Vikan - 01.03.1979, Síða 36
Þessi fallegi samkvæmiskjóll
er úr rayon og meó hvitum
bómullarkraga, en það er
einmitl mikið i tísku núna.
Hann er franskur, frá Réne
Derhy og kostar 28.900
krónur
Tískan
í
dag
Þessi fallegi klæðnaður sem við sjáum hér á
myndunum, er mjög einkennandi fyrir tískuna í
dag. Hlýlegir jakkar, sem jafnvel er hægt að
snúa við, þykkar ullarkápur, sem ná niður fyrir
hné, gamaldags rómantískir kjólar með blúndu-
kraga, blúndu á ermum, og oft er litlum
blúnduklút stungið í brjóstvasann og mynstruð
herravesti við flauelsbuxur. — Nú miðast allt
við að hafa fötin sem þægilegust, enda er
tískan í dag eins og sniðin fyrir íslenska
veðráttu. — Að venju er það ein tískuverslun,
sem hjálpar okkur að kynna fatnaðinn, og að
þessu sinni varð fyrir valinu verslunin
„Sautján”, sem er til húsa að Laugavegi 33.
Þau sem sitja fyrir heita Kristjana Þráinsdóttir
og Sveinbjörn Bjarkason, en ljósmyndari er
Jim Smart. T TO