Vikan - 20.09.1979, Blaðsíða 25
En allar þessar tilgátur voru of
ótrúlegar. Ég gat ekki ímyndað mér að
neinn i húsinu myndi hegða sér þannig.
Svo virtist sem frændi minn hefði á réttu
að standa, að þetta hefði aðeins verið
slæmur draumur. Nema — Systir
Josephine, full haturs vegna þeirrar
röskunar sem við ollum henni með
miðilsfundinum, gengi um og hefndi sín
á hverri þeirri mannveru sem á vegi
hennar varð? Það fór hrollur um mig.
Þessar hendur höfðu ekki verið vofuleg-
ar á neinn hátt, þær voru af holdi og
blóði. Og þó.... Hvernig gat ég þekkt
snertingu vofu?
Fjórtándi kafli
Tilfinningar mínar hvað varðaði
komu frú Buller-Hunter voru mjög
blendnar. Heimilislífið, sem ekki naut
neinna kvenlegra áhrifa, var formfast og
þunglyndislegt og nærvera hennar
lífgaði upp á það. Þó fann ég ekki fyrir
neinni hlýju í hennar garð. Ég óskaði
þess ekki að hlaupa á móti henni og
heilsa henni, ég gladdist alls ekki við að
sjá hana aftur. Ég vissi fullvel að hún
var mjög skyldurækin í starfi sínu og
myndi gera allt sem í hennar valdi stæði
til að gera mig að hefðarkonu, viðfangs-
efni sem var langt frá því að vera
auðvelt. En ég hafði engar tilfinningar
gagnvart henni, aðrar en virðingu.
Kannski var ástæðan fyrir þessu til-
finningaleysi mínu fólgin í kringum-
stæðunum við ráðningu hennar. Vesa-
lings konan átti aö kenna mér hluti sem
ég hafði ekki minnsta áhuga á að læra.
Mig langaði ekki til að kunna að full-
nægja kröfum höfðingja og þeirra sem
reyndu að líkjast þeim né þykjast hafa
framkomu sem ég alls ekki hafði. Þó
vissi ég allt of vel að ég var ekkert annað
en ómenntuð sveitastúlka sem þurfti á
slíkri kennslu að halda og að ég ætti að
vera henni þakklát fyrir skylduræknina.
Ég andvarpaði vegna þess hver barna-
lega ég hegðaði mér.
Sennilega hefur frúin þurft að hvíla
sig eftir ferðina því ég sá hana ekki fyrr
en við kvöldverða'rborðið. Þá mætti hún
í glæsilegum grænum flauelskjól meft
blúndum og kögri. Hún var jafnlífleg og
alltaf og áður en við vissum af voru glað-
legar samræður komnar af stað við
borðið. Það hlaut að koma að því að
leiksýninguna sem halda átti bærí á
góma.
„Þetta er mjög góður leikflokkur og
sýning þeirra á Keppinautunum ætti að
vera vel þess virði að sjá hana,” sagði
Clive.
„Keppinautarnir! Það var vel valið.
Samkvæmt mínu áliti er það eitthvert
besta leikritið sem Sheridan hefur
skrifað. Frú Malaprop er alveg stórkost-
lega skemmtileg, finnst þér það ekki?”
„Hvort hún er. Og ég held að þú
munir verða sammála mér í því, frú
Buller-Hunter, að leikkonan sem fer
með hlutverk hennar er stórkostleg
gamanleikkona.”
„Nú, svo að þú þekkir leikflokkinn?”
spurði frú Buller-Hunter.
„Já. Þau hafa oft haldið leiksýningar
hér og eru mjög vinsæl vegna hæfileika
sinna.”
„En hve þau eru heppin að geta notað
salinn hjá ykkur. Hann er svo
glæsilegur,” sagði hún við frænda sinn.
„Eruð þið líka með eitthvað af sviðsút-
búnaði?”
Andlit Clives lýsti af áhuga. „Já, það
erum við. Og svo getum við þakkað
þessum frábæra iistamanni fyrir sviðs-
skreytinguna.” Hann kinkaði kolli í
áttina til Vaughans.
„Það verður spennandi að sjá það,
eftir að hafa verið síðustu vikurnar i
Líttu inn
hjá okkur og labbaðu heim
með glæsilegt Hifi-tæki frá
Verð frá kr. 180.600.
Radionette SM 230 útvarpsmagnarinn er fallegt, vandað tæki, sem fer
vel í hvers konar hillusamstæðum.
SM 230 tækið geturðu einnig fengið með
innbyggðu cassettutæki og þá einnig með
spilara og cassettutæki með eða án Dolby.
Kjarni SM 230 samstæðunnar er fullkomið
útvarp með langbylgju, miðbylgju og FM-
bylgju.
Sterkur 2 X 20 watta sínusmagnari.
Líttu inn og við hjálpum þér að f inna réttu samstæðuna.
Ef þú átt 80.000 krónur — þá geturðu labbað heim með glæsilega
Radionette-stereo samstæðu.
e:
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10 A - Sími 16995.
Árs ábyrgð
Jölakjör
js. tbl. Vlkaii *S