Vikan - 31.01.1974, Blaðsíða 52
ERLENDUR HER A ÍSLENZKU TÚNI
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig draum,
sem mig dreymdi fyrir stuttu. Hann var svona:
Mér fannst ég vera stödd heima hjá mér og eiga að
fara í vinnu eitthvað út á land. Ég var að leggja af
stað til þess að kveðja fólkið í næsta húsi. Þegar ég
kem út, séég litla flugvél f Ijúga lágt yfir húsið heima.
Ég horfi á hana og dettur strax í hug, að þetta sé
strákur, sem ég var með i fyrra, en hann átti litla
f lugvél og f laug henni hér, en þegar ég gái betur að, sé
ég að hún er grá að lit og með erlendum einkennisstöf-
um. Mér bregður við og ég fer inn aftur til að segja
pabba og mömmu frá þessu. Þá heyrum við manna-
mál úti og ég segi við pabba: ,,Þú hleypir ekki þessum
mönnum inn”.,, Nei". segir hann og f er út. Ég f ór með
honum*þá sjáum við, að kominn er múgur og marg-
menni á túnið hjá okkur. Mér fannst mennirnir hafa
komið með f lugvélinni og vera njósnarar. Ég og pabbi
gengum til þeirra og þeir fara að reyna að tala við
okkur. Mér fannst við skilja, hvað þeir sögðu.
Allt í einu fara mennirnir að kasta einhverjum fer-
köntuðum stykkjum út um allt tún og ég segi við
pabba, þó að ég væri hrædd: „Ætlarðu að láta þá
henda þessu helvíti hér um allt ? Mér fannst reiðin
verða hræðslunni yfirsterkari í huga mínum.
Pabbi svaraði mér engu, en leggur af stað í átt að
húsinu heima og ég fer á eftir honum. Við verðum
þess þá vör, að f yrir utan húsið standa tveir bílar með
erlendum einkennisstöf um. Bílar þessir voru afar litl-
ir og mér fannst þeir nánast vera leikfangabílar. Við
sinntum þeim engu og förum inn í húsið.
Þessu næst f innst mér ég vera stödd í einni búðinni
hér á staðnum. Þar voru allir að tala um þessa menn,
sem hingað væru komnir og væru að rannsaka hér allt
og njósna. Mér f annst eins og búið væri að breyta öllu
þarna inni í búðinni. í eitt hornið þótti mér sem komin
væri skrifstofa. Ég geng þangað inn og þar situr þá
stákurinn, sem átti flugvélina og ég var með í fyrra.
Mér fannst eins og þungu fargi væri af mér létt, þegar
ég lít hann augum. Við förum að spjalla saman. Hann
spyr mig, hvað ég sé að gera núna og ég segi honum
eins og var, að ég hef ði ætlað út á land að f á mér at-
vinnu, en sé hætt við það vegna þessa skyndilega her-
náms. Ég bætti því við, að mér litist svo á, að stríð
væri yfirvofandi og gæti skollið á, þegar minnst von-
um varði. Hann svarar því engu, en spyr hvort hann
eigi að útvega mér vinnu. Ég tek því líklega en spyr þó
við hvað það eigi að vera. Hann segir mér, að það
verði einna helzt við að grafa holur. Mér leizt alls ekki
illa á holugröft sem atvinnu en vildi þó fá að hugsa
málið. Þá kemur inn maður og mér fannst hann vera
einn af hernámsliðinu. Þessi maður er með blað í
hendinni. Það var einna helzt líkt ávisun að sjá, en þó
var það ekki ávísun. Hann sýnir okkur blaðið og ég tek
við þvi og les. Kemst ég þá að raun um, að verið er að
leita álits fólks á því, hvort það vilji stríð eða ekki. Ég
skrifa nei undir, en hika viðað rétta honum blaðið, því
að ég var hrædd um að hann kynni að reiðast svari
minu. Ég vaknaði svo, áður en ég hafði rétt honum
blaðið.
Mig dreymir ekki oft þannig, að ég muni draumana
greinilega, en þennan draum dreymdi mig undir
morgun og ég man hann greinilega og vona, að þú sjá-
ir þér fært að ráða eitthvað úr honum.
Beztu þakkir og kveðja. Sigurbjörg.
Þú gerir þér hærri hugmyndir um piltinn en hann í
raun og veru á skilið. Ekki er þó svo að skilja, að hann
sé ekki allrar virðingar verður, en þú ímyndar þér
hann meiri mann en hánn er. Þiðeigið eftir að kynnast
nánar og allmiklar sviptingar verða milli ykkar, en
ekki er gott að sjá af þessum draumi, hvernig þeim
kemur til með að lykta.
VIÐ JARÐARFÖR.
Kæri þáttur!
Mig langar til að biðja þig að ráða þennan draum
fyrir mig sem allra fyrst.
Mér fannst ég vera stödd við jarðarför föður míns
og móður, en þau dóu bæði fyrir þremur árum. Mér
fannst kisturnar báðar vera svartar. Þegar átti að
fara að bera kisturnar út úr kirkjunni reis móðir mín
allt í einu upp úr kistu sinni og bað bróður minn að
opna kistu f öður míns og hann gerir sem hún biður. Þá
dregur hún upp hring með Ijósf jólubláum steini og
dregur á fingur föður mínum og segir: „Ég var búin
að lofa honum að gefa honum hring." Svo leggst hún
aftur niður i kistuna og kisturnar voru siðan bornar út
oq qrafnar
Á eftir var haldin erfidrykkja og þar voru allir að
votta mer samuð sina og þeirra a meðal tilvonandi
tengdamóðir mín, sem ekki hefur talað við mig í þrjú
ár. Og í því vaknaði ég.
Með fyrirfram þakklæti. Hanna.
Þessi draumur er fyrir batnandi hag þinum. Þú
sættist við tilvonandi tengdafólkið, að öllum líkindum
á harla óvenjulegan hátt.
sisiassssssissísaasasías
INNBROT OG STÓRÞJÓFNAÐUR
Kæri draumráðandi!
Ég hef aldrei skrifað þér áður, en mér þætti afar
vænt um, ef þú sæir þér fært að verða við þeirri bón
minni að ráða þennan draum fyrir mig.
Mér fannstég vera að brjótast inn hjá milljónamær-
ingi. Innbrotið gekk vel og ég stal f rá honum mörgum
milljónum. Svo hljóp ég út úr húsinu og hóf f lóttann.
Ég á mótorhjól og flýði á því. En fljótlega sá ég, að
lögreglan var á eftir mér og herti því ferðina allt hvað
af tók. Ég fór austur að Þingvöilum. Þar gætti ég mín
ekki nægilega vel, því að ég ók út í gjá með þeim af-
leiðingum að ég fótbrotnaði.
Draumurinn varð ekki lengri.
Með beztu kveðju og þökkum. E.S.
Þú verður fyrir einhverjum verulegum fjárhags-
legum ábata á næstunni, en ekki er ólíklegt að útgjöld
þin aukist einnig til muna, en þó ekki svo að ágóðinn
fari allur beint i aukin útgjöld.
SVAR TIL GRALOPPU
Þú lendir i einhverjum vandræðum, þó alls ekki al-
varlegum. Helzt gizkum við á, að þér verði strítt
meira en þú átt gott með að þola og það verður til þess
að þú gerir eitthvað, sem þú átt eftir að sjá eftir í svo-
litinn tíma.
48 VIKAN 5.TBL.