Vikan - 31.01.1974, Qupperneq 4
ótrúlega fúsir að taka áhættuna af
óhollum lífsvenjum, þótt ekki sé
mikils krafizt. Til þess að við-
halda starfshæfni líffæra og
likamans í heild nægir 15-30
mfnútna likamsstæling á dag eða
1 1/2-3 klst. á viku.
Nú vil ég vikja að helztu
iþróttum, sem stundaðar eru yfir
vetrartimann. Ég nefni þá fyrst
þær iþróttir, sem aðallega eru
stundaðar innivið. Knattspyrna
og handknattleikur eru lang-
vinsælustu iþróttagreinarnar,
jafnt meðal þeirra, sem æfa þær
með keppni fyrir augum og hinna,
sem stunda þær sér til ánægju og
gagns. Badminton stunda margir
hér og er það mjög hreyfanleg og
gagnleg iþrótt fyrir alla, en það er
rétt að benda fólki á að fara var-
lega á fyrstu æfingunum til að
forðast meiðsli.
Blak veitir alhliða likams-
þjálfun.eykurfjaðurmagn, þol og
viðbragðsflýti. Það krefst sam-
æfingar, samleiks og leiktækni,
glöggrar hugsunar og skjóts
skilnings. Leikurinn er andlegur
og likamlegur heilsugjafi. Hann
er skemmtilegur fjölskyldu- og
starfshópaiþrótt.
Sá, sem stundar blak, fær hóf-
lega hreyfingu, réttir úr sér, fettir
sig og það er ágætt mótvægi gegn
kyrrsetu, t.d. þeim, er húka þurfa
dag hvern við skifborð eða ritvél.
Fimleikar, þessi fallega iþrótt,
hefur færzt i vöxt og má marka
þaö af þvi, hve góð þátttaka var i
þeim sýningum, sem haldnar
voru á siðasta ári og ennfremur
hafa mörg iþróttafélög komið á
laggirnar frúarleikfimi og sýnir
það, hvað iþróttafélögin reyna til
að fá fólk til að taka þátt i alls
konar iþróttaiðkunum.
Þegar við tölum um vetrar-
Iþróttir, er rétt að hafa það i
huga, að við hættum ekki að leika
okkur af þvi að við séum
orðin gömul, en gömul veröum
við af þvi að við hættum að leika
okkur. Fyrst skulum við minnast
á skokkið. Það geta allir skokkað
og helztu kostir skokksins eru:
Það kostar ekkert
Þið sóið aðeins dálitlu viljaþreki,
en það ætti ekki að setja ykkur á
hausinn. Miklar likur eru til þess,
að þið auðgizt af góðri heilsu i
staðinn. ,
Engin sérstök tæki
Mörg heilsubótarkerfi kosta
mikið fé. Það á ekki við um
skokkið. Konur, sem aðeins eiga
háhæla skó, verða þó að fá sér
skó með lágum hælum.
Engin sérstök mannvirki
Opnið bara útidyrnar og svo getið
þið byrjað!
Tekur lítinn tima
Hver vika er 10.080 minútur. Ef
þið skokkið 3 daga vikunnar i 30
minútur, eyðið þið aðeins I það 90
minútum. Ef þið eruð yfir þritugt
og ófús á að verja þessum tima i
þágu betri heilsu, skuluð þið vera
við þvi búin að sóa enn meiri tima
I veikindi siðar á ævinni.
Skokk er fyrir unga sein aldna
Allir, sem eru á aldrinum 7-70 ára
hafa gagn af hóflega vaxandi
þjálfun skokksins. 1 Danmörku
hefur maður einn, Frederik
Larsen að nafni, stundað skokk i
nokkra áratugi. Fyrir nokkru hélt
hann upp á 80 ára afmælið með
þvi að hlaupa 12 km á 1 klst. og 26
min.! Hann varð siðast veikur
áriö 1932
Það er öruggt
Skokkþjálfunin eykst stig af stigi.
Engin hætta er á ofreynslu, ef þið
skokkíð stutta vegalengd fyrst og
smábætið svo við hana.
Styrkir hjarta og lungu
Skokkæfingarnar miða að þvi að
bæta hjarta ykkar, lungu og blóð-
rás með þvi að auka smámsaman
álagsþol þessara liffæra. Sá
dagur kann að koma, þegar lif
ykkar veitur á hæfni þessara lif-
færa.
