Vikan - 27.03.1980, Blaðsíða 18
Framhaldssagan
¥
HILDA ROTHWELL:
mánaskini
Vivien stóð fyrir utan herbergishurð-
ina mína og í mánaskininu var hár
hennar silfurlitt. Hún var í síðum
náttkjól og hún kreppti hnefana að
síðunum.
„Halló, Sharon. Hvernig hefurðu
það?” Hún malaði eitthvað um einskis
verða hluti og meðan ég hlustaði á
glaðlega rödd hennar velti ég fyrir mér
hvers vegna hún væri að hringja svona
seint.
„Ég hringdi til þín í gær." sagði
Sharon. „Mér var sagt i The Waggoners
hvar þú værir, svo ég gat fundið
númerið. Ég ætlaði bara að láta þig vita,
að ég væri búin að pósta til þín bréfið
frá bankanum. Jú. héðan er allt gott að
frétta. Ég sé þig, bless.”
Ég lagði tólið hægt á og sneri mér við.
Sara frænka sat i djúpum stól hinum
megin i herberginu og andlit hennar var
að mestu hulið skugga. Julian frændi
sást hvergi.
„Halló, Joanna,” sagði hún styrkri
röddu. „Nei. ekki koma nær. Sestu,
væna min. Þarna já. I stólinn hans
Julians. Þetta er betra. Viltu hella kaffi I
bollana?"
Þegar ég var búin að þvi sat ég og
ríghélt I stólarmana og minnti sjálfa mig
á að þetta var frænka mín sem sat þarna
og talaði. Vöxturinn. framkoma hennar
og fas. og meira að segja röddin. var svo
ótrúlega líkt að það var eins og þetta
væri móðir mín afturgengin.
Sara frænka hló við og sagði: „Þú
hefur ekki stækkað mikið, er það? O.
jæja, það var svo sem ekki við öðru að
búast.”
En hvers vegna. hugsaði ég og var
enn ekki búin að jafna mig á því sem
fyrir augu bar. Faðir minn hafði verið
meira en meðalmaður á hæð og móðir
mín jafnhávaxin og Sara sjálf. Og
Vivien var líka hávaxin. Þær þrjár voru
og höfðu verið glæsilegar og þokkafullar
konur, og I fyrsta sinn á ævinni furðaði
ég mig á aðég skyldi ekki hafa erft þessa
eiginleika þeirra.
„Hefur Vivien breyst, Sara frænka?"
spurði ég. „Eða hefur hún alltaf verið
svona? Og getur enginn hjólpað henni?"
„Stundum og stundum ekki. Það áfall
sem hún varð fyrir I Kenya skaðaði hana
mikið. Sagði Julian þér frá því?”
„Ég held að það sé best að þú segir
mér frá þvi núna,” svaraði ég.
„Föður þinum fannst ekki að þú ættir
að fá að vita þetta. Eftir að Pamela dó
sleit hann öll tengsl milli okkar og þín —
og milli hans.”
Þetta var í annað sinn. sem eitthvað
braut i bága við það sem rnig minnti.
„En þú skrifaðir okkur aldrei," sagði ég.
„Var það ekki, Joanna? Hvernig
veistu það? Siðan hvenær var farið að
bera póst heim aðdyrum I Lusaka?"
Nei, það var satt. Allur póstur til
okkar hafði verið sendur á skrifstofuna
til pabba og lagður þar á skrifborð hans.
Ég gat þvi ekki hafa vitað um annan
póst en þann, sem hann taldi rétt að láta
mig vita um.
„Þú hefur þá skrifað okkur?" spurði
ég aftur, þvi ég vildi að minnsta kosti fá
þetta á hreint.
„Julian sendi kort stuttu eftir að við
komum til Englands, til að láta vita um
breytt heimilisfang. En Vernon svaraði
ekki. Enda hafði hann lika gefið fyllilega
i skyn hver afstaða hans væri. þegar
Pamela var jörðuð."
„En af hverju hélt hann að þú værir
dáin? Hann hélt það. var það ekki?
Hvaða afstöðu var hún að tala um og
hvers vegna?
„Það var ekki búist við að ég myndi
lifa,” svaraði Sara frænka. „En ég var
kraftmeiri tvíburinn. Pamela var alltaf
— ja, fínlegri eða viðkvæmar,
skilurðu?"
„Áttu við að pabbi hafi ekki einu
sinni beðiðeftir hvernig þetta færi?"
Hún heyrði hneykslunartóninn I rödd
minni og lyfti hendinni eins og i mót-
mælaskyni og sagði: „Þú mátt aldrei
ásaka hann fyrir neitt. Hann hafði sínar
ástæður. Sagði hann þér alls ekki neitt
um móður þina?”
„I>etta var morð, sem var sprottið af
einhvers konar hjátrú, var það ekki?"
Almáttugur, þau voru jú ekkert
einsdæmi I Kenya.
Frænka mín hikaði en svaraði svo:
„Það er kannski ekki alveg hægt að
segja að þetta hafi verið morð. Þeir
ætluðu aldrei að drepa hana. Þeir vildu
bara fá hár hennar. Eða mitt. öllu
heldur." Hún hló stuttaralega. „Fyrir
töfralækninn, skilurðu."
„Segðu mér frá þessu, Sara frænka,”
baðég hana.
„Það var aldrei neitt á huldu i
sambandi við þetta," byrjaði hún. „Ég
hafði farið inn til Nairobi til að versla.
Ég skildi Vivien eftir hjá Pamelu. Vivien
var hænd að Pamelu — henni þótti ekki
síður vænt um hana en mig. Meðan hún
var pínulítil gerði hún sér reyndar aldrei
grein fyrir hvor var móðir hennar. Þú
BANDAO
brcqil ekhi
A erfiöum vegum og vegleysum, þegar álagiö er mest, stendur Bandag sig best. Þess vegna velja
flutningabilstjórar, rallökumenn, jeppaeigendur og aörir bíleigendur kaldsólaöa Bandag hjólbaröa
sem bregöast ekki. Nú er rétti tíminn til aó setja Bandag snjóhjólbaröa undir bílinn.
I lengsta rally sem haldiö hefur veriö hérlendis voru bílar á
Bandag hjólböröum i 1.3.5.6. og 7. sæti.
Bandag Hjólbarðasólun h.f. Dugguvogi 2 - Sími 84111