Vikan - 31.01.1974, Blaðsíða 46
Jackson. Nei, ég vildi ekki hitta
Jackson niina, hann neyr&i henni
til, hann myndi hlýða hverju
kalli hennar. Frú Bennett? Hún
var hjá lamaða manninum i her-
bergi hans á þriðju hæð. Skyldi
hann vita hvað um var að vera?
Það brakaði i stiganum.
Ég var næstum komin upp á
breiða stigapallinni þegar ég nam
svo snögglega staðar, eins og ég
stæði fyrir framan byssuhiaup.
Eg fékk ákafan hjartslátt....
Beint fyrir framan mig stóð
Lydia Trendennis, svartklædd aö
venju.
Ég studdi mig við handriðið og
stóð þar sem lömuð, gat bókstaf-
lega ekki hreyft mig úr stað.
Hún virti mig fyrir sér, kulda-
leg og sviplaus.
— Viltu gjöra svo vel að koma
með mér inn i dagstofuna,
Madeleine. Ég þarf að tala viö
þig-
Hún gekk fram hjá mér niður
stigann.
Það var greinileg skipun I rödd
hennar, aö ég hlýddi án þess að
hugsa. Hún nam ekki staðar, fyrr
en hun var komin inn i stofuna.
— Lokaðu dyrunum, Made-
leine.
Ég hlýddi, treglega þó. Hún
stóð alveg hreyfingarlaus. Lang-
ur skuggi hennar náði til min og
það var eins og hann teygði sig æ
nær mér. Ég var óstyrk en tók svo
til máls.
— Mér þykir hræðilega leiðin-
legt að heyra....Ég fretti það i
gær, hve veik þú ert..Láttu mig
endilega vita, ef ég get eitthvað
gert fyrir þig.
Hún veifaði hendinni, eins og
hún væri að stugga frá sér flug-
um.
— Charles sagði mér þessar
hræðilegu fréttir i gær. t fyrstu
gat ég varla trúað þvi, en svo
talaði ég sjálf við lækninn og hann
itrekaði það. Ég hefi aldrei á ævi
minni heyrt nokkuð, sem hefir
haft svo slæm áhrif á mig .
Aldrei!
Ég stóð hnipin og óskaði þess að
ég væri dauð.
— Skilurðu hvað ég er að segja?
— Leiðinlegt! sagði hún hló
kuldahlátri. — Leiðinlegt, það var
þá helzt orðið yfir það.
Ég varð máttlaus i hnjánum, en
þorði ekki að setjast meðan hún
stóö. Ég gekk að einu stólnum og
studdi mig vð bakið á honum til
þess að geta staðið upprétt. Hún
leit ekki af mér.
— Nú?
Hverjuátti égaðsvara? Hverju
bjóst hún við? Ég var með grát-
stafinn i kverkunum og sagöi, að
ég tæki þetta ekki síður nærri
mér. Ég þráði svo heitt að eignast
barn, ég elskaði börn.
— Farðu ekki að vola!
Hún sagði þetta svo hörkulega,
að mér brá við. Ég starði á hana
með galopnum augum. Mér
fannst eins og hún hefði rekið mer
kinnhest. Hún lyfti höndinni, frá-
hrindandi og háðsleg.
— Það gagnar nú litið að vatna
músum!
Hún spurði mig svo, hvort
Charles hefði sagt mér frá sjúk-
dómi hennar. Hvort ég vissi að
hann væri ólæknandi. Ég kinkaði
kolli. .,
— Sagði hann þér, að ég ætti
ekki eftir eitt ár ólifað?
— Já, ég varö svo hrygg, þegar
ég heyrði það.
— Jæja, við sjáum nú til, sagði
hún þurrlega.
Hún hélt áfram að tala, eins og
hún væri að ræða um fram-
kvæmdir við ráðsmanninn. Hún
sagði, að sér væri það mikið i
mun, að sjá til þess að allt kæmist
i fastar skorður á Tregarran, það
væri skylda sin að gera það, áður
en hún dæi. Ekki mátti láta til-
viljanir ráða.
— Þú ert hugrökk kona, tengda-
móðir min, sagði ég.
— Það er mikill munur á þvi
sem þú kallar hugrekki og skyld-
um. 1 okkar ætt hefir skyldan allt-
af verið i fyrirrúmi.
Hvað var hún að fara? Ég tók
eftir þvi, að hún virti mig vand-
lega fyrir sér. Ég hafði það á til-
finningunni, að hún hafði tekið
einhverja ákvörðun, rödd hennar
varð innilegri. Hún gekk frá
glugganum og sagði mér að
setjast. Ég var fegin og hné niður
i stól og hún tók sér sæti and
spænis mér.
— Þú sagöir áðan, að þú værir
hrygg yfir heilsufari minu. Made-
leine. Er það svo að skilja, að þú
viljir hjálpa mér, ef þú gætir?
— Já, að sjálfsögðu.
Ég sá greinilega öll svipbrigði á
ásjónu hennar. Það var ljóst, að
hún hafði gengiö i gegnum miklar
þjáningar. Húðin var ennþá
strekktari yfir kinnbeinin,
varirnar alveg blóðlausar og
djúþ'ir skuggar undir augunum.
— Ég lá vakandi i alla nótt og
hugsaði um það, sem Charles
sagði mér, sagði hún. — Það var
erfið nótt. t gær gekk eg með þá
von stundarkorn, að heitasta ósk
min væri að rætast. Mig grunaði
ekki neitt. Svo heimsk var ég.
Þegar Charlfes sagði mér sann-
leikann, varð ég mjög vonsvikin,
særö....
Andlitið á henni...
Það var undarlegt að sjá það
- svona nálægt sér, sjá hinar hröðu
breytingar, sem svipur hennar
tók. Stundum var eins og svip-
mótið þurrkaðist út. Þá var það
liklega sjúkdómurinn, sem náði á
henni tökum. En svo liöu skugg-
arnir hjá og svipmótið var eins og
meitlað i stein. Ég horfði á hana
og hugsaði með mér, að ég hafði
aldrei trúað að til væri mann-
eskja, sem gæti stjórnað svona
sjúkum likama meö stálvilja.
— Þetta var áfall, hræðilegt
áfall fyrir mig, að heyra að kona
einkasonar mins, gæti ekki
eignazt barn, sagði hún. — Ég gat
ekki fengið verri fréttir, það hefði
ekki verið verra þótt mér hefði
veriðsagt, að Charles væri dáinn.
t rauninni kemur það út á eitt.
Það merkir það, að Trendennis
ættin er dæmd til að deyja út. Ég
þoli ekki að hugsa til þess. Það
má einfaldlega ekki koma fyrir!
Það brann eldur úr augum
hennar. Ég var sem dáleidd. Hún
talaði lágt, en hvert orð dundi á
mér sem hamarshögg.
— Þú elskar son minn, er það
ekki?
— Ofar öllu öðru!
Hún kinkaði kolli og sagði svo,
að hún tryði mér. Ég skyldi lika
fá tækifæri til að sanna það, með
þvi að færa nokkra fórn. Ég
heyrði óljóst, að hún sagði:
— Það er hægt að elska á mis-
munandi hátt. Madeleine... Það
er hægt að sanna ást sina með þvi
að afsala sér ástinni. Hefur þér
aldrei dottiö það i hug?
Ég heyrði þetta eins og gegnum
þoku og nú vissi ég, hvað hún átti
við.
Hálsinn herptist saman og það
var rétt svo, að ég gat stunið upp:
— Þú átt við....átt við hjóna-
skilnað.
Hún kinkaöi kolli.
— Já, ég á við það.
Frh. i næsta blaði.
Hrævareldur
Framhald af bls. 37
Ég kyngdi af hneyslun. —
Hvernig mátti það vera, það var
samt áður en hún rak upp ópið?
Hún var þá ekki fallin i gilið og þú
varst langt i burtu frá herberginu
hennar, i dagstofunni.
— Ég... ég veit það ekki, þetta
er allt svo ruglingslegt. Hún
hljóðaði, en ég get ekki munað,
hvenær það var. Ég heyrði það og
hljóp upp stigunn. Og þar var
Shan, fyrir neöan stigann. Hún
sagði mér að fara upp og bíða.
Hun sagði, að ég skildi ckki taka
mark á þessu. Og svo fór hún inn i
dagstofuna og fór út að glugg-
anum, sem var næstur svölunum
fyrir utan herbergi mömmu.
— Og hvað sá hún?
— Hún sagði mér það ekki. Hún
vildi aldrei tala um það. Hún
sagðist vera búin að gleyma þvi
öllu. Þegar lögreglan kom, var ég
uppi I herberginu minu og háttuð.
Shan sagði þeim, að ég væri lasin.
Þeir vissu aldrei, að ég hefði
42 VIKAN 5. TBL.