Vikan - 31.01.1974, Side 8
Þarftu aö bæta?
Ertu
mm
•r-rT-r
Viltu bre
<7
litskver
GRENSASVEG118,22,24
SÍMAR: 32266-30280-30460
Dósturinn
ER STJÖRNUSPÁIN
ÖRUGG?
Kæri Póstur!
Mig langar til aö spyrja þig,
hvort það sé óhætt að treysta
stjörnuspánni. Ég hef venjulega
farið eftir henni, en ekki alltaf.
Hvernig fara hrútur (stelpa) og
dreki (strakur) saman, en hrútur
(stelpa) og hrútur (strákur)?
Svo þakka ég allt gott i Vikunni.
Þakka fyrirfram fyrir birting-
una.
Gerður
P.S. Hvernig er skriftin og hvað
heldur þú að ég sé gömul.
Stjörnuspánni á að vera nokkuð
óhætt að treysta. Vitaskuld fer
það töluvert mikið eftir þvi,
hvenær sólarhringsins og hvar i
merkinu þú ert fædd, en i aðalat-
riðum á spáin að vera örugg.
Hrútur og dreki eiga varla skap
saman, þvf að bæði gera miklar
kröfur, sem þau eiga erfitt með
að slá af. Tveir hrútar eru annað
hvort yfir sig hrifnir hvor af öðr-
um, eða þeir hata hvorn annan
eins og pestina. Skriftin er ekki
afleit, en frágangur bréfsins heföi
mátt vera vandaöri. Þú ert ekki
eldri en fjórtán ára.
OF UNG TIL AÐ
VERÐA MÓÐIR.
Kæri Póstur!
Þakka þér fyrir allt gamalt og
gott. Ég er ein þeirra, sem eru i
vanda. Ég er aðeins tólf ára og er
ófrísk eftir átján ára strák. Ég er
ekki búin að segja honum frá þvi
og ekki pabba og mömmu heldur.
Heldur þú, að ég geti fengið
fóstureyðingu og þá hvar? (Éger
komin einn og hálfan mánuð á
leið). Svo er eitt vandamál enn.
Strákurinn veit ekki hvað ég er
gömul Hann heldur. að ég sé
fimmtán ára.
Elsku Póstur! Láttu þetta ekki
lenda i ruslakörfuna, þvi aö mér
liggur svo mikiö á svari. A.S.
Það fyrsta, sem þú átt aö gera,
er aö fara til læknis og fá úr þvi
skorið, hvort þú ert i rauninni
ófrisk eða ekki. Kannski ertu búin
að þvi, en ef svo er ekki, þá get-
urðu ekki verið alveg viss, þvi að
þú ert svo ung, aö ekkert er eðli-
legra en tiðir séu ekki orðnar
reglulegar hjá þér enn. Verði úr-
skuröur læknisins sá, eöa sé þeg-
ar orðinn, að þú sért barnshaf-
andi, skaitu umsvifalaust segja
piltinum-og foreldrum þinum allt
af létta. Segðu piltinum lika frá
þvi, hyað þú ert ung og láttu for-
eldra þina vita, að þú hafir talið
honum trú um, að þú værir eldri
en þú ert. Svo veröið þiö öll fjögur
að ráða fram úr þessu vandamáli
I sameiningu, þvi að öll eigiö þið
nokkra sök á að svona er komiö.
HÚS í GRIMSEY
OG FLEIRA.
Daginn Vikupóstur og gleðilegt
ár!
Tilefni þess að ég skrifa þér, er
að mig langar að biðja þig ásjár i
ýmsu, sem mér liggur þungt á
hjarta um þessar mundir.
Nr. 1. Hvert á maður að snúa
sér, ef mann langar ofsalega til
að verða þjóðlagasöngkona?
(Þ.e.a.s. ef maður hefur hæfileika
i ríkum mæli).
Nr. 2. Hvar er hægt aö fá keyptan
hvolp af smávöxnu kyni hér á
landi?
Nr. 3. Alitur þú, að kona geti
verið háseti um borö i fiskibát á
vetrarvertið?
Nr. 4. Er hægt að fá leigt eða
keypt hús I Grimsey?
Nr. 5, Er það alltaf sami maður
(eða kona), sem svarar bréfum,
sem berast Póstinum ?
Nr. 6. Hvað heitir elzta, uppi-
standandi kirkja á landinu?
Nr. 7. Hvað gerir fill, sem hefur
klifrað upp i tré, og kemst ekki
niður?
Afsakaðu þessa siðustu, ég ræð
bara ekkert við striðnina i mér.
Og svo að siðustu, hvérnig er
skriftin og hvað lestu úr henni,
hvað er ég gömul og svo framveg-
ls — Blessaður Póstur minn.
1071-6888.
Það er vist ekkert annað að
gera en vinda sér beint i að svara
spurningunum og reyna að létta á
þinu þjakaöa hjarta.
1. Það ætti aö vera auðvelt, ef
hæfiieikarnir eru I rikum mæli.
Reyndu að hafa samband við
stjórnendur skemmtiþátta I fjöl-
miölum, hljómplötuútgefendur,
eöa skem mtikraftamiölunar-
skrifstofu. Einhver þessara aðilja
hlýtur aö gcta greitt götu þina.
2. Þeir fást ekki á opinberum
markaði hérlendis, a.m.k. ekki
svo Póstinum sé kunnugt um.
Reyndu smáauglýsingu í ein-
hvcrju dagblaðanna.
3. Þvi ætti hún ekki að geta
það?
4. Ætli það ekki. Nú ef ekki, þá
ætti að vera hægt að fá bygginga-
leyfi þar.
5. Yfirlcitt er það, já.
(>. Grafárkirkja á Höfða-
strönd og bænahúsið á Núpsstað
cru að stofni til frá 17. öld. Annars
er kannski svolitiö vafasamt að
telja þetta elztu guðshús landsins,
þvi að á þeim hafa verið gerðar
svo miklar endurbætur, að við
liggur aö húsin séu ný, þó að
þau liti út eins og þau gerðu
i upphafi. llins vegar eru
veggir Hóladómkirkju frá
árinu 1763, en innviöir kirkj-
unnar nýrri. A síöustu öld var sett
ný innrétting I kirkjuna og henni
þá brcytt, en þetta hefur nú verið
lagfært og kirkjan litur út eins og
þegar hún var vigð fyrir rúmum
tvöhundruð árum.
7. Ekkert að afsaka. Fillinn
skriður út á eitt iaufblaðið á trénu
4 VIKAN 5. TBL.