mér lán og
ýmsa aðra hjálp.
En Celia var ósveigjanleg.
Eftir þessi vandræði, sem ég
haföi komiö henni i, sagöi hún,
gæti hún ekki haldið áfram að búa
með mér. Hún vildi fá skilnaö. t
bili gæti ég flutt dótið mitt I
hótelið. Svo rauk hún út i fússi og
ég fór að taka saman föggur
minar.
Meðan ég var að þvi fékk ég
fyrsta vonarneistann. Ég var að
róta f skúffu að leita að erma-
hnöppunum minum,
kveikjaranum, sjálfblekungnum
og ýmsu sliku smávegis, þegar ég
rakst á ferðaskrifstofuhefti þar
sem auglýstar voru dásemdir
Suöur-Frakklands. Heftiö vakti
athygli mlna vegna þess að ég
hafði aldrei séð það áður og hafði
enga hugmynd um, hvernig það
væri þarna komið. Ég tók það upp
úr skúffunni og athugaöi þaö
betur.
Inni I heftinu var merkt við eitt
atriði og ég þekkti þetta merki
engu siður en þó að maðurinn
heföi skrifað þar nafnið sitt. Þetta
atriði var sett i sviga og svo voru
tveir púnktar innan i hvorum
sviga. Svona merki hafði ég séð
þúsund sinnum á ýmsum banka-
skjölum. Hvenær sem hr. Jónatan
B. Allen vildi vekja athygli á ein-
hverju atriöi, sem hann taldi sér-
lega mikilvægt, þá merkti hann
það á nákvæmlega þennan hátt.
Ég fór nú að velta þvi fyrir mér,
hversvegna hr. Allen væri að gefa
konunni minni svona ferða-
mannaheftium Suöur-Frakkland.
Ekki svo að skilja, að Celiu mundi
ekki langa aö fara þangað, en
þetta var rétt eins og að dingla
sætindum fyrir framan nefiö á
hungruöum strák. En við höföum
alls engin efni á þvi. Og ef út i það
var farið, þá hafði hr. Allen það
heldur ekki. Ég ætlaði að fara að
taka heftið með mér, en áttaði
mig og skildi þaö eftir á sama
stað.
Ég fékk mér herbergi I eina
almennilega hótelinu i Larkspur
og tók aö hugleiða, hvað gera
skyldi. Það var greinilegt, að ein-
hver hafði notað sér hvarf mitt til
þess aö stela þessum fimmtiu
þúsund dölum. En hver? Og
hvernig gæti ég sannaö það? Það
voru ekki nema fjórir menn i
bankanum, sem höfðu aögang aö
peningunum — hr. Allen, Charley
Hawkins, ungfrú McDaniel og svo
ég sjálfur. Sjálfan mig gat ég
strikað út og þá voru ekki eftir
nema þrir möguleikar.
Ég hélt áfram að hugsa um
feröaheftiö og hugsaði mér Celiu
og Allen vera að ráðgera ferð til
Frakklands. Mér datt i hug krafa
Celiu um skilnað. Ég minntist
þess, hvernig Allen gleypti hana
með augunum þegar viö fórum
út saman. Og mig hryllti við öllu
þvi, sem mér datt i hug. Ég gat
ekki trúað þvi sjálfur. Ég gat vel
trúað þvi á Jónatan B. Allen. A
hann gat ég trúað næstum hverju
sem var. En Celia? Ég vissi, að
hún var hálfgert dekurbarn, og
eigingjörn, eins og flestar
fallegar konur, en hún var þó
konan min.
Ég sat þarna timunum saman
og braut heilann um úrræði til
þess að sanna sakleysi mitt. En
mér gat ekki dottið neitt i hug.
Næsta dag fékk ég mér útleigubil
(Celia hafði Buickbilinn) ók svo
sextiu milur til stjórnar-
hallarinnar, og leigði einka-
spæjara. Ég hafði enga von um,
að honum yrði neitt ágengt, en
eitthvað varð ég aö hafast að. Ég
gat ekki setið aðgerðarlaus og
látiö sakfella mig saklausan.
Nokkrir dagar liðu og ég var
engu nær. Einkaspæjarinn hafði
ekki komizt að neinu, sem gagn
væri i. Hann hafði spurt starfs-
fólkið I bankanum og verið svo á
höttunum kring um þessi þrjú
grunuðu, en orðið einskis visari.
Nancy kom nokkrum sinnum til
min og reyndi að stappa i mig
stálinu. Og þess var sannarlega
þörf. Ég vissi nú, að allt benti til
þess aö ég væri sekur. Ég varð að
sanna sekt einhvers annars, eöa
fara i fangelsi að öörum kosti.
Eitthvað viku áður en réttar-
höld áttu að hefjast, kom
spæjarinn til min til aö gefa mér
skýrslu.
— Ég veit ekki, hvort yður er
nokkurt gagn I þessu, sagöi hann,
— en þessi hr. Allen var yfir i
Trenton i gærkveldi með glæsi-
legri ljóshærðri konu. Þau hittust
I Cameliakránni þar, óku þangað
hvort i sinum bil. Ég lagöi minum
bil skammt frá þeim. Þegar þau
skildust heyrði ég hann segja, að
þau skyldu hittast á föstudags-
kvöld á sama tlma.
„Glæsileg ljóshærð kona”.
Þannig mundu flestir lýsa Celiu,
hugsaði ég. — En hvernig var
bfllinn hennar? Var þaö blár
Buick 1955?
— Stendur heima. Þekkið þér
hana?
— Litilsháttar, sagði ég. — Hún
er konan min.
En hversu vel þekkti ég Celiu,
datt mér I hug. Það er nú skritið
en satt er það samt, að maður
getur verið með fólki árum
saman, án þess að þekkja það
raunverulega. Maður sér and-
litiö, eins og þaö snýr að um-
heiminum, en sjaldan raunveru-
legu persónuna að baki þess. Og
stundum sér maður meira að
segja aðeins það, sem maður vill
sjá. Þegar jafnfalleg stúlka og
Celia á I hlut, vill maður trúa þvi,
að hún sé lika góð og trú.
Þegar spæjarinn var farinn,
hugsaði ég máliö betur og þóttist
loks hér um bil viss um, hvað
gerzt hefði. Ég vildi að visu ekki
trúa þvi, en það kom bara allt
saman heim og saman. Allen var
sá sem hafði notað tækifæriö og
stoliö fimmtiu þúsund dölunum.
Hann og Celia ætluðu að eyða
peningunum i Frakklandi. Allen
hafði alltaf verið skotinn i Celiu,
og þessvegna var hann si og æ að
bjóöa okkur út. Nánar athugað
þóttist ég nú viss um, að þau
heföu verið að hittast aö staðaldri
undanfariö. Hún hafði oft verið
fjarverandi, án þess að mig
grunaði neitt. Liklega haföi Allen
veriö að reyna aö fá hana til að
skilja við mig og giftast honum,
löngu áður en ég hvarf. En lik-
lega haföi Celia engan áhuga á að
giftast honum nema hann ætti
eitthvað til. ööru máli var að
gegna ef hann ætti fimmtiu
þúsund dali til að eyða i
Frakklandi.
Svona hlýtur þetta að hafa
gengið til, hugsaði ég. Ég hverf og
þá veröur öðruhverju þeirra ljóst,
að nú er tækifærið að koma sinu
fram. Allen fær Celiu og Celia fær
fimmtiu þúsund dali. Svona hefur
þetta gengiö til, en hvernig get ég
sannaö það?
Ég braut heilann um þetta það
sem eftir var vikunnar en varð
ekkert ágengt. Ég gat farið með
þetta til lögreglunnar, en hvað
mundi það stoða? Ég haföi ekki
snefil af sönnunum. Ferða-
mannaheftið kannske? Celia
haföi gaman af að lesa svona hefti
og láta sig dreýma um
Frakklandsferðir. Kannske hafði
34 VIKAN 14. TBL.