Vikan


Vikan - 01.03.1979, Síða 53

Vikan - 01.03.1979, Síða 53
GLA UMGOSINN fylgja þjófnaði og óumflýjanlegum eftir- málum." ..Herra," sagði hr. Philips. „eigið þér við að þessi vesalings óheppni ungi maður hafi verið myrtur vegna háls- mensins?" „Það." sagði sir Richard. „er ég hræddur um." „En þetta er hræðilegt! Svo sannar- lega. ég er alveg orðlaus. Hver getur hafa vitað að hann hafði menið?" „Ég myndi hafa sagt enginn. En eftir nánari umhugsun, þá dettur mér i hug maðurinn sem ég hitti nærri Wroxham, sá sem faldi menið i vasa minum gæti hafa elt mig hingað og beðið eftir tæki- færi til þess að ná því aftur.” „Það er satt. Það hefur verið njósnað um yður. En hafið þér séð þennan mann hér i Queen Charlton?" „Haldið þér að hann myndi láta mig sjá sig?" spurði sir Richard og leiddi hjá sérspuminguna. „Nei. nei alls ekki. En við verðum að iíta á allar aðstæður." „Já." samsinnti sir Richard og sveifl- aði einglyrninu i snúrunni. „Og ég held að þér mættuð, með varúð, veita athygli skyndilegri brottför bráðláts manns héðan. manns sem kallar sig kaftein Trimble." „Nú. já. herra. Þetta verður æ — Segið ntér hvaða ástæðu hafið þér til að ætla að sá maður sé bendlaður við morðið?" „Nú.” sagði sir Richard hægt. „orð sem ég lét falla af tilviljun um mittis- kápur fengu kaftein Trimble á spreng- reið til Bristol." Yfirvaldið blikkaði augunum og sendi ásökunaraugnaráð til hálftóms glass síns. Hræðilegum grunsemdum um rommpúnsið og áhrifum þess á skiln- ingarvit hans var þó eytt með næstu orðum sir Richards. „Náunginn sem ég hitti nærri Wrox- ham var i mittiskápu úr skinni. Þegar ég af tilviljun minntist á þetta hafði það stórfengleg áhrif á kaftein Trimble. Hann spurði mig í hvaða átt maðurinn hefði farið. Þegar ég sagðist halda að hann hefði farið til Bristol. rauk hann héðan án frekari tafar.” „Égskil. Félagi." „Ég held svikinn félagi." sagði sir Richard. Þetta virtist koma yfirvaldinu úr jafn- vægi. „Já. Nú skil ég. Guð minn góður þetta er hræðilegt! Ég hef aldrei þurft að — en þér segið að þessi kafteinn Trimble hafi haldið til Bristol, herra?" „Hann gerði það. En eftir það frétti ég að hann var kominn aftur hingað á krána klukkan sex i kvöld. Eða ég ætti kannski að segja í gærkvöldi," bætti hann við um leið og hann leit á klukk- una á arinhillunni. Hr. Philips dró djúpt andann. „Frá- sögn yðar. sir Richard. varpar Ijósi á — svo sannarlega — ég segi það satt. þetta hefði mig aldrei grunað. En morðið! Komust þérað þvi. herra?" „Ég fann lik herra Brandons." leið- rétti sir Richard. „Hvernig komust þér að þessu. herra? Grunaði yður eitthvað? Voruð ..." „Alls ekki. Það var heitt um kvöldið. svo ég fékk mér göngutúr í tunglskininu. Af tilviljun gekk ég inn í kjarrskóginn þar sem ég fann lik veslings vinar niins. Það var ekki fyrr en eftir þann sorglega atburð sem ég setti saman tvo og tvo." Hr. Philips skildist það að tilviljun hefði átt furðanlega mikinn þátt i ævin- týri sir Richards, en hann vissi að púnsið sem hann hafði drukkið skerpti ekki at- hygli hans. Hann sagði varfæmislega: „Herra. sagan sem þér hafið nú Ijóstrað upp er slík að hana þarf vandlega að at- huga. Já. svo sannarlega þarf að athuga hana. Ég verð að æskja þess að þér hverfið ekki héðan fyrr en ég hef haft tíma til... þér megið ekki misskilja mig! Miggrunarallsekkiað ..." „Kæri herra. ég misskil yður alls ekki og ég hef alls ekki í huga að fara héðan." sagði sir Richard sefandi. „Ég er þess fyllilega meðvitandi að þér hafið aðeins orð min fyrir þvi að ég sé Richard Wyndham.” „Hvað það varðar efast ég alls ekki. En skyldu minni verð ég að hlýða. Ég vona að þér skiljið aðstöðu mina. ég er tilneyddur." „Fullkomlega." sagði sir Richard. „Ég skal hlýða yður i öllu. Ég er viss um að þér. sem heimsmaður, skiljið hvc mikill- ar gætni er þörf i svo viðkvæmu máli." Hr. Philips sem hafði eitt sinn verið þrjár vikur i London. var upp með sér af þeirri tilhugsun að áhrif þeirrar stuttu dvalar væru nóg til þess að vera augljós slíkum manni sem spjátrungnum Wyndham og nú ólgaði hann af monti. Eðlislæg varkárni varaði hann samt við því að það væri betra að fresta frekari rannsókn þar til hann væri minna kenndur. Hann stóð upp með virðuleika og lét tómt glas sitt á borðið. „Ég er yður þakklátur." sagði hann. „Ég mun biða yðar á morgun — nei i dag! Ég verð að hugsa þetta mál. Ljótl mál, mjög Ijótt mál." Sir Richard samsinnti þvi og er þeir höfðu skipst á kurteisiskveðjum fór hr. Philips. Sir Richard slökkti á kertunum og fór i rúniið. ánægður með vinnu næt- urinnar. Pen varð fyrst á fætur daginn eftir. Veður var gott. bindið var vel hnýtt og hún hrósaði sjálfri sér fyrir það. Hún dansaði áfram þegar hún fór út til þess að líta til veðurs. Sir Richard. sem var ekki mikið fyrir það að fara snemma á fætur. hafði beðið um að morgunverður yrði tilbúinn klukkan níu og hún var ekki enn orðin átta. Þjónustustúlka var að sópa gólfið i einkastofunni og fýlu- legur þjónn var að breiða dúka á borð i aðalmatstofunni. Þegar Pen gekk i gegnurn forstofuna var gestgjafinn i lág- værum samræðum við herramann sem hún þekkti ekki. Gestgjafinn sneri sér við og hrópaði: „Hérna er hann sjálfur. herra. ungi herramaðurinn." Hr. Philips. sem átti nú við þann mesta glæp sem hann hafði komist i kast við alla sina dómaratið. hafði ef til vill innbyrl heldur mikið romm kvöldið áður. En hann var kappsamur maður og þótt hann hefði vaknað með mikinn höfuðvcrk hafði hann ekki sóað limanum, heldur farið fram úr þægilegu rúmi sínu og riðið til Queen Charlton til þess að halda áfram rannsóknum sinum. Þegar Pen stansaði gekk hann fram og bauð henni vingjarnlega góðan dag. Framhald í næsta blaði. BINNI & PINNI *. tbl. Vlkan II

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.