Hvar á að skokka?
l.S.l. mun beina þeim tilmælum
til sveitastjórna i þéttbýli um
land allt, að komið verði upp
skokkbrautum fyrir almenning i
námunda við sundlaugar og
iþróttaleikvanga, enda hag-
kvæmast að koma þar fyrir bað-
og búningsklefa aðstöðu. Mundu
áreiðanlega margir notfæra sér
þá fyrirgreiðslu. Enginn er þó
skyldugur til að nota þessa að-
stöðu, ef hann vill heldur skokka
einn og á stað, sem hann velur
sjálfur. Bezt er að skokka þar
sem mjúkt er undir fæti, t.d. á
grasi eða i sandfjöru. Það gefur
fjaðurmagn, sem fer vel með
ökkla og hné. Einnig má skokka
úti á þjóðvegi, i skemmtigarði, á
auðu bilastæði, á auðri
byggingarlóð, i iþróttasal eða
bara heima hjá sér. Réttur fóta-
búnaður hefur mikla þýðingu, ef
brautin er hörð.Skórnir þurfa þá
að vera með sterkum, mjúkum
sólum og góðu innléggi.
Skiðaferðir eru mjög vinsælar
og mjög margir stunda skiða-
iþróttirnar. Það er gott til þess að
vita, hvað margar fjölskyldur
aka saman út úr bænum um
helgar með skiði og sleða til þess
að njóta hreina loftsins og
náttúrunnar i heilbrigðum leik.
Margra iþróttagreina hefur
ekki verið getið, en eru mjög
skemmtilegar og allir fjölskyidu-
meðlimir geta tekið þátt i. Þar
m4. nefna skautaiþróttina og
vonandi er þess ekki langt að
bíða, að hægt verði að renna sér á
velfrystu skautasvelli hér i borg-
inni, þegar ekki er frost úti.
Þið verðið hraustari og
og hraustlegri.
Þjálfunin örvar blóðrásina,
styrkir vöðvana og eykur þér
bjartsýni. Skokkið grennir
mjaðmir og læri, styrkir slaka
vöðva og sléttir magann. Þeir,
sem eru vel á sig komnir, eru lika
hraustari á kynlifssviðinu. Þetta
hefur einnig sálfræðileg áhrif. Ef
þið eruð hraustleg I útliti, þá
eykst einnig sjálfstraust ykkar.
Ykkur finnst, að þið séuð meira
aðlaðandi.
Eykur þol og öryggi
Skokkið eykur afköst ykkar i
vinnunni án þess að þið ofbjóðið
hjartanu. Hraustur skokkari er
ekki meðal þeirra, sem fá fyrir
hjartað við óvænta áreynslu.
iljálpar ykkur til að léttast
Skokk, ásamt skynsamlegu
mataræði, tryggir að þið léttist, ef
með þarf. Þið brennið hita-
einingum ört með þvi að ganga og
skokka. Þið léttist með þvi að
eyða meiri orku, er nemur þeim
hitaeiningum. sem þið fáið i fæð-
unni. b;ð léttist á þvi að
skokka.en þvi aðeins, að þið
troðið ykkur ekki út af mat þegar
heim kemur.
Það er aldrei nóg brýnt fyrir
fólki, að likamanum er góð
hreyfing nauðsynleg, hvort
heldur hennar er aflað með
þessum sigildu Iþróttum eða
gönguferðum. Allir geta stundað
einhverja iþrótt, bara ef þeir gefa
sér tima til þess.
Klæðnaður.
Fyrir skokkið er heppilegast að
nota sérstakan æfingabúning, þó
að það sé alls ekki nauðs-ynlegt.
Léttur og skjólgóður fatnaður er
allt, sem þið þarfnizt. Forðast ber
þröng föt, sem hindra eðlilegan
blóðstraum um likamann. Notið
höfuðfat og vettlinga, þegar kalt
er i veðri. Einnig eru siðar nær-
buxur nauðsynlegar innanundir
æfingabúninginn i kulda. Hægt er
að fá keypta hentuga skó, sem
sérstaklega eru ætlaðir fyrir
skokk. En einnig má nota ýmsar
aörar gerðir af skóm, sem eru
mjúkir og falla vel að ilinni.
Við aðrar iþróttagreinar er
nauðsyn að fá keypta hentuga
skó, sem sérstaklega eru ætlaðir
fyrir skokk. En einnig má nota
ýmsar aðrar gerðir af skóm, sem
eru mjúkir og falla vel að ilinni.
Við aðrar iþróttagreinar er
nauðsyn að fólk noti réttan búnað
fyrir hverja iþróttagrein fyrir sig,
þvi að ef ekki er notaður rétti
búnaðurinn, er alltaf hætta á
meiðslum. Við fáum leið-
beiningar um réttan útbúnað hjá
sérverzlunum með iþróttavörur.
Enn fremur má minna á, að
I.S.Í. gefur út leiðbeininga-
bæklinga um alls konar „trimm”,
og getur fólk snúið sér til skrif-
stofu l.S.t. og fengið allar upp-
lýsingar þar að lútandi.
Hvará abskokka?