Vikan - 12.06.1975, Blaðsíða 17
STEFNUMÓT VIÐ
MONU
Hún hafði fallega rödd, en hefði forvitni
min ekki verið vakin, hefði ég sofnað
aftur. En hvernig átti ég að útskýra fyrir
henni, að ég var ekki Eyvindur.
barna sitjið þið og skemmtiö
ykkur við að hlæja aö mér!
Einmitt núna grettið þið ykkur
framan i hvort annaö og gerið
grin aö mér. Hefði einhver sagt
mér fyrir nokkrum vikum, að þú
myndir koma svona fram við
mig, hefði ég sagt þeim hinum
sama, að hann væri brjálaöur.
Hvers konar maöur ertu eigin-
lega?
— Langar þig að vita það?
bað var engu likara en hún væri
farin að snökta hálfhátt.
— Ekki lengur, sagði hún og
röddin skalf örlitið. — Nei, það
skiptir ekki lengur neinu máli.
Ég var farinn að vorkenna
henni, og ég skammaðist min
fyrir að hafa ekki bundið endi á
þetta simtal fyrir löngu.
— Hlustaðu nú á mig, sagði ég.
— bvi miður er þetta allt saman
misskilningur. Ég heiti ekki
Eyvindur, ég heiti Henrik. bú
hefur hringt i skakkt númer, og
það hefði ég átt að segja þér
undireins. En ég var svo syfjaður,
og auk þess komst ég varla að til
að segja orð.
bað var þögn langa stund.
— Ertu ekki Eyvindur? sagði
hún. — baö hafði ég ekki hug-
mynd um. Hvernig getur þú vitað
þetta allt saman, úr þvi að þú ert
ekki Eyvindur? Ég þekki engan
Henrik og ekki Eyvindur heldur,
svo ég viti.
— Ég veit ekki neitt, sagöi ég.
— Ég þekki ekki Eyvind, sem
betur fer liggur mér við að segja.
bvi miður þekki ég þig ekki
heldur.
— Guð minn góður, sagöi hún.
— Hvaöa númer er þetta?
— 27 53 33
Hún endurtók simanúmerið
hægt.
— bá hef ég hringt I skakkt
númer, sagði hún og andvarpaði.
— Hvað á ég að segja? Mér
þykir svo leiðinlegt að vera að
iþyngja þér með vandamálum
minum. bú hefur vlst áreiðanlega
nóg annað að gera en að hlusta á
mig.
— baðgerðiekkerttil. Ég hefði
bara sofið á meðan.
— Mér heyrist þú vera góður,
sagði hún. — Fyrirgefðu, aö ég
liöi? bú hefur sjálfsagt ekki verið
að hugsa um það. bú ert alltaf
sjálfum þér likur.
— betta er ekki rökrétt hjá þér,
sagði ég. — Maður getur ekki
bæði hafa breytst einhver ósköp
upp á siðkastið og samt verið
sjálfum sér likur. betta segir þú.
Og það kemur ekki heim og
saman.
bú ert óþolandi hrópaði hún yfir
sig reið. — bú lætur sem þú
hrjótir, þú ferð að tala um eitt-
hvað alit annað og læst ekki vita,
hvað ég er að fara. Og svo ferðu
að rengja það sem ég segi ofan á
allt annað. baö er sjálfsagt bara
timaspursmál, hvenær þú ferð að
reyna að telja mér trú um, að
þessi rauðhærða fuglahræða hafi
verið frænka þin frá Bergen, eða
eitthvað i þá átt.
— Rauðhærð. Núvarég farinn
aö hafa áhuga.
— Segðu mér frá þessari rauð-
hæröu, sagði ég.
— Hvernig þú getur látið! bú
dirfist að ganga svo langt að
reyna að gera mig að viðundri!
Ef ég hefði ekki svona mikla
sjálfstjórn, hefði ég skellt á þig.
bá hefðirðu getað staðið þarna
áfram og afsakað þig i það
óendanlega!
— Ég ligg nú reyndar út af,
sagöi ég.
— Liggurðu? sagði hún, og
röddin var litið eitt mýkri. —
Liggurðu? Liður þér eitthvað
illa? bú hefur yonandi ekki
svima, eða þess háttar?
— Neinei.
— Ég varð svolitið hrædd. Ég
veit ég hefði ekki átt að gera það,
sem ég gerði, En það var nú
heldur ekki svo fast. Maður getur
ekki alveg ráðið við sig undir
svona kringumstæðum. bað
stafar eitthvað af adrenalininu,
held ég. En er þér kannski illt I
höföinu?
—-Nei, ég kenni mér einskis
meins, sagði ég.
— Æ, það var gott. En þú segist
liggja. Oooooo! Ég er mesti bjáni
i heimi! Auövitað hefði ég átt að
spyrja þig, hvort þú værir einn!
bað útskýrir allt — þú ert ekki
einn. bað er einhver að hiusta á
okkur og skem mtir sér prýðilega!