Vikan - 06.09.1979, Page 3
Leiðsla úr
taltæki
í hjálmi,
í talstöð.
Handsaumuð
leðurstígvél.
Hjalmur ur
trefjaplasti
Eitt af þremur
blikkandi Ijósum
Mótorhjólið sem hér sést er
af gerðinni Harley Davidson
1200, 60 hestöfl 2 cc og kostar
6 milljónir. I flota Reykja-
víkurlögreglunnar eru í
notkun 15 hjól af þessari
gerð.
Hjá ungum lögreglu-
manni, Karli Gíslasyni,
fengum viö þær upplýsing-
ar að mestur hluti
búningsins væri útveg-
aður þeim að kostnaðar-
lausu. Þó er það ekki allt,
því skyrtuna, spælinn,
borðana og hnappana á
jakkanum ásamt fleiri
smáhlutum verða þeir að
útvega sjálfir. Þessir
hlutir eru yfirleitt
pantaðir eftir verðlistum
frá Ameríku. —
Leðurjakkinn, sem
lögregluþjónunum er
útvegaður, er hannaður
hjá Belgjagerðinni og
kostar 60 þúsund krónur.
Málmsylgjan, sem er eins
og stjarna í laginu, er með
áletruninni: ,,Með lögum
skal land byggja” og er
framleidd hjá Hellu hf. og
kostar 5.500 krónur.
Buxurnar eru ákaflega
þægilegar úr stretsefni
meðrennilás upp aðhnjám,
framleiddar hjá
Austurgarði og kosta 20
þúsund krónur. Mörgum
finnst stígvélin þaðflott-
asta af öllu saman. Þau
eru saumuð eftir máli hjá
skósmið að nafni Aifred
Rassmusen og kosta þessi
öndvegisstígvél hvorki
meira né minna en 70
þúsund krónur. Hjálmur-
inn, sem er innfluttur frá
Englandi, þarf að þola
ýmislegt og er því
framleiddur úr fínasta
tref japkasti og kostar 9
þúsund krónur. Þá er
ótalin handjárnataskan
dularfulla sem kostar 1.460
krónur og dýrindis ullar-
trefill frá prjónastofunni
Iðunni, sem kostar 18
þúsund krónur. — Og
síðast en ekki síst verðum
við að minnast á sól-
gleraugun, sem einkenna
alla meiri háttar lögreglu-
þjóna. Þau eru ekki inni-
falin í búningnum og
verða því notendur að sjá
um þá hlið mála'nna
sjálfir. Til gamans má
geta þess, að flest
karlmannagleraugu kosta
alltfrá 10 þúsund upp í 20
þúsund krónur! — Þegar
allt er reiknað með,
nauðsynjaplögg eins og
nærfatnaður, sokkar og
fleira, reiknast okkur til
að einkennisbúningurinn
kosti um 200 þúsund
krónur.
Já, það er dýrt að vera
ímynd hreysti.
En skyldi það ekki vera
þess virði?!!
36. tbl. Vikan 3