Vikan


Vikan - 06.03.1980, Page 35

Vikan - 06.03.1980, Page 35
savannamörkina en ljónið röltir inn í frumskóginn á ný. Enn leiðist því og einhvern veginn verður það að drepa tímann. Eftir stutta stund kemst ljónið á spor hjartar, stekkur af stað og linnir ekki látum fyrr en hjörtur- inn er kominn í þá óþægilegu aðstöðu að standa augliti til auglitis við þetta hættulega dýr. Hjörturinn snýr sér við á punkt- inum og ætlar að reyna að flýja en ljónið er sneggra i snúningum og nær tangarhaldi á höfði dýrsins, sveigir það aftur þannig að hirtinum liggur við köfnun. — Hver er konungur dýranna? öskrar ljónið. — Þú, þú, auðvitað þú, stynur hjörturinn á milli þess sem hann reynir að ná and- anum. — Hver er skelfir skógarins sem allir hirtir óttast? — Þú líka, þú líka, kveinar hjörturinn og kiknar í hnjáliðunum. — Gott og vel, umlar ljónið, — reyndu nú að koma þér í burtu áður en égét þig. Hjörturinn hverfur á braut og ljónið rekur upp siguröskur svo undir tekur í skóginum — svo röltir það sína leið. Næst er það buffali sem er svo óheppinn að verða á vegi Simba. En þar sem buffalar eru ekki vanir að gefast upp fyrr en í fulla hnefana setur þessi undir sig hausinn og býst til varnar. En of seint, því áður en hann veit af er Ijónið komið upp á bakið á honum og búið að snúa buffala- hausnum hans í hálfhring. - HVER ERKONUNGUR DÝRANNA? öskrar Simbi og heldur buffalanum í skrúfstykki. Þegar buffalinn virðist ekki ætla að svara rekur Ijónið víg- tennur sínar á kaf í háls hans. — Út með það! Út með það! Hver er konungur dýranna? hvæsir Simbi út á milli saman- bitinna tannanna. — Ó, ó, ó, ó, það ert þú, kæri Simbi, stynur buffalinn. — Og hver er skelfir skógarins, sá sem allir óttast? Buffalinn vælir af sársauka og kemur ekki upp orði þar sem hausinn á honum er kominn í hálfhring og rúmlega það. Simbi er ekki ánægður með þetta og snýr því dálítið betur upp á höfuðið og til frekari áherslu rekur hann tennurnar aftur í háls dýrsins, en nú á öðrum stað en áður. — Jæja! Hver er skelfir skógarins? — Þú . . . Simbi . . . það ert þú, stynur buffalinn og þá sleppir Ijónið taki sínu. Buffalinn stendur stjarfur eftir þessa meðferð og hristir hausinn svona til að athuga hvort hann sé ekki enn á sínum stað. Svo tautar hann einhverja vitleysu og skjögrar á braut. Simbi lítur sigri hrósandi á eftir fórnarlambi sínu og röltir svo sína leið. Nú liggur leiðin aftur fram hjá vatnsbólinu og þar kemur Simbi auga á nashyrning. Ljónið rekur upp skaðræðisöskur og ætlar að hræða nashyrninginn — en það er öðru nær, nashyrningurinn heldur áfram að drekka eins og ekkert hafi i skorist. Hættulegur glampi kemur í rándýrsaugu Simba. Hann hniprar sig saman og stekkur svo eldsnöggt á nashyrninginn og læsir klónum í bak hans um leið og hann öskrar: — Hver er konungur dýranna, skelfir allra frumskógardýra, skepnan sem allir nashyrningar óttast? Nashyrningurinn vippar höfðinu til, stingur horninu undir kvið Simba og þeytir honum I stórum boga 30 metra út í vatnsbólið. Simbi er hálfskömmustulegur þegar hann skreiðist á land og haltrar á braut. Pegai iiaim er kominn í hæfilega fjarlægð heyrist hann segja við sjálfan sig: — Það var nú óþarfi af nashyrningnum að vera svona ruddalegur þó svo hann hafi ekki vitað svarið við spurning- unni! Þýð.:ej Skop RAu? Ég ætla að biðja forstjórann um kaup- hækkun. F.n þú verður þá að setya mér hvað ég er með í kaup núna. Hann ætti að vera góður í reikninpi — ég Ref honum mikinn fi.sk! 10. tbl. Vikan 3S

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.