Vikan - 22.09.1977, Side 3
ölur
tíska
sem litríkastar og skrautlegastar.
Ýmist leggur fólk það á sig að
setjast niður og „bródera" í
klæðnaðinn eða það þrykkir
mynstrið í.
Það er víst ekki mjög auðvelt
verk að sauma í denimfatnað,
sem er einna vinsælasta efnið um
þessar mundir, en til að auðvelda
ykkur saumaskapinn, ráðleggjum
við ykkur að nota stóra, grófa nál
og stinga henni fyrst í sápustykki!
Á meðfylgjandi myndum sjáum
við ýmis konar útgáfur af skraut-
legum fatnaði, og er ekki að efa,
að einhverjir ættu að fá góðar
hugmyndir af þeim.
Það er ágætt að fá sér göngu-
ferð niður í fjöru og tína skeljar,
þær lífga ekki aðeins upp á fötin,
heldur framleiða þær einnig
skemmtileg hljóð, þegar þær slást
saman. Svo má líka líta í
saumakassann, og taka saman
allar stöku tölurnar, sem þar
liggja, engum til gangs, og festa
þær á jakkann eða buxurnar.
Takið ykkur nú til, þegar daginn
er farið að stytta, og kuldinn nístir
í gegnum merg og bein, setjist
niður með saumana og gleymið
ekki að blanda saman ólíklegustu
litum! — Það styttir hjá ykkur
kvöldin, og gaman væri að sjá
íbúa borgarinnar lífga upp á
tilveruna í svona klæðnaði, þegar
fer að vora aftur, þó það særi
kannski fegurðarsmekk einhvers!