Vikan - 15.02.1979, Blaðsíða 20
cpAVSOf
^THUlf
prara^
kiiifiTíIH1'
BTHnrron^
Garðurinn er prýddur blómum og
fögrum stúlkum, og þar situr örn
prins og syngur rómantísk Ijóð fyrir
þær.
En Galan er á þeim aldri, að ást og
rómantík em eitur i hans beinum, og
hann lætur álit sitt í Ijósi.
© Bvlls
m
eé ■
Yngri bræður geta sannarlega verið
ergjandi, og örn bregður á leik með
sverð sitt. Stúlkurnar hljóða upp yfir
sig.
örn kemst að því, að hann á margt ólært um veikara
kynið. Stúlkurnar senda honum yglibrún, meðan þær
klappa og kjassa litla púkann, bróður hans.
Hann arkar því til vopnabúrsins og skilmist góða rispu
við Gawain. Valíant stendur til hliðar og og er ánægður
með það, sem hann sér til sonar síns.
r ■ í wfcfrw
í
1
En að kvöldi er gleðistund í höllinni. Þá er komið að Aletu að hrósa sigri, þar
sem hún gegnur niður marmaratröppurnar við hlið sonar síns. Valíant kemur í
kjölfarið með gullinhærðar dætur hvora til sinnar handarinnar, og hann gleðst
yfir auðsærri hrrfningu fólksins.
b-z 5
Næsta Vika: Leikarnir.