Vikan - 27.03.1980, Blaðsíða 6
Fjölskyldumál — Guðfinna Eydal
Böm
sem þurfa
sálfræðilega
aðstoð
Flest vandamál barna tengjast
vandamálum fjölskyldunnar. I>aö er
einnig langalgengast aöerl'iðleikar barna
komi fram í árekstrum við þá sem barnið
er algjörlega háð. Sálræn vandamál
barna eru lika yfirleitt leyst með því að
öll fjölskyldan er tekin i meðferð, og
gefur það oft góðan árangur. F.n
stundum er ekki nægjanlegt að
meðhöndla alla fjölskylduna enda þótt
undirrót vandamálanna liggi þar. Barnið
verður oft sjálft að fá einstaklings-
meðferð. Ein meginástæðan fyrir þvi er
sú að aðstæður barna erú oft allt aðrar
en fullorðinna og að börn eru frábrugðin
fullorðnúm, á margvislegan hátt. Auk
þess að börn eru nær algjörlega háð
fullorðnum geta þau t.d. ekki rætt um
aðstæöur sínar á huglægan hátt eins og
fullorðnir. Hugsanir barna erti allt öðru
visi en fullorðinna og það verður oft að
komast að þeini með þvi að meðhöndla
barnið eitt. Börn eru einnig frábrugðin
fullorðnum i þvi að hegðun þeirra er oft
miklu meira vandamál fyrir liina
fullorðnu en þau sjálf. Börn leita ekki
heldur sjálf eftir aðstoð þar sem þau
skilja ekki vanlíðan sína né hegðunar
einkenni.
Hér á eftir eru gefin stutt dæmi um
algeng einkenni barna sem þarfnast
sérfræðilegrar hjálpar.
Óvæntir alvarlegir atburðir
Það getur komið fyrir að hörn sem
verða vitni að einhverjum alvarlegum
atburði. eins og dauða náins ættingja,
bilslysi eða eldsvoða. sýni af sér sálræn
einkenni sem þau hafa ekki gert áður.
Mjög sterk angist barnsins kemur frarn i
einkennunum. Slik börn þarfnast
meðferðár strax.
Mjög þæg börn
Sum börn virðast vera óeðlilega þæg.
Þau eru oft róleg. hlýða i einu og öllu og
eru yfirmáta aðgælin við alla hluti.
Tilvera þessara bama mótast oft af þvi
að gera foreldrunum allt til geðs og þau
hegða sér sérstaklega vel bæði heima hjá
sér. í skólanum og sem gestir. Yfirmáta
þæg börn reyna oft með yfirbragði sinu
að leyna því hve hrædd þau eru viðeigin
fjandsamlega afstöðu gagnvart öðrum
og eðlilega árásarhneigð annarra.
Mjög árásargjörn börn
Börn sem eru óeðlilega árásargjörn
þurfa oft aðstoðar við. Árásargirni getur
orsakast af mörgum ólikum aðstæðum
og er mikilvægt að komast að þvi i
hverju hún felst svo að meðferðin geti
tekið mið af þvi.
Árásargirni getur einnig komið fram i
mörgum ólíkum myndum. Sum böm fá
nokkurs konar köst af og til. sum eru
óeðlilega árásargjörn heima en ekki
annars staðar og öfugt. Slik árásargirni
er háð umhverfinu og er oft tákn um
svar barnsins við raunverulegu eða
imynduðu óréttlæti foreldranna. Mörg
þessara barna hafa það á tilfinningunni
að foreldrarnir hafi svikið þau og þau
verða tortryggin gagnvart öllum
fullorðnum.
Árásargirni getur komið fram sem
eyðileggingarþörf. Öll börn eiga það til
að eyðileggja hluti án þess að ástæða sé
til að hafa af þvi áhyggjur. En ef engin
sektarkennd virðist fylgja á eftir mikilli
eyðileggingu er ástæða til að vera á
verði. Einnig ef barnið virðist algjörlega
skorta samúð með öðrum eftir að hafa
sýnt af sér mikla árásarhneigð.
Börn sem pissa og kúka á sig
Það er álitið að 10-15% barna pissi á
sig á næturnar við 4 ára aldur. Mörg
pissa lika á sig á daginn. Sum börn læra
heldur aldrei að hafa stjórn á þvaglátum
og sum geta ef til vill haldið sér þurrum i
einhvern tima en byrja síðan aftur að
pissa á sig. Ef á heildina er litið er það
aðeins litill hluti barna sem ekki getur
haldið sér þurrum vegna liffræðilegra
galla. Talað er um töluna 1-5% i þvi
sambandi. Það á hins vegar alltaf að
ganga úr skugga um það með læknis-
rannsókn hvort eitthvað liffræðilegt sé
að barninu ef það pissar óeðlilega lengi á
sig eða byrjar aftur eftir að það var hætt.
Ef ekkert likamlegt er að barninu er full
ástæða til að ætla að orsökin sé sálræns
eðlis. Börn sem pissa á sig vegna
sálrænna erfiðleika geta bæði haft létt-
vægar og alvarlegar sálrænar truflanir.
Stundum er hægt að laga ástandið með
tiitölulega stuttri meðferð. En i öðrum
tilvikum þarf langvarandi nteðferð.
Ef ekkert likamlegt finnst að barni, og
það heldur áfrant að kúka á sig eftir 3ja
til 4ra ára aldur. er sennilegt að það eigi i
sálrænum erfiðleikum. Þvi eldra sem
barnið er þeim mun alvarlegra er
ástandið yfirleitt. Þegar barn kúkar á sig
getur það m.a. verið tákn fyrir uppreisn
barnsins gegn foreldravaldinu og hörku
foreldranna þegar þeir reyndu að venja
barnið af þessu. Skammir og
samviskubit auka gjarnan á tilfinninga-
lega erfiðleika barnsins og andstaða þess
harðnar.
Yfirleitt eru börn sem kúka og pissa á
sig fram eftir aldri svo erfið fyrir
foreldrana að þeir reyna að leita sér
hjálpar.
Mikill áhugi fyrir kynferðis-
málum
Sum börn sýna kynferðismálum óeðli-
lega mikinn áhuga. Þau dreymir án
afláts um kynferðismál. hugsa sífellt um
þau og tala einnig mikið um þau. Sum
börn með slíkan áhuga fróa sér mikið
sjálf. Þau reyna gjarnan sjálfsfróun
þegar þau eru ein og það virðist ekki
trufla þau að aðrir séu til staðar. Einnig
geta þau reynt að fá önnur börn til þess
að taka þátt í leiknum. Börn með óeðli
legan áhuga á kynferðismálum hafa
6 Vikan 13. tbl.