Vikan - 08.11.1979, Side 22
Stórkostleg
fjölskylda
KENWOOD heimilistæki bjóóa upp á ótrúlega
fjölbreytni í framleióslu, sem öll hefur þaó sameiginlegt,
aó þar fara saman fullkomin gæói, fallegt útlit og mjög
hagkvæmt veró.
THORN
KENWOOD
Eigum f yrirliggjandi
Hrærivélar Gufugleypa
Blendera Strauvélar
Kaffivélar Þurrkara
HEKLA he
Kæliskápa
Frystiskápa
Frystikistur
LAUGAVEG1170-172 — SlMAR 21240-1168^
„Gerir þú ekki fullmikið úr þessu,
Richard? Drepa okkur, drepa hálfa
þjóðina. Ég á við, i allri hreinskilni,
hvernig vitum við það? Hvað vitum við?
Við vitum það sem við sáum, en við
vitum ekki þýðingu þess."
„Della. ég gefst upp," sagði Richard.
„Sko. þegar þú ert farin að efast um
þínar eigin tilfinningar, vinan, þá ertu
búin að vera sem fréttamaður. Þú ert
bara — ”
„Samkvæmt C. G. & E„” sagði
Jacovich hvasst, „þá voruð þið ekki í
neinni hættu á þessum tíma. Við höfum
fullvissu þeirra fyrir því."
„Nú, auðvitað segja þeir þetta.”
Richard var aftur byrjaður að hrópa, en
Kimberly tókst að stöðva hann.
„Þegiðu, Richard," sagði hún skræk-
róma. „Hún sneri sér að Jacovich. „Ég
skil hvað þú ert að segja, Don, og þú
sérð að ég er að reyna að vera sanngjörn
í þessu máli. En Richard hefur lika tölu-
vert til sins máls. Það er erfitt að
Imynda sér að það hafi engin hætta
verið þegar maður var þarna. Þegar
maður hefur gengið í gegnum það sem
við gengum í gegnum. Viðsáum hræðsl-
una á andlitum þeirra. Við fundum
hvemig þessi risastóra bygging titraði
eins og það væri jarðskjálfti. Og að
lokum þá heyrðum við hátalarakerfið
skipa öllum að fara á öryggissvæði. Og
það var endurtekið: .Þetta er ekki
æfing.' Nú, þegar maður leggur þetta
allt saman saman við filmuna þá er erfitt
að trúa því að það hafi ekki verið eitt-
hvað óvenjulegt á seyði. Við þurfum að
fá fleiri skoðanir á þessu. Ég held að það
ætti aðsýna sérfræðingi þessa filmu.”
„Kemur ekki til greina,” sagði Jaco-
vich. „Þessi filma verður i geymslunni.
Ég ætla ekki að gera það mögulegt að
kæra ykkur né þessa sjónvarpsstöð fyrir
lögbrot.”
„Hvað ætlar þú að gera?” spurði
Richard og rödd hans var þrungin
andúð. „Þetta er kallað að sópa undir
teppið. Þið eruð með efni sem snertir
málefni almennings, að maður tali ekki
um öryggi hans. Og þú, hinn ábyrgi
sjónvarpsfulltrúi, ætlar að segja, ,skítt
með almenning, ég ætla að passa upp á
minn eigin rass. Ég hylmi yfir þetta'.”
„Veistu að þú ert farinn að angra mig
reglulega, Richard,” sagði Jacovich.
„Þolinmæði min gagnvart þér er á
þrotum. Það er ekki verið að hylma yfir
neitt!"
„Það er það sem Nixon gamli sagði.
Sagði það við alþjóð. Einmitt meðan
hann var að hylma yfir hlutina. ,Ég skal
útskýra þetta fullkomlega —
„Ég sagði,” hélt Jacovich áfram, „að
það væri ekki verið að hylma yfir neitt.
Það er ekkert samsæri milli þessarar
stöðvar og C.G. & E. Orkuverinu bar
engin skylda til þess að tilkynna fjöl-
miðlunum um eigin málefni. Þeir gerðu
það sem þeim ber að gera samkvæmt
lögum. Þeir lokuðu fyrir orkuverið og
þeir höfðu samband við kjarn-
XX Vikan 45. tbl.