Vikan


Vikan - 01.03.1979, Page 31

Vikan - 01.03.1979, Page 31
KVIKMYNDALEIKKONAN OG ÁTRÚNAÐAR- GOÐIÐ JODIE FOSTER Nýlega lauk í Vikunni framhaldssögunni „Litla stúlkan við endann á trjágöng- unum”, en samnefnd kvikmynd verður sýnd bráðlega í Tónabíói. Aðalhlutverkið í þeirri mynd var í höndum Jodie nokkurrar Foster, sem eflaust margir kannast við. Hún er líklega einna frægust fyrir hlutverk sín sem Tulalah í „Bugsy Malone”, gleði- konan i „Taxi Driver” og Rynn í „Litlu stúlkunni”. En í þeim tíu kvikmyndum, sem hún hefur leikið í, hefur hún fengist við nær allar tegundir hlutverka, sem hægt er að fá. Hún fæddist í Newport þann 19. nóvember 1962 og var skírð Elisia Christia. Hún ólst upp hjá móður sinni með þremur systkinum, en faðir hennar yfirgaf fjöl- skylduna, þegar móðir hennar, Evely, kölluð Brady, var ófrísk að Jodie. Móðir hennar var blaðafulltrúi fyrir margar stjörnur, og það er hún, sem stendur á bak við starf Jodie. Jodie var ekki nema sjö ára, þegar hún fékk fyrsta hlutverk sitt í „The wonderful world of Disney”, en síðan fékk hún hlutverk í nokkrum sjónvarps- kvikmyndum, þar á meðal í „Bob and Carol and Ted and Alice”, sem sýnd var í sjónvarpinu í vetur. Hún lék góðu stúlk- una í „Tom Sawyer” og stuttu seinna, eða 1974, fékk hún hlutverk í „Alice doesnt live here any more”. Þar lék hún vanrækta smástelpu, Doris að nafni, sem kenndi Tom, ungum syni Alice, að drekka áfengi, reykja hass og stela. Og nú eigum við von á að sjá hana í nýrri kvikmynd, sem tekin var upp á síðasta ári. Sú kvikmynd ber nafnið „Foxes”, og því hefur verið fleygt, að það sé besta mynd, sem Jodie hefur leikið í. En þangað til við fáum að sjá hana á breið- tjaldinu, verðum við að láta okkur nægja að horfa á hana á plakat-myndinni, sem fylgir þessari Viku. HS 9-tbl. Vikan3l

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.