Vikan - 15.02.1979, Blaðsíða 12
Það er nokkuð algengt, að
Hafnfirðingar komi til Reykja-
víkur í fataleit, en hins vegar
fremur fátítt, að dæmið snúist
við. Vandséð er þó, hvað mælir
á móti þvi, að svo verði, því á
undanförnum árum hafa
sprottið upp verslanir í
Hafnarfirði, sem eru fyllilega
samkeppnisfærar við aðrar sams
konar verslanir á Stór-Reykja-
víkursvæðinu.
Við fórum i verslunina Eik,
Strandgötu 31, og þar reyndist
mikið úrval fata á bæði kynin.
Fyrirsætur að þessu sinni eru
Hafnfirðingar, systkinin Kol-
brún og Bjarni, Jónsbörn og
einnig Sigriður Einarsdóttir.
Myndirnar eru teknar í og við
Hafnarfjarðarbíó og á heimili
Níelsar Árnasonar, á efstu hæð
hússins, ljósmyndari var Jim
Smart.
Yfir vetrartimann blómstrar
samkvæmislifiö og þá er víst betra að
eiga eitthvað til að skarta. Bleiki kjóllinn
er frá danska fyrirtækinu Amada. Hann
er úr 100% bómull og kostar kr. 19.800.
Svarti kjóllinn er hins vegar sænskur, frá
Victor Hugo. Hann er úr polyester og
bómull og verðið er kr. 25.250.
Hentugur klæðnaður hvort sem er i
vinnuna, skólann eða afmælisboðið hjá
gömlu frænkunum. Önnur i blússu og
pilsi í mildum brúnum lit úr indverskri
bómull frá Tikwk. Blússan kostar kr.
12.420, og pilsið kr. 13.900. Hin klæðist
vesti og pilsi frá Just Candy úr ullar- og
terelyneblöndu.. Verð kr. 22.600 og
skyrtu frá Victor Hugo, sem kostar
10.420 krónur.
12 Vtkan 7. tbl.