Vikan - 01.03.1979, Blaðsíða 12
Það er langur vegur á milli kakó-trésins,
sem súkkulaði er unnið úr, og þess konfekt-
mola, sem við kynnum héi. Það er úr
fræjum kakó-trésins, sem hægt er að vinna
súkkulaði, og hefur það tíðkast frá örófi
alda í Mið- og Suður-Ameríku. Var það gert
á þann veg, að fræin voru bleytt upp í heitu
vatni, sem siðan var kryddað með hinum
ýmsu efnum og svo drukkið. Þótti þetta
svaladrykkur frekar en næring. Svo
merkilegar þóttu kakó-baunirnar, að
Aztekarnir, sem frægir eru úr sögunni
vegna einstæðrar menningar sinnar,
notuðu þær sem gjaldmiðil ásamt með
öðru.
Til Evrópu kom baunir þessar ekki fyrr
en Kólumbus sneri heim úr fjórðu
Amerikuför sinni 1502. Hafði hann i pússi
sínu nokkrar kakó-baunir, er skip hans náði
landi á Spáni. Hófu nú Spðnverin’-
kakódrykkju af miklu kappi, en breytiu
drykknum töluvert með þvi að bæta iiaim
með sykri, en það höfðu . Ameríkumenn
aldrei gert. Næstu 100 ár breiddisi
kakódrykkja lítið út í Evrópu, því Spán-
verjar re’.’ndu að halda þessu leyndu. En
það vai nú ckki hægt um alla eilífð, og
árið 1657 opnaði fransmaður kakóverslun í
London, og þar gal fólk keypt þessa undra-
vöru á óheyrilega háu verði. Af því leiddi,
að kakódrykkja varð munaður hinna betur
stæðu. í London, Amsterdam og öðrum
stórborgum Evrópu fóru nú að spretta upp
veitingastofur, sem eingöngu seldu kakó.
Súkkulaði var komið í tísku.
Síðan þá hafa ýmsar breytingar orðið á
súkkulaði, og sú merkilegasta varð um
1700, þegar Englendingum hugkvæmdist
að blanda það með mjólk. Almenningsvara
varð súkkulaði þó ekki fyrr en 1853, þegar
Bretar felldu niður háa tolla, sem verið
höfðu á kakóbaunum.
En nú eru tímarnir aðrir, og meira að
segja hér á íslandi, á hjara veraldar, er nú
framleitt þetta dýrindis konfekt, 477 árum
eftir að Kólumbus kom með baunirnar í
pússi sinu frá Ameriku. Það skal tekið
fram, að þetta eru fyrstu litmyndir, sem
birtast á íslandi af fæðingu konfektmola.
EJ
VIKAN fylgist
með
fæðingu
konfekt
mola
1
Hér er kakóbaunum, kakósmjöri, undanrennu
og smjöri hrœrt saman.
2
Blandan sett I risahrœrivól og hrœrt enn betur
saman. í fyllingu timans er blandan lesdd úr
þessum geymi í rörum upp á nœstu hœð fyrir
ofan.
3
Á þeirri hœð fer súkkulaöið i nokkuö, sem
kallað er vagga, og hefur það hlutverk að hakJa
hrtastiginu réttu i blöndunni.
4
Þaðan fer það i skammtara, sem sprautar því i
réttum hkitföllum i sérgerö form.
5
5
Formunum slegið við þannig aö nœgilegt
holrúm myndist fyrir f yllingu, því þetta á að
verða fylltur konfektmoli.
6
Áfyllingarefni i ýmsum litum. Gert úr sykri nœr
eingöngu og bœtt með litarefnum.
7
Fyllt á molann . . . og nú er hann tilbúinn til að
lokast.
8
Og enn einu sinni er súkkulaði sprautað, og
hringurinn lokast.
9
Molarnir tilbúnir.