Vikan - 31.01.1974, Síða 28
, ,Ég er bara húsmóðir”, er
setning, sem oft er vitnað i, þegar
verið er að tala um hvernig hús-
mæður meti sjálfar störf sin.
Þeim finnst mörgum þær ekki
gera neitt, sem umtalsvert er, —
enda kannski vanar þvi að störf
þeirra séu tekin sem sjálfsagður
hlutur og ekki metin sem eiginleg
vinna. Þær eru bara heima.
Okkur er ekki kunnugt um að
fyrir liggi nokkur könnun á þvi
hve meðalstarfsdagur islenzkrar
húsmóður er langur. Slik könnun
er mjög flókin og erfið i fram-
kvæmd. Vinnudagurinn getur
byrjað snemma og endað seint,
þótt fristundir gefist um miðjan
daginn meðan „vinnandi fólk” er
við störf. Húsmóðir getur verið
tvo klukkutima að ljúka ákveðnu
verki, ef hún hefur nægan tima og
fiýtir sér ekki, en gæti ef til vill
lokið verkinu eins vel á klukku-
tima, ef hún flýtti sér. Góður hluti
Islenzkra húsmæðra vinnur utan
heimilis, hluta úr degi eða fullan
vinnudag, og auðveldar það ekki
leitina að ,, meðalhúsmóður”,
enda verður hér ekki gerö nein
tilraun til að komast að þvi hver
hún er.
1 Þýzkalandi hefur Rannsókna-
stofnun heimilisins komizt að
þeirri niðurstöðu, að starfsdagur
þýzkrar húsmóður sé að meðal-
tali 11 stundir og er hún talin
Evrópumet i iðni. 1 Frakklandi er
vinnudagur húsmóður talinn frá
7,7 stundum upp i 10 stundir og
sýna þessar tölur, að vinnudagur
húsmóður I þessum löndum er
mun lengri en hinna „vinnandi
stétta”.
Ef við litum á I hverju störf
venjulegrar húsmóður eru fólgin
kemur I ljós, að hún gerir sitt af
hverju. Hún eldar mat, bakar,
ber á borð, þvær upp, ræstir, ger-
ir hreint, þvær þvotta og straujar,
annast börn, aðstoðar þau oft á
tiðum viö nám, saumar, prjónar
og annast viðhald á fötum, svo
eitthvað sé nefnt. Þessi störf út-
heimta i heild mikla hreyfingu og
orku og ættu húsmæður þess
vegna ekki að þurfa að fara i leik-
fimi til að liðka sig að vinnudegi
loknum. Er þetta talið koma hvað
bezt fram i kvikmynd, sem kvik-
myndatökumaður einn brezkur
tók dag nokkurn af konu sinni, frá
þvi hún fór á fætur þar til hún
lagðist út af um kvöldið. Hún
hafði heimili og þrjú ung börn að
annast og þegar kvikmyndin var
sýnd, á aöeins meiri hraða en hún
haföi verið tekin á, kom greini-
lega i ljós, að i skrokknum var
vart sá vöðvi, sem ekki var eitt-
hvað notaður, teygður eða herpt-
ur. Hefði þjálfuðum fimleika-
manni af sterkara kyninu liklega
þótt nóg um að endurtaka þessar
hreyfingar.
1 umræðum um hvers virði
störf húsmóðurinnar séu, er oft
bent á, að þau verði ekki metin til
fjár, svo mikilvæg séu þau. Ekki
verður borið á móti þvi hér. En
það ætti að vera allt i lagi fyrir
húsmóðurina að setjast niður einn
daginn (máske daginn, sem hún
er heldur dauf i dálkinn og finnst
hún vera einskis virði og einskis
metin), fá sér góðan kaffibolla og
reikna út hve mikið hún fengi fyr-
ir störf sin ef hún ynni þau utan
heimilis.
Ef húsmóðirin væri matráðs-
kona með meira en tveggja ára
starfsreynslu, væri timakaupið i
dagvinnu um 225 krónur (meö or-
lofi). Með tveggja ára reynslu i
ræstingu yrði timakaupið eftir tvö
ár um 173 krónur og viö hrein-
gerningar yrðu það tæpar 178
krónur. (Upplýsingar frá Ráön-
ingastofu Reykjavikur i janúar).
Ef konan væri menntuð fóstra
fengi hún rúmar 238 krónur eftir
eins árs starf, en hefði hún ekki
fóstrumenntun en ynni við barna-
gæzlu, fengi hún tæpar 165krónur
á timann eftir tveggja ára starf.
(Upplýsingar frá Sumargjöf). Ef
konan er ekki búin að gleyma
öllu, sem hún lærði i skóla og get-
ur liðsinnt börnum sinum við nám
og þannig komizt hjá þvi að
kaupa kennslu (ef þess gerist
þörf), ætti henni að vera óhætt að
reikna sér 400 krónur á timann.
(Þessi tala er ágizkun, en varla
mjög fjarri þvi, sem kennarar
taka fyrir slik aukastörf). Ef hús-
móðir prjonar og saumar föt get-
ur hún sparað talsverð útgjöld.
Svo nefndar séu tvær tölur til að
gefa hugmynd um sparnaðinn þá
greiðir Alafoss 790— 1095 krónur i
vinnulaun fyrir lopapeysur og
ekki mun vera fjærri lagi að
kjólameista rar taki 5 þúsund
krónur fyrir að sauma sléttan,
stuttan, ermalausan, fóðraðan
kjól. Þannig má halda áfram,
margfalda siðan og leggja sam-
an.
Til gamans getum við sett hér
upp eitt dæmi, en það skal tekið
fram, að það er ekki byggt á nein-
um athugunum og þess vegna
engan veginn vist, að þessi hús-
móðir sé til.
Segjum að húsmóðirin okkar
eyði að meðaltali hálftlma á
morgnana, hálftima um hádegið
og klukkutima á kvöldin i mats-
eld, þ.e. 2 timar á dag, 60 timar á
mánuði. 1 bakstur fara 4 stundir á
mánuði og sem matráðskona fær
hún þvi 64 x 225 — 14.400 kr. Ef
húsmóðirin okkar á þrjú börn, t.d.
tvö i skóla og eitt ungt, gizkum við
á að bein umönnun barnanna
(klæða þau, búa i skóla, gefa
þeim að borða, leika við þau og
tina upp dót, koma þeim i rúmið,
koma þeim i danstima o.s.frv.)
getir verið 3 stundir á dag, þ.e. 90
stundir á mánuði. Ef húsmóðirin
okkar ynni þessi störf á dagheim-
ili sem ólærð aðstoðarstúlka með
tveggja ára starfsreynslu, fengi
hún 90x165 14.850 á mán-
uði. Húsmóðirin okkar á ryksugu
og þvottavél og ef við segjum að
hún eyði klukkutima á dag i ræst-
ingu á íbúðinni, klukkutima i upp-
þvott og eldhúsfrágang, eru það
60 stundir á mánuði, og fari átta
stundir á mánuði i þvotta og átta
stundir i að strauja eru það 16
stundir á mánuði. Sé greiddur
taxti ræstingakonu með tveggja
ára starfsreynslu fyrir ofangreins
störf verður kaupið 174 x 76 —
13.224 kr. Nú er eftir að finna hve
mikill timi fer til innkaupa fyrir
heimilið, i meiri háttar hrein-
gerningu t.d. gluggaþvott og svo i
öll hin störfin. Svo sleppum við
þvi hér að reikna húsmóðurinni
okkar til tekna prjónaskap henn-
ar og saumaskap, enda geysist
eiginmaður hennar þá vafalaust
fram á völlinn með öll sin rök fyr-
ir þvi hve dýr saumavélin hafi
veriö, svo ekki sé talað um
þvottavélina og hve mikill kostn-
aðurinn sé i kringum þetta allt.
Látum heldur húsmóöurina okkar
leggja saman launin fyrir þann
hluta starfa hennar, sem hún á að
fá borgað fyrir i þetta skiptið:
14.400 plús 14.850 plús 13.224, sem
gera 42.474 krónur. Hún leggur
fram reikningfyrir smærri störf
siöar.
Þegar húsmóðirin okkar leggur
fram reikninginn sinn er viðbúið
að hún fái á moti reikning fyrir
húsnæði, fæði og ef til vill ein-
hverju fleiru — en við skulum
kveðja hana áður en aö þvi kem-
ur.
HVERS
VIRDI
STARF
HÚS-
MÓÐURINNAR?