Vikan


Vikan - 22.09.1977, Side 39

Vikan - 22.09.1977, Side 39
■ Svnnu frænda þinum að koma sér hurtu, eða éf{ skemmi þetta falleita andlit þitt." Kegina var skelfingu lostin. Hvers vegna fagnaði helm- ingur borgarbúa frtrnda hennar. en þessi ungi glæpaforsprakki hataði hann og hræddist hann? Dino saug upp i nefið. , ,Síðan i síðustu kosningum. Áður hafði hann einhverja stöðu við háskólann í Róm. Hann er snjall ungur maður, þótt mér geðjist ekki að stjórn- málaskoðunum hans. Sósialistar. Dino hrækti reiðilega. „Hvernig líst Beppo á það?” spurði Edward. „Hann hefur sjálf- ur fylgt kommúnistum meira eða minna. Það hefði mátt búast við því, að Matteo fylgdi í fótspor hans.” með handabandi og sagði kurteis- lega, að hann vonaði að henni líkaði dvölin á ítaliu. Augnaráð hans var enn jafnkalt, jafnvel óvinsamlegt. Hún stamaði út úr sér einhverju álika kurteislegu, en vonaði um leið, að þau þyrftu ekki að umgangast þennan óþægilega mann mikið. „Við erum að fara,” sagði Edward. „Ég vona að ég sjái þig seinna, Matteo. Komdu Regina. Dino, viltu ganga með okkur uppeftir?” Þau gengu upp eftir brekkunni í átt að borgarhliðinu. „Þetta verður honum þungbært,” sagði Dino. „Honum þótti svo vænt um móður sína. Það er kominn timi til að hann fari sjálfur að gifta sig. Maður hefði nú haldið að hann væri búinn að hitta einhverja álitlega stúlku í Róm. Hann hefur aldrei litið á neina hér í Roccaleone. Enda í hans stöðu...” Hann þagnaði snögglega og gaut augunum á Reginu. „Jæja, það skiptirengu máli. Ef’hann ætlar sér að komast áfram á stjórnmála- sviðinu, þá þarf hann góða konu sér við hlið. En auðvitað giftir ekki hver sem er dóttur sína komm- únista. Jafnvel ekki, þótt hann sé á þingi.” „Er hann það?” spurði Regína hissa. Dono skellihló og sló á lær sér. „Feta i fótspor föður síns, já. Þessi var góður, Edward. Þannig er það nú alls ekki með þá. Enginn gæti ásakað Beppo um að koma ekki rétt fram við drenginn, né Matteo um að hann væri ekki skyldurækinn sonur. En þeir halda sig hvor frá öðrum, þessir tveir. Nú þegar Filomena er dáin, munu þeir ekki hittast oft.” Þau gengu inn um hliðið. „Hérna var það, sem þeir fundu fötin af mótorhjólamanninum,” sagði Dino. „Á gamla felustaðnum okkar, Edward.” „Svo þú veist það lika?" spurði Edward. „Lögreglan kom heim til okkar. Þeir vildu fá að sjá fötin hans Tomaso.” Hann sneri sér að Reginu. „Viltu fá að sjá staðinn?” Hann var svo ákafur að hún gat ekki valdið honum vonbrigðum. „Já, endilega,” svaraði hún.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.