Vikan - 31.01.1974, Síða 25
í sumar var opnaður i New
York veitingastaður, sem aö þvi
bezt er vitað er eini veitingastað-
urinn, sem hundum oinum er ætl-
aður. Þykir hundaeigendum þar i
borg þetta stort skref i framfara-
átt, þvi hvers vegna skyldu hund-
ar ekki fá að eiga kost á að hittast
á veitingahúsi þar sem húsbúnað-
ur og matur er við þeirra hæfi og
spjalla þar við aðra hunda yfir
ljúffengum réttum?
Þessi nýi veitingastaður heitir
„Animal Gourmet”, sem liklega
verður að þýða með „Matdýrið”
(sbr. matmaður) fremur en
„Sælkeradýrið”. A matseðlinum
eru tveir forréttir, 11 aðalréttir og
eftirréttur. ödýrasti rétturinn er
rækjukokkteill, sem kostar um 50
krónur (Isl.),en dýrasti rétturinn
er afmælistertan, sem kostar um
400krónur. Annað á matseðlinum
er lifrarkæfa, kjúklingar mat-
reiddir á tvo vegu, steikt kjúkl-
ingalifur, nautakjöt matreitt á
fjóra vegu, steikt nautalifur,
steikt nautanýru, fiskflök og
sænskar kjötbollur. Ef hundar
vilja ekki afmælistertu i eftirrétt
geta þeir fengið sérstakan rjóma-
is, sem veitingamaðurinn fram-
reiðir eftir ósk hvers viðskipta-
vinar. Borðin, sem snætt er við,
eru aðeins 8 sentimetra há en
stólar eru óþarfir. Einnig þykir
ekki taka þvi að leggja hnifa og
gaffla á borðin, þar sem hundar
eru heldur klaufskir i meðferð
.þeirra.
Eins og sagt var frá hér i blað-
inu fyrir nokkru er sálfræðiþjón-
usta fyrir hunda að verða nokkuð
algeng vestanhafs, þvi geðræn
vandamál eru að aukast mjög
meðal hunda. Hraðinn i stórborg-
arlifinu veldur streitu hjá hund-
um ekki siður en mannfólki og
ekki bætir það sálarástand og
sjálfsvirðingu hunda að þurfa að
sitja við fótskör meistara sinna á
veitingahúsum og láta sér nægja
einn og einn bita undir borðið.
Vonast „sannir” hundavinir nú til
að fleiri veitingastöðum verði
komiö upp að fyrirmynd ..Animal
Gourment” i New York og þannig
stuðlað að þvi að endurreisa nið-
urbælda sjálfsvirðingu hunda um
leið og þeir gera sér dagamun.
WILK
: m >,
yXyýy.ýyy.ý:
Ekki er okkur kunnugt um
hvort salerni og snyrtiaðstaða eru
á veitingastaðnum, en gera verð-
ur ráð fyrir að svo sé, þvi sam-
kvæmt áliti sérfræðinga myndi
þessi veitingastaður liklega fá
þrjár stjörnur i gæðamati.
Ef við bregðum okkur austur
yfir Atlantshaf, þá höfum við ekki
haft spurnir af að veitingastöðum
á við þennan hafi verið komið þar
upp. Aftur á móti var fyrsta
hundasalernið opnað i London
fyrir nokkru með mikilli viðhöfn.
Var fenginn stór og tignarlegur
hundur til að vigja salernið, sem
er staur i likingu við brunahana
og stendur hann i sandkassa. Biðu
viðstaddir með öndina i hálsinum
— en án árangurs. Hundurinn
horfði i kringum sig, alveg undr-
andi á mannfólkinu að ætlast til
þess að hann færi að væta þennan
staur. Vissi fólkið ekki að enginn
hundur með sjálfsvirðingu lætur
sér detta i hug að væta staur, sem
enginn annar hundur hefur vætt á
undan honum?
Við hundasalernið er skilti þar
sem á stendur: „Þjálfið hunda
ykkar i hreinlæti”. En hver
hundaeigandi veit að hundar láta
ekki segja sér fyrir verkum i
þessum efnum og bildekk, ljósa-
staurar, húshorn og trjábolir, að
ógleymdum brezku póstkössun-
um, halda áfram að verða uppá-
haldsstaðir hunda.
Veitingastaðurinn, sálfræði-
þjónustan og salernið eru það
nýjasta i hundaiðnaðinum, sem
orðinn er all umfangsmikill. t
matvöruverzlunum erlendis er
hægt að fá ótal tegundir af hunda-
mat og i vöruhúsum er hægt að fá
flest, sem hunda og eigendur
Við vígslu hundasalernisins i
i.ondon mættu konur með mót-
mælaspjöld og fóru fram á að,
borgaryfirvöldum bæri fremur að
greiða niður mjólk til skólabarna
en eyða peningum i hundasalerni.
þeirra dreymir um, svo sem
hundaleikföng, hundasælgæti,
hundarúm, hundasápu með ilm-
efnum og hundaföt. Gistihús eru
viða rekin fyrir hunda og geta
þeir dvalizt þar ef eigendur
þeirra þurfa að bregða sér i
burtu. Á snyrtistofum geta hund-
ar fengið feld sinn klipptan,
snyrtan og ilmborinn og árangur-
inn sést bezt á hundasýningum
sem haldnar eru ariega.
Ja, hvað skyldu islenzkir hund-
ar segja við þessu hvort sem þeir
eru islenzkir rikisborgarar eða
dveljast hért óleyfi? Ætli þeir öf-
undi ekki erlenda hunda, sem að-
gang hafa að öllum þessu lifsgæð-
um? Vafalaust — en þeir geta
huggað sig við að þessi lúxus get-
ur varla verið langt undan þvi
fyrsta skrefið i hundamenning-
unni hefur þegar verið stigið með
fegurðar-og hæfileikasýningunni,
sem haldin var i Hveragerði i
sumar.
Valið getur verið erfitt.
5. TBL. VIKAN 21