Vikan


Vikan - 01.03.1979, Side 10

Vikan - 01.03.1979, Side 10
Jim Cucak, forstöðumaður Varitas VHIa ásamt konu skini, Sue Cucak, félagsráðgjafa. í rauninni er auðvelt að fá fólk til að hætta að drekka, vandinn er að halda sér þurrum það sem eftir er ævinnar. Við leggjum mikla áherslu á að þessi sjúkdómur er mjög samantvinnaður, bæði andlegur og líkam- legur. — Það hefur verið okkur mikill heiður og ánægja að starfa með íslendingunum og árangurinn hjá þeim er alveg sérlega góður. Ég mundi segja svona 75-80%. Þessi góði árangur stafar líka mikið af því hversu duglegir íslendingarnir eru við að halda starfinu áfram, eftir að heim er komið, og þeim hefur tekist að gjörbreyta viðhorfunum til þessa sjúkdóms. — Því það er eftirleikurinn sem mikil- vægastur, við getum aðeins gefið fólki góð ráð í veganesti. Algengasta eiturlyfið — Ef við lítum á bandarískar skýrslur, hefur ofneysla áfengis aukist hér mjög síðastliðin 15 ár. En þetta eru ekki raunhæfar tölur. Áfengisvandamálið hefur alltaf verið til staðar í miklum mæli, en það er ekki fyrr en nú að fólk þorir að viður- kenna það opinskátt, horfast í augu við það og leita sér hjálpar. Ég mundi segja, að áfengi hafi alltaf verið og sé enn mest notaða eiturlyfið í heiminum. — Mér finnst alvarlegasta vandamálið á íslandi vera ofdrykkja unglinga. Eins er áberandi ofnotkun íslendinga á tauga- lyfjum (softdrugs). — Hér látum við fólkið ræða saman um vandamál sín og leysa þau með þvi að kynnast sínum eigin tilfinningum betur, og reynsla mín er sú, að íslendingar eigi við minni almenn hegðunarvandamál að stríða en Bandaríkjamenn. Vegna fólksfæðar- innar eru mannleg tengs! á íslandi svo miklu nánari, og mér finnst þeir ekki hafa átt í neinum erfiðleikum með að tjá tilfinn- ingar sínar. Ég held að þau bönd og tilfinn- ingar sem tengja íslendingana saman hafi átt mikinn þátt í þeim góða árangri sem þeir hafa náð. Og slíkt verður ekki kennt. — Við getum aðeins brýnt fyrir þeim að fylgja því fast eftir sem þeir lærðu hérna, starfa sem mest með AA og deila reynslu sinni með öðru fólki. Áframhaldið er aðeins á þeirra valdi, og þar hafa íslendingarnir með öflugri starfsemi sinni heima fyrir nánast unnið kraftaverk. * Sue Cucak.félagsráðgjafi: Konur og ofneysla áfengis — Ef við berum saman íslenskar og amerískar konur, sem eiga við áfengis- vandamál að stríða, er auðvitað margt sem þær eiga sameiginlegt sem konur, en líka margt sem skilur á milli vegna uppeldis og umhverfisáhrifa. — Mér finnst áberandi hve íslenskar konur eru miklu sjálfstæðari og þess vegna náum við yfirleitt betri árangri með þær. íslenskar konur hafa greinilega aldrei verið jafnverndaðar af karlmanninum og þær amerísku og þær hafa lært betur að standa saman. — Það er einmitt þessi skortur á sam- stöðu sem hefur háð okkur konunum á leið til meiri þroska. Við eigum það til að vantreysta kynsystrum okkar, neitum jafn- vel að trúa á hæfni þeirra til að standa karlmanninum jafnfætis. Við verðum að læra að treysta hver annarri og það næst ekki nema með góðri samstöðu. Og þessi tilhneiging okkar til að leita á náðir karlmannsins til að vernda okkur er ekki annað en ein tegund lífsflótta. — Hinar öru þjóðfélagsbreytingar hafa gert enn meiri kröfur til konunnar en karl- mannsins, kröfur sem erfitt er að mæta án þess að missa fótfestuna. Þar hefur upp- eldið líka mikið að segja, en frá örófi alda hefur okkur verið kennt að við eigum að vera góðar stúlkur, alltaf jafnþolinmóðar og blíðar og að það sé „ókvenlegt” að láta reiði sína í ljós. Við byrgjum þess vegna alltof mikið með okkur neikvæðar tilfinningar. Við verðum að læra að láta þær í ljós á eðlilegan hátt. Móðir, kona... manneskja — Aukin útivinna hefur líka lagt konunni þungar skyldur á herðar. Við eigum nú að skila fullum vinnudegi út á við, jafnframt því að sjá um rekstur heimilisins, vera fullkomnar eiginkonur og mæður. Því enn vantar mikið á að karlmennirnir sjái um heimilisrekstur til jafns við konuna. Þegar konan finnur svo að hún er ekki fær um að valda þessu hlutverki sínu vekur það hjá henni mikla sektartilfinningu og þá er henni hættara við að leita á náðir lífs- 10 Vikan 9. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.