Vikan - 05.04.1973, Page 48
MIDAPRENTIIN
LátiÖ prenta alls konar aögöngumiöa, kontrol-
númer, afgreiðslumiða og fleira á rúllupappír.
Eina prentsmiðjan á landinu, sem prentar
slíka miða. Höfum einnig fyrirliggjandi og
útvegum með stuttum fyrirvara ýmiss konar
afgreiðslubox.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
HILNIR Hf
Síðumúla 12 — Sími 35320
HESTAR VEIDDIR TIL
HUNDAFÆÐU
Framhald af bls. 9.
ur illa að róast. Þeir æða um í
skelfingu og leita sér að út-
göngudyrum. Einn þeirra tek-
ur æðisgengið tilhlaup og reyn-
ir að stökkva yfir girðinguna.
En stökkið er of lágt. Þú heyr-
ir lifandi veru kremjast sund-
ur, þegar höfuð hans skellur
á einum stólpanum, heyrir kjöt
og bein merjast og brotna.
Hann fellur niður, hnígur út af
og liggur kyrr.
Veiðimennirnir líta hver á
annan, glotta og taka fram tó-
bak sitt og vindlingabréf. Þessi
veiðiferð hafði heppnazt vel.
Lítið þið bara á hvað er í rétt-
inni. Uppgrip af hundafæðu.
Mest af þeim er selt niður-
suðuverksmiðjum fyrir sára-
lítið verð. Aðeins fáir þessara
hesta eru nægilega óstýrilátir
til þess að hægt sé að nota þá
við kúrekasýnmgar; þeir eru
ekki illkvittnir að upplagi.
Takist á annað borð að hæna
bá ?ð sér, verða þeir góðir
áburðarklárar, námfúsir, vilj-
ugir og fótvissir.
En þessir villihestar hafa
enoa löngun til að verða skikk-
anleg húsdýr. Sumir vilja ekki
éta og svelta í hel. Og kunn-
ugt er um aðra, sem hafa drekkt
sér í ekki meira en 18 þum-
lunga diúpu vatni. Að minnsta
kosti einn steypti sér viliandi
út í fúla salttjörn og ögraði of-
sækjendum sínum storkandi á
meðan hann var að stökkva.
Blesi (Starface), hinn frægi
dökkbrúni graðhestur frá Cim-
maron, pekk fyrir ætternis-
stapa með því að stökkva fram
af 90 feta háum kletti ofan í
ána fyrir neðan.
_________________________☆
VIÐ OG BÖRNIN
OKKAR
Framhald af bls. 10.
eru samt líklegri til þess að
þiást af alls konar kvíða á
æsku- og fullorðinsárum en
börn þau, sem hafa alltaf bú-
ið við sterk persónuleikatengsl.
Sáðkorn óvissu og öryggis-
leysiskenndar, sem sáð er í per-
sónuleika barnsins á unga aidri.
spíra kannski mjög hægt á
bernskuárum þess, en taka svo
til að- vaxa og verða að harð-
geru illgresi ýmiss konar tauga-
veiklunar á fullorðinsárunum.
Nú eru næstum þrefalt fleiri
menn í fangelsum hér í Bret-
landi en voru þar árið 1940. Og
næstum helmingur allra sak-
næmra afbrota er framin af
þeim, sem ekki hafa náð 21 árs
aldri. Vissulega er kominn tími
til þess, að við förum öll að
velta þessu vandamáli vel fyrir
okkur, því að það virðist sorg-
legt, að þjóð, sem er heilbrigð-
ari líkamlega en nokkru sinni
fyrr, skuli ala upp slíkan fjölda
andlega fatlaðra ógæfumanna.
Þegar við reynum að vísa á
leiðir til aukinnar sálgæzlu og
andlegrar heilbrigði, ættum við
kannski að byrja fyrst á börn-
unum og hvetja mæðurnar til
þess að notfæra sér út í æsar
þetta sterka afl, sem menn gera
sér ekki grein fyrir nema að
takmörkuðu leyti. Það væri
kannski hægt að fá hin ýmsu
bæjaryfirvöld til þess að end-
urskoða viðhorf sitt til stofn-
unar nýrra leikskóla og dag-
heimila og reglurnar, sem far-
ið er eftir, þegar ungum börn-
um er veitt þar viðtaka. Og
þeir, sem setja okkur lög, géltu
að finna einhverja aðferð, sem
kemur í veg fyrir, að mæðrum,
sem starfa eingöngu á heimil-
um sínum, sé ekki hegnt allt
of óþyrmilega fyrir það fjár-
hagslega, að þær skuli inna
þar af höndum mjög þýðingar-
mikil störf, sem hindrar þær í
að vinna fyrir peningatekjum
til viðbótar tekjum eiginmanns-
ins.
Þetta mun auðvitað allt taka
sinn tíma og líklega langan
tíma. En við mundum öll upp-
skera ríkuleg laun, þegar heil-
brigð og sterk persónuleika-
tengsl mæðra og barna, tengsl,
sem einkennast af fullu jafn-
vægi og eru ánægjuleg fyrir
báða aðilja, byrja að minnka
eftirspurnina eftir róandi lyfj-
um og draga jafnvel úr fjölda
hinna taugaveikluðu „stjúp-
barna“ menningar okkar, en
þau getur að líta allt í kring-
um okkur. Hér gætir ef til vill
helzt til mikillar bjartsýni, en
vandamál þetta á það þó sann-
arlega skilið, að það sé gaum-
gæfilega íhugað.
Dr. Eric Jameson.
— Ég kom með gjöf til þín,
elskan, það er fyrsti brúð-
kaupsdagurinn okkar!
48 VIKAN 14.TBL.