Vikan - 27.03.1980, Side 7
orðið fyrir skakkaföllum á þróunarbraut
sinni og þau þarfnast hjálpar.
Það er reyndar algjörlega eðlilegt að
börn sýni kynferðismálum vissan áhuga.
En það er mikill munur á því að vera
nánast heltekin af slíkum áhuga og að
sýna hann af og til. Það er einnig
einungis yfirdrifinn. ýktur áhugi á
þessum málum sem þarf að meðhöndla.
Hrædd börn
Litlum börnum er eðlilegt að hræðast
marga hluti. Ýmiss konar hræðsla er
einnig algeng hjá börnum á aldrinum
þriggja til átta ára. Margar rannsóknir
sýna að við átta ára aldur hefur hræðsla
barna minnkað að miklum mun. Það eru
ólíklegustu hlutir sem börn eru hrædd
við, t.d. hundar, kettir, myrkur,
öskubílar, sirenur. Þess konar hræðsla
gengur yfir og ekki ástæða til að ætla að
neittséað barninu.
Sum hræðslugjörn börn þjást af mjög
sterkri og eiginlega óraunhæfri hræðslu.
Þau geta t.d. verið hrædd við rennandi
vatn, lítil meinlaus skorkvikindi og
ókunnugt fólk. Börn sem þjást af óraun
hæfri hræðslu geta t.d. óttast allt sem
skítugt er, þau eru haldin eins konar
þráhyggju, þar sem þeim finnst allt
skítugt ógnvekjandi, og þau geta sjálf
verið hrædd um að verða skítug.
Ef hræðsla er óeðlileg og tákn fyrir
sálræna erfiðleika er það hins vegar yfir-
leitt fremur styrkleiki hræðslunnar en
það sem gefið er upp sem hræðslu-
vekjandi sem ber að fara eftir. þegar
leita á eftir aðstoð.
13. tbl. Vikan 7