Vikan - 12.06.1975, Blaðsíða 12
„ÖRYGGI FRAMAR ÖLLU
Dósturinn
„ORVGGI FRAMAR OLLU
BDÖRNSSONACO,
SKEIFAN 11 SÍMI 81530
Á SAAB
kemstu langt...
SAAB99
NR. 1 í SPARAKSTURSKEPPNI.
í sparaksturskeppni íslenzka bifreiða- og
vélhjólaklúbbsins 20. okt. 1974, var SAAB 99
fyrstur í V. fl. vélarstærð 1901—2200 rúmcm. með
6.631. á 160 km.
SAAB96
NR. 1 í SPARAKSTURSKEPPNI.
f Sparaksturskeppni íslenzka bifreiða- og
vélhjólaklúbbsins 20. okt. 1974, var SAAB 96
fyrstur í III. fl. vélarstærð 1301—1600 rúmcm. með
5.20 I. á lOO km.
OF HORUÐ
Elsku póstur!
Ég ætla að koma mér beint að
efninu. Svo er mál með vexti, að
ég er mjög grönn. Ég er alltaf aö
reyna að éta og fitna, en það
gengur ekki, vegna þess að ég
brenni svo miklu. Svo reyni ég
lika að éta mikiö salt og sælgæti,
en þá fárast mamma yfir, að ég
eyði svo miklum peningum i
vitleysu
Hvað á ég að gera? Á ég að
halda áfram að troða og troöa i
mig svo mér fer að liða illa? Ann-
ars er það þannig, að ef ég borða
mig pakksadda eins og til dæmis
á sprengidaginn, verð ég aftur
svöng eftir svona fimm til tiu
minútur. Ofan á þetta bætist svo,
að ég fæ varla föt, sem passa mér
hérna i bænum.
Grennist maður af að borða
ávexti? En ef maður reykir (fikt-
ar) eða stundar sund?
Hvernig er skriftin og stafsetn-
ingin? Hvað lestu úr skriftinni og
hvað helduröu, að ég sé gömul?
Svo vona ég, að þú svarir þessu
bréfi, en fleygir þvi ekki i rusla-
körfuna.
Með fyrirfram þökk.
Ein of grönn.
Pósturinn kallar ekki allt
ömmu sina og þó liggur við, að
honum vefjist tunga um tönn,
þegar hann á að fara að fita fólk.
En ef hann misminnir ekki, fór
fram árangursrikur megrunar-
kúr á vegum Vikunnar fyrr á
þessu ári, og þessi megrunarkúr
byggðist fyrst og fremst á þvi að
útiloka öll kolvetni úr fæðunni.
Ætli þá sé ekki heiilavænlegast að
borða bara nógu mikið af kolvetn-
um til þess að fita sig? Farðu
samt varlega og hafðu samráð
við lækni um fitukúrinn. Sam-
kvæmt megrunarregium dr.
Atkins og Vikunnar grennist fólk
ekki af að borða ávexti, þvi að
þeir innihalda kolvetni. Reyking-
ar eru ekki fitandi — svo mikið er
vist. Sund er holl og góð hreyfing,
jafnt feitum sem horuðum. Staf-
setningin er ágæt, en ekki get ég
sagt mér finnist skriftin þin
falleg, og úr henni les ég aðallega
tilgerð og smámunasemi.
FJÓRÐA BRÉFIÐ
Kæri Póstur!
Við erum hér tvær vinkonur og
okkur langar til aö spyrja þig
nokkurra spurninga. Og við von-
umst til að þetta bréf verði birt,
en lendi ekki i hinni frægu rusla-
körfu eins og þau þrjú bréf, sem
við höfum skrifað þér áður.
1. Hvaða próf þarf til að komast i
ljósmæðraskólann?
2. Hvaö tekur námið þar langan
tima?
3. Hvaða próf þarfiii að komast i
hjúkrunarskólann?
4. Hvaða krem er best að nota viö
bólum i andliti?
5. Heldur þú, að það geti skemmt
hárið að þvo það oft i viku?
6. Hvernig eiga saman naut
(stelpa) og ljón (strákur), og
hvernig eiga saman ljón (stelpa)
og vatnsberi (strákur)?
Jæja, þetta ætti að nægja, og
svo i lokin þetta vanalega:
Hvernig er skriftin og hvað held-
urðu, að ég sé gömul?
Tvær forvitnar.
Snúum okkur fyrst að aldrinum
og skriftinni. Þið eruð báðar
fjártán ára og skrift ykkar er það
ómótuð ennþá, að ómögulegt er
að lesa nokkuð ákveðið úr henni.
Til dæmis er hún svo áþekk að
ætla mætti, að þið væruð mjög
svipaðar að eðlisfari, en Póstur-
inn giska ■ á, að svo sé aldeilis
ekki. Til þess að komast I ljós-
mæðraskóla þarf að hafa gagn-
fræðapróf og námið þar tekur tvö
ár. Til þess að komast i
hjúkrunarnám þarf að hafa lokið
prófi úr framhaldsdeildum gagn-
fræðaskóla eða stúdentsprófi.
Hvaða krem er best.á bólur er
ákaflega mismunandi eftir eigin-
ieikum húðarinnar og þú skalt
endilega hafa samráð við lækni
um val þess. Ekki held ég, að hár-
ið skemmist að ráði, þótt það sé
þvegið nokkuð oft. Hins vegar er
ekki ástæða til þess að þvo það á
hverjum degi og sé það gert, er
auðvitað svolitil hætta á, að það
reitist og slitni. Naut (stelpa) og
ljón (strákur) ættu að vara sig
hvort á öðru, þvi að bæði eru ótrú-
lega þrjósk og eiga erfitt meö aö
þola hvort annað til lengdar. Um
samband ljóns (stúlku) og vatns-
bcra (pilts) segir svo I Stjörnuspá
ástarinnar: Fyrsta ástin verður
dásamleg, en eftir það er hætt
við, að sambúðin verði hroðalega
stormasöm.
A BÚGARÐ
I ASTRALIU.
Kæri Póstur!
Við erum tvær fimmtán ára
stelpur, og okkur langar til að
vita, hvort ekki sé hægt að
komast i vinriu á búgarði I Astra-
liu. Hér eru nokkrar spurning-
ar....
Með fyrirfram þökk.
Tvær áhugasamar.
Guð hjálpi ykkur! Vitið þið,
hvað það er langt til Astraliu?
Þegar þið hafið kynnt ykkur það
rækilega, skai ég reyna að svara
spurningum ykkar.
HITTOGÞETTA.
Elsku Póstur!
Við erum hérna tvær vinkonur
og langar til að spyrja þig nokk-
12 VIKAN 24. TBL.