Vikan


Vikan - 06.03.1980, Blaðsíða 4

Vikan - 06.03.1980, Blaðsíða 4
Jónas Kristjánsson skrifar um íslensk veitingahús Þreytulegur og lélegur Beinagrind af kjúklingi niilli súlu og veggjar. sem ég sá í hádegismat á Aski. Laugavegi 28, var þar enn uni kvöld niatarleytið daginn eftir. Var þetta athyglisvert dæmi um sóðalegt yfirbragð þessarar lélegu matstofu. sem þó hefur haft kjark til að sækja um vinveitinga leyfi' Nýju eigendurnir hafa ekki enn tekið til hendinni á Aski. Laugavegi 28. þegar liessi grcin er rituð. Allt er þar enn við sömu gallana. sem liafa gert mig frá hverfan heimsóknum. F.ru eigendurnir nýju þó liklegir til átaka, vonandi frekar fyrr en siðar. Innréttingar eru stórkarlalegar. Súlur úr gröfum við minna á Halta httnann. en eru þó hvergi nærri eins smekklegar. A Aski vantar samræmi i stílinn. Strigi og steindir gervigluggar eru á veggjum. 1 stórum dráttum virðist |ietta fremur óvandað. þreytulcgt og vekur jafnvel óþægilegan grun um óþrifnað. Opið er inn i eldhús og heyrist þaðan hvimleiður hávaði. svo scm hróp og köll ntilli gjaldkera og matsveina. Fvrir gesti er þetta ónæðissamt og eykur óþæginda- tilfinninguna frá umhverfi og andrúms- lofti Asks. Afgreiðsla á kassa var frenutr kulda- leg og ónákvæm. Eg pantaði litla skammta af tveimur fiskréttum. en var látinn borga fyrir stóra. Það leiðréttist á staðnum, en liitt uppgötvaðist ekki fyrr en of seint. að ég hafði verið látinn borga einn skantmt af hrásalati þrisvar sinnum. Alger sjálfsafgreiðsla er á Aski eins og á Esjubergi. Menn rogast frant og aftur með bakka sína. Eru báðir þessir staðir þó mun dýrari en Hornið og Laugaás. sent veita þó matarþjónustu til borðs og bjóða upp á rnun betri mat. Rósinkálssúpa Rósinkálssúpa var innifalin I verði aðalrétta á matseðli dagsins, þegar ég kont á Ask í hádeginu. Þetta var hvers- dagsleg hveitisúpa. hvorki góð né vond. Verðið er 650 krónur. ef hún er keypt sérstaklega. Kjúklingur Kjúklingapottréttur nteð hrisgrjónunt og salati var nokkurn veginn sæmilegur. Dósasveppirnir voru ekki óhóflega eldaðir, en hrísgrjónin voru i meira lagi ofsoðin. Hrásalatið var gott og borið frani með skemmtilega sterkri sósu. Hveitisósan var þykk og rniður lystug. Kjúklingarnir sjálfir voru nokkuð mikið soðnir. en eigi að siður í lagi. Verðið er 3.600 krónur rneð súpu innifalinni. Buff Buff Lindström með spældu eggi var vel heppnað hakk. ekki steikt meira en svo, að það var rautt að innanverðu. Með fylgdi sama hrásalat og áður var lýst. spælt egg og tvær hvitar kartöflur. allt frambærilegt. Verðið er 3.000 krónur meðsúpu innifalinni. Kótiletta Glóðarsteikt kótiletta var meðal þess. sem valið var af fastaseðlinum I kvöld heimsókninni. Hún var ekki merkileg. enda mjög feit. Verðið er 770 krónur ein kótiletta og 2.200 krónur sent heill skammtur. i báðum tilvikum án meðlætis. Ef við gerum ráð fyrir ferns konar meðlæti til að búa til aðalrétt. t.d. með kartöflum. hrásalati, sósu og annað hvort hrisgrjónum eða einunt öðrum bragðauka, yrði verð aðalréttarins 4.000 krónur. Verð einnar kótilettu með tvenns konar meðlæti yrði þá 1.670 krónur sem forréttur. Kjúklingur Ask-kjúklingur var fremur vondur. enda þrælsteiktur og þurrkulegur. Verðið er 1.980 krónur sem litill skammtur og 3.740 krónur sem heill skammtur. hvort tveggja án meðlætis. Með tvenns konar meðlæti yrði litli skammturinn að forrétti á 2.880 krónur og með fems konar meðlæti yrði heili skammturinn að höfuðrétti á 5.540 krónur. Lambasteik Lambasteik Hawai var ofsalega mikið pipruð steik með ananashring. Þetta var sæmilegasta hráefni, en nokkuð mikið steikt. Verðið er 2.550 krónur sern heill skammtur án meðlætis. Með ferns konar meðlæti yrði úr þessu aðalréttur á 4.350 krónur. Turnbauti Turnbauti var nteyr. en bragðlaus. framreiddur miðlungi steiktur. þótt beðið væri um hann mjög litið steiktan. Verðið er 4.850 krónur sem heill skammtur án meðlætis. Með ferns konar meðlæti yrði úr honum aðalréttur á 6.650 krónur. Pönnukökur Kinversk pönnukaka var ómerkileg og köld, en ekki beinlinis vond. Verðið er 670 krónur ein pönnukaka og tvær á 1.100 krónur. hvort tveggja án meðlætis. Með tvenns konar meðlæti yrði eina pönnukakan að forrétti á 1.570 krónur og með ferns konar meðlæti yrðu pönnukökurnar tvær að aðalrétti á 2.900 krónur. Fiskur lnnbakaður fiskur Orly var sérstak lega vondur. grimmilega steiktur af kokkum. sem virtust hata fisk. Hann var afgreiddur hálfkaldur. Verðið er 400 krónur sem litill skammtur og 1.000 krónur sem heill skammtur. hvort tveggja án meðlætis. Með tvenns konar meðlæti yrði litli skammturinn að forrétti á 1.300 krónur og með ferns konar meðlæti yrði heili skantmturinn að höfuðrétti á 2.800 krónur. Meiri fiskur Djúpsteiktur fiskur i brauðmylsnu var annað dæmi um djúpa óbeit eldhússins á fiski. Þetta var grjóthörð plata. sem var á bragðið eins og léleg feiti. Hún var afgreidd hálfköld. Verðið er 350 krónur sem lítill skammtur og 1.000 krónur sem heill skammtur. hvort tveggja án meðlætis. Með tvenns konar meðlæti yrði litli skammturinn að forrétti á 1.250 krónur og með ferns konar meðlæti yrði heili skammturinn að höfuðrétti á 2.800 krónur. Pizza Pizza Ask-speciale var of þykk og of hörð. of brennd og of köld. Þar á ofan fannst ekkert oregano né annað skylt kryddbragð. Þetta var versta pizza ævinnar og er þá ekki litið sagt. Verðið er 2.200 krónur án meðlætis. Meðlæti Ég prófaði ýmislegt meðlæti, sem gestir panta og borga sérstaklega. Hrísgrjónin voru alveg köld og ekki góð á bragðið. Skammturinn kostar 400 krónur. Hvitu kartöflurnar voru einnig alveg kaldar og lítt lystugar. Verðið er 350 krónur. Sveppirnir voru úr dós. Verðið er 440 krónur. Paprikan var ný og bragðaðist sæmilega. Verðiðer 220 krónur. Franskar kartöflur voru kaldar. en 4 Vikan 10. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